Íslendingur


Íslendingur - 14.08.1964, Page 8

Íslendingur - 14.08.1964, Page 8
Verðlar.nasysturnar fimin: Sokka, Dinnna, Doppa, Huppa og Ósk. — Ljósmynd: S. B. Fiinm kýr undan sömu kú - og allar feiiffu 1. verðl. ÍSLENDINGUR 50. ÁRG. . FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1964 . 33. TBL. | Hvers vegna þegir Framsókn | i;m hæstu útsvörin? Á Húsavík geta menn séð, hvernig vinstri samvinnan er í verki Spjallað við Sveinbjörn bónda Níelsson á Skáldalæk í Svarfaðardal VIÐ höfðum komizt á snoðir um, að bóndi einn í Svarfaðar- dal, Sveinbjöm Níelsson á Skáldalæk, hefði sent 8 kýr á nautgripasýningu í sumar og allar fengið I. verðlaun. Fimm þeirra voru undan sömu kúnni. Þá átti hann og hæsta meðal innlegg á kú í Mjólkursamlag- inu. En eftir kúabókum Svein- bjarnar fengust 55.138 lítrar úr 11,9 kúm s.l. ár. Meðalfita var 4,15% og fitueiningar 228.913. Hæstu nyt hafði Dimma, 5.684 lítra og 24.612 fitueiningar og 1962 5.694 lítra og 26.937 fitu- einingar. Meðalnyt systranna fimm var 4.582 lítrar þrjú s.l. ár. Þegar við komura að Skálda- læk var Sveinbjörn bóndi að leiða bolakálf inn í fjósið. Við buðum gott kvöld og sagði hann, að hann héti Brandur og væri undan sjöttu systurinni, Von, er hann hafði misst um veturinn. Var hann ráðinn í að fá þrjár — fjórar kvígur undan Brandi, en gallinn á honum væri, að hann hefði of mikið úr pabba sínum, Fylki, sem hefði verið of mjór. Er við höfðum skoðað fjósið, bjart og hreinlegt, og heilsað upp á systurnar fimm, Sokku, Dimmu, Doppu, Huppu og Ósk, bauð Sveinbjörn okkur til stofu, þar sem kona hans, Erla Stefánsdóttir, tók á móti okkur og bauð okkur velkomna. — Ég vatt mér beint að efninu: — Hvað hét móðir systranna og hvað geturðu sagt mér um ætt hennar? — Hún hét Bleik og þegar ég keypti Skáldalæk, 1949, var hún ársgömul kvíga. Hún var sæðis- kálfur, en dagbækurnar eru týndar, svo að ómögulegt er að (Framhald á blaðsíðu 7). Í.B.A.-KEFLAVÍK Á SUNNUDAGINN fer fram bæjakeppni í knattspyrnu hér á íþróttavellinum milli Akureyrar og Keflavíkur, ef forföll ekki hamla, og hefst kl. 4. FRAMSÓKNARMENN og kommúnistar verja nú mik- illi prentsvertu til að fárast yfir háum útsvörum og órétt- læti valdliafanna. Svo fyrir- ferðamikil sem þessi skrif eru kemur það mjög á óvart, að hvergi er einu orði minnst á útsvörin, þar sem þau eru hæst, — eða á Húsavík. ÞAR ER enginn aukafrádráttur vegna sjómanna, sem er verulegur t. d. hér á Akureyri. ÞAR ERU fjölskyldubætur ekki undanþegnar útsvarsálagn- ingu. Hér á Akureyri eru allar bætur almannatrygginga undanþegnar útsvarsálagningu. ÞAR ERU öll útsvör hækkuð um 5% og þannig færð svarsskrána. Hér á Akureyri er veittur 5% afsláttur. út- Lílið er sðltað al síldinni i UM helgina síðustu var heildar- afli síldar fyrir Austur- og Norðurlandi á vertíðinni orðinn rúml. 1,6 millj. mál og tunnur (á sama tíma í fyrra rúml. 865 þús.). Söltunin var nú tæpl. 162 þús. tunnur (í fyrra 340, 6 þús. tunnur). Bræðslusíld hafði borist mest á eftirtalda staði: mál Raufarhöfn 321886, Siglufjörður 229276, Seyðisfjörður 223053, Neskaupstaður -200288, Vopnafjörður 163405. Þá. höfðu á sama tíma boi 79904 mál í Krossanes en 30708 á Hjalteyri. Síldina þa'rf að sækja langt austur í haf, allt að sólarhrings “ siglingu hvora leið, svo að lítið af henni er söltunarhæft, þegar “ komið er að landi með aflann. Er það aðalorsök þess, hve sölt- unin er nú miklu minni en í fyrra. ÍSLENDINGUR | kemur næst út 21. ágúst, og 5 verður það síðasta blað fyrir sumarleyfi, er væntanlega lýkur ZS um miðjan september. Á HÚSAVÍK er því með öðrum orðum neytt livers færis við útsvarsálagninguna, enda munu Húsvíkingar nú skegg- ræða sín á milli, hvort ekki væri unnt að fá lögfræðing kaupfélagsins til að telja fram fyrir sig næst, en það greiðir ekki einn einasta cyri í útsvar. Rétt er að taka fram, að Söltunarstöð KÞ greiðir 1.300 kr. — eitt þúsund og þrjú hundruð krónur — í útsvar, svo að það er ekki að furöa, þótt Karl Kristjánsson kvarti yfir því á Alþingi, að kaup- félögin séu þrautpínd með nýju útsvarslögunum. ÞAÐ ER þó ótalið, sem verst er. Allt gerist þetta á sama tíma og framkvæmdir kaupstaðarins dragast saman. Fram- lag til bæjarhússins var fellt niður í ár, framlag til félags- heimilis skorið niður um helming og gatnagerðarfram- kvæmdir eftir því. Engar áætlanir eru uppi um varanlega gatnagerð, svo sem í flestum öðrum kaupstöðum landsins. Þessu una Húsvíkingar verst. Þeir eru sem aðrir fslending- ar fúsir að leggja mikið af mörkum, en það verður þá að koma einhversstaðar fram. ' SVO ERU Framsóknarmenn og kommúnistar að tala um sukk í bæjarmálum! IIIHlHlIIIIIIIIIllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIimiIIIIIIIIIIIIIIIIIIBII Fjölhæfur lislamaður opnar sýningu á Akureyri Er í senn listmálari, myndböggvari, tónskáld, ljóðskáld og rithöfundur LISTMÁLARINN, Magnús Á. Ámason opnar í dag sýningu 62ja olíumálverka í Landsbankasalnum, er verður opin til 21. þ. m. kl. 14—22 daglega. Náði blaðið tali af Iistamanninum á þriðjudaginn og forvitnaðist um sýningu hans hér og listferil Þetta er Bleik gamla. — Fimm kýr undan henni fengu I. verðlaun á nautgripasýningu. Sjálf komst hún aldrei á slíka sýningu og ekki sjötta systirin, Von. — Ljósmyndir: S. B. FRA ÍSLANDI TIL MEXICO. — Hvar eru flestar myndirn- ar á sýningu yðar málaðar? — Þær eru nokkuð víða að, allar málaðar á árunum 1963 og 64. Margar þeirra eru málaðar nú í sumar á svæðinu kringum Hljóðakletta upp af Axarfirði. Nokkrar eru úr Skagafirði, m. a. úr Málmey. Aðrar úr Barða- strandarsýslu, Þingvöllum og víðar af landinu. Einnig nokkr- ar frá Mexico og Frakklandi. —”T^I Allar myndirnar verða til sölu og kosta 3000—3500 kr. Og all- ar eru þær í sömu stærð, 38x46 sm. Héðan mun ég fara til Húsa- víkur og sýna þar. — Hyggið þér á að mála hér í nágrenninu? — Ég hef verið beðinn að mála mynd af Hraundröngum í Öxnadal, og sjálfan langar mig til að skreppa í Svarfaðardalinn, þar sem látið er mjög af nátt- úrufegurð. SÝNDI FYRIR 9 ÁRUM. — Þér hafið sýnt hér áður að okkur minnir? — Já h'klega 5 eða 6 sinnum, síðast fyrir 9 árum. Líklega hef ég fyrst sýnt hér á árunum 1938—40, og samsýningu höfð- um við hjónin hér árið 1948 eftir dvöl í Grímsey, og voru myndir þaðan uppistaðan í þeirri sýningu. — Hvar hafið þér sýnt síð- ast? — Á Listahátíðinni í vor átti ég eina höggmynd, en í fyrra tckum við hjónin þátt í samsýn- ingu í Mexico, er við dvöldum þar. Þar skrifaði ég eftir beiðni grein um íslenzka myndlist í dagblaðið Excelcior, og var hún (Framhald á blaðsíðu 5).

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.