Íslendingur - 14.08.1964, Síða 7
MESSAÐ í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag kl. 10,30. Sr. Jón
I Bjarman predikar. Sálmar nr.
! 317, 349, 223, 203 og 680. —
Sóknarprestar.
HJÓNAEFNI. Ungfrú Snjólaug
Bragadóttir og Reynir Brynj-
ólfsson múraranemi.
FERÐASKRIFSTOFAN SAGA
efnir til berjaferðar að Nesi í
| Aðaldal n. k. sunnudag. Sjá
nánar í auglýsingu.
ÚR DAGBÓK LÍFSINS. Hina
umtöluðu mynd Úr dagbók
! lífsins, sýnir Magnús Sigurðs-
t son skólastjóri, í Laugarborg
i á mánudagskvöld, Hrísey á
j þriðjudagskvöld og Dalvík á
! miðvikudagskvöld. — Allur
ágóði af sýningunum gengur
I til Hjálparsjóðs æskufólks. —
j Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
HEILSUVERNDARSTÖÐ AK-
UREYRAR: Eftirlit með þung-
uðum konum fimmtudaga kl.
4—5 e. h. — Ungbamaeftirlit
miðvikudaga og annan hvern
mánudag kl. 1—2 e. h. Þarf
að pantast í síma 1977 og
1773. — Hvorttveggja þetta
fer fram í Hafnarstræti 81,
neðsta hæð. — Berklavarnir:
Þriðjudaga og föstudaga kl.
2—3,30 e. h. og bólusetningar
fyrsta mánudag hvers mánað-
ar kl. 1—2 e. h. — Hvort-
tveggja í húsnæði Berklavarn
arstöðvarinnar við Spítala-
stíg. 1
MATTHÍASARSAFNH) opið
kl. 2—4 e. h. alla daga, nema
laugardaga.
MINJASAFNIÐ! Opið frá 1,30
til 4 e. h., alla daga, nema
mánudaga. Á öðrum tímum
fyrir ferðafólk eftir samkomu
lagi við safnvörð. Símar 1162
og 1272.
NONNAHÚSIÐ opið kl. 2—4
síðdegis, daglega.
N ÁTTÚRU GRIPASAFNIÐ er
opið almenningi á sunnudög-
um kl. 2—4 e. h. Sími safn-
varðar er 2983.
JVmtsluííutsafttttr er opið
alla virka daga, nema laugar-
daga, kl. 4—7 e. h.
LEIÐRÉTTING. — Símanúmer
Sigtryggs Júlíussonar er 1380,
en það misprentaðist í auglýs-
ingu frá rakarastofu hans í
síðasta blaði.
I
í PILS og KJÓLA
í miklu úrvali.
KÁPUR
ný send:ng n.k. mánudag.
MARKAÐURINN
^ Sími1261
ÍSLENDINGUR
- YFIR 1000 NEMENDUR GISTU . . .
BRÚÐHJÓNIN Hjördís Rósa
Daníelsdóttir stud. phil. og
Tómas Ingi Olrich stud. phil.,
gift í Akureyrarkirkju 8. ágúst.
Heimili Byggðavegur 88. —
Ljósmynd: N. H.
BRUÐHJONIN Guðbjörg Tóm-
asdóttir og Axel Guðmundsson
útvarpsvirki, gift í Akureyrar-
kirkju 8. ágúst. Heimili Glerár-
gata 1. — Ljósmynd: N, H.
Tjaldstæðið mikið sótt
TJALDSTÆÐIÐ á sundlaugar-
túninu, sem Akureyrarbær leig-
ir ferðamönnum, nýtur mikilla
vinsælda og vaxandi. Aldrei
mun þar hafa verið meira fjöl-
menni en í sumar. Er oss sagt,
að þar hafi eitt sinn verið talin
um 70 tjöld, og sé óvíst, að
fjöldinn hafi þá verið mestur.
Nokkuð mun hafa dregið úr
aðsókn síðan um verzlunar-
mannahelgi, og taldi tíðindamað
ur blaðsins þar 14 tjöld s.l. mánu
dag. Tíðarfarið hér í sumar hef-
ir vafalaust dregið nokkuð að
staðnum, því á hlýjum og sól-
ríkum dögum er ekki amalegt
að búa svo að segja á bökkum
sundlaugarinnar.
(Framhald af blaðsíðu 2).
á þessum ferðum skólánna
næsta vetur?
— Já. Ferðirnar tókust ágæt-
lega og nemendurnir undu sér
vel.
STRAUMURINN HEFUR
HALDIZT FRÁ PÁSKUM.
— Hvenær byrjuðu sumar-
annirnar?
— Á pálmasunnudag. Og þá
komu Lionsfélagar í Hugihn
með píanóið, en þeir hafa alveg
séð um dagstofuna. Alla pásk-
ana voru hér um 80 manns og
allt upp í 90 í mat. Síðan hefur
straumurinn haldizt nokkurn
veginn fram á þennan dag og
hafa herbergin nýtzt ágætlega.
Eins margir hafa þó ekki tekið
svefnpokapláss og búizt var við.
En á það er að líta, að mjög
margir eiga nú léttan og góðan
útbúnað til að liggja úti í tjöld-
um. Annars eru básarnir vinsæl-
astir og þykja þeir hentugir
fyrir hjón með tvö börn, þar
sem þau geta verið út af fyrir
sig.
Þá var töluvert um það, sér-
staklega í júní, að ýmis þing
væru haldin hér svo sem þing
Sambands Noi'ðlenzkra kvenna,
og 30 ára stúdentar voru hér í
þrjá daga.
ÞYRFTI AÐ LAGA TIL I
KRINGUM HÓTELIÐ.
— Hverjar endurbætur eru
brýnastar við hótelið?
— Það þyrfti að laga í kring-
um húsið, svo að fólk geti stopp
að hér og notið útsýnis og gróð-
urs, en það stendur allt til bóta.
Eins væri mjög æskilegt að
koma upp hér t. d. tennisvelli
og að einhver væri til staðar, er
gæti leiðbeint ferðamönnum og
farið með þeim upp á Súlur og
Vindheimajökul, en þar er nóg-
ur snjór allt árið um kring og
ekki nema tveggja stunda ferð
með kunnugum manni.
— Hvað viltu svo segja að
lokum?
— Starfið hér hefur gengið
ágætlega og engar kvartanir
komið. Þetta er guðdómlegur
staður og ég hef kunnað vel við
mig hér. Að lokum biðjum við
hjónin fyrir kveðju til þeirra
Akureyringa, er við höfum
kynnzt. H. Bl.
Nýtt embætti stofnað
NÝLEGA var auglýst eftir for-
stöðumanni svonefndrar skatta-
rannsóknardeildar, sem er ný
stofnun og starfar á vegum
ríkisskattstjóra. Á hlutverk
hennar að vera rannsókn á bók-
haldi fyrirtækja í sambandi við
skattframtöl, þegar skattayfir-
völd óska eftir henni.. Er um-
sóknarfrestur útrunninn, og
sótti aðeins einn um starfið,
Guðmundur Skaftason lögfræð-
ingur Akureyri, en hann hefir
einnig próf í viðskiptafræðum.
Hefir Guðmundur verið ráðinn
í starfið. Hann hefir nokkur
undanfarin ár rekið hér lög-
fræðiskrifstofu, er annast hefir
bókhald, endurskoðun og fast-
eignaviðskipti. Er Guðmundur
ötull starfsmaður og vel að sér
í sínum greinum.
- FIMM KYR ...
(Framhald af blaðsíðu 8).
komast að faðerninu. Móðirin,
Skjalda, var héðan og að mörgu
leyti góð kýr líka. Bleik var
lógað 1960. Hún átti átta kvígur.
Sex lifðu, ein drapst í fæðingu
og sjálfur drap ég eina og sé
eftir því enn.
— Hvernig ferðu að því að fá
svona mikla mjólk úr kúnum?
— Það er eitt, sem ég álít, að
Páll Zophaníasson hafi sagt af
viti. Og það er, að ekkert sé of
gott handa geldu kúnni. Það er
ekki nóg, að kýrin sé feit, þegar
hún ber. Hún má heldur ekki
leggja af eftir burð, ef hægt er
að koma í veg fyrir það. Ef
heyið dugar ekki, gríp ég til
fóðurbætis og gef nokkuð mikið
af honum, frá 2, 3, 4 og mest
upp í 5 kg. Ég held kúnum
veiti ekki af þessu og ég fæ
meiri og feitari mjólk síðan. Ef
það er art í kúnni, þá borgar
hún þetta.
— Hvað verður kýr að mjólka
mikið yfir árið, til að þú látir
hana lifa?
— Það veltur allt á því,
hvernig farið er með hana. Ég
veit svei mér ekki nema ég
hafi drepið kýrefni hér á árun-
um, af því að ég fór ekki rétt
með þær. Ef menn fara ekki vel
með kýrnar, er ómögulegt að fá
þær beztu fram. Ég held til
dæmis, að jafn góðar kýr geti
verið annars staðar, en það sé
ekki farið nógu vel með þær.
Það má enginn taka þetta svo,
að það sé fyrsta flokks fóðrun
hjá mer enn. Það koma tímar,
sem ég lendi í hraki með þær.
Það veltur svo ákaflega mikið á
högunum.
— Segðu mér að lokum:
Hvað áttu margar kýr og hve
margar undan Bleik?
— í sumar eru kýrnar 16 og
14 þeirra undan Bleik gömlu.
Þegar ég keypti, voru tvö kyn
hérna. Annað er að eyðileggjast
og nú er aðeins ein kýr eftir af
því. H. Bl.
MALBIKUN
NÚ í VIKUNNI var torgið aust-
an og norðan við Landsbankann
malbikað, en að því verður mik-
ill þrifnaður í vætutíð.
Franskir vísindamenn skjóta
tveim eldflaugum á loft frá Mýr-
dalssandi með fárra daga milli-
bili til rannsókna í háloftum, og
tókst ágætlega.
Nýstofnað flugfélag í Vest-
mannaeyjum fær 11 manna flug-
vél, er hlýtur nafnið Helgafell.
75 ára afmæli bændaskólans á
Hvanneyri haldið hátíðlegt.
Vísitala ágústmánaðar óbreytt
frá næsta mánuði á undan, eða
163 stig..
Gamalt íbúðarhús í Sandgerði,
sem ekki var búið í, brennur.
Grunur leikur á að unglingar
hafi viljandi eða óviljandi verið
valdir að honum.
- MULAVEGUR
(Framhald af blaðsíðu 1).
beggja megin Ófærugjár mun
vera nálægt 1 km. Við nálgumst
nú óðfluga Flagið svonefnda, en
frá því að gjánni er erfiðasti
kaflinn á allri leiðinni, mest-
megnis sprengingar á klettum
og klöppum. Ég vil gjarna geta
þess, að út í Múlann er stöðug-
ur straumur af fólki, einkum
fyrir helgar, sem kemur þangað
af forvitni og til að njóta útsýn-
is, sem þar er fagurt. En slíkar
heimsóknir flýta ekki verkinu,
er mér óhætt að fullyrða.
— En þarf margar brýr á
þessari leið?
— Á henni verða tvær all-
stórar brýr, yfir Torfgil Dalvík-
urmegin og Brimnesá Ólafsfjarð
armegin. En til þeirra koma sér-
stakar fjárveitingar, — væntan-
lega úr brúarsjóði, en ekki tekið
af vegafé. Hinsvegar þarf að
byggja mörg ræsi á leiðinni, sem
beint tilheyra vegagerðinni og
reiknast henni.
— Hve mikil upphæð hefir
fengist í veginn í sumar?
— Heildarupphæð mun vera
rúrnar 3 millj. kr., en af því fer
talsverð upphæð í afborganir og
vexti auk annars kostnaðar í
sambandi við verkið utan þess,
sem unnið er á staðnum. Til
vegaruðningsins beint mun upp-
hæðin vera á milli 2 og 2,5 millj.
króna. Verður unnið fyrir þá
upphæð í veginum í sumar og
haust, svo framarlega að tíðar-
farið geri okkur það mögulegt.
SKÍÐAHÓTELIÐ HLÍÐAR-
FJALLI. Opið daglega fyrir
gistingu og greiðasölu. Borð
og matpantanir í sima um 02.
— Hótelstjóri.
FERÐIR
í VIKU
BESIMA LEIÐ
TIL
LONDON