Íslendingur - 08.01.1965, Side 8
51. ÁRG. . FÖ5TUDAGUR 8. JAN. 1965 . 1. TBL.
<j>
f
ÞRATT FYRIR mikla fannadyngju og erfiðar samgöngur r bænum á nj'ársnótt, var þeirri
gömlu venju fylgt að skjóta sólum og flugeldum á loft, er kirkjuklukkur landsins hringdu £
nýtt ár í garð. — Ljósmynd: K. Hjaltason. %
Ólafsfjarðarkaupstaður 20 ára
Munkarnir á Möðruvölium
frumsýndir 21. janúar
Leikstjóri er Ágúst Kvaran
MUNKARNIR á Möðruvöllum eftir Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi verða frumsýndir 21. janúar n.k. en þá verða 70 ár liðin frá
fæðingu skáldsins. Leikstjóri er Ágúst Kvaran, en hann lék sem
kunnugt er príorinn, er leikritið var frumsýnt í Reykjavík 1926 og
einnig hér á Akureyri 1928.
VIÐAMIKIL SYNING
Jóhann Ogmundsson gat þess
m.a. við blaðamenn sl. sunnu-
dag, að í sumar hefði verið
ákveðið, að LA sýndi leikrit
Davíðs skglds Stefánssonar,
Munkana frá Möðruvöllum.
Leikfélagið hefði verið svo hepp
ið, að Ágúst Kvarau tók að sér
leikstjórn, en hann er bezti leik
húsmaður Akureyrar, sagði Jó-
hann. Og ógerningur hefði ver
ið að setja verkið á svið án
þess að kunnugur maður væri
að verki.
Ágúst Kvaran leikstjóri ræddi
þá erfiðleika, sem á því eru
að setja svo umfangsmikið verk
á svið, en leikarar eru yfir 20
talsins. Með hlutverk priorsins
fer Jóhann Ogmundson, Ottar
leikur Ólafur Axelsson, Sigrúnu
Þórey Aðalsteinsdóttir og Borg
hildi Jakobína Kjartansdóttir.
Aðrir leikendur eru: Guðmund
ur Magnússon, Hallmundur
Kristinsson, Eggert Ólafsson,
Jón Kristinsson, Árni Böðvars
son, Kjartan Ólafsson, Hreinn
Pálsson, Tryggvi Aðalsteinsson,
Jón Ingimarsson, Karl Tómas-
son, Jón Ingólfsson, Hafsteinn
Þorbergsson, Bjarni Aðalsteins
sön, Björg Baldvinsdóttir, Ingi-
björg Rist og Þórhalla Þorsteins
dóttir.
Lárus Ingólfsson teiknaði
flesta búninga og leiktjöld
fyrsta og þriðja þáttar en Aðal
steinn Vestmann teiknaði leik
tjöld annars þáttar og málaði
þau öþ. — Leiksins verður nán
ar getið síðar.
VORÐUR FUS
heldur kvöldverðarfund í Sjálf-
stæðishúsinu, Litla sal, í kvöld,
fösludag, kl. 7.15.
Magnús Jónsson, klæðskeri,
flytur erindi um Varðbergsför
og sýnir litskuggamyndir.
Vetrarriki um áramót
ÞREM dögum fyrir áraskiptin
gerði norðanáhlaup með mikilli
fannkomu og setti niður meiri
snjó en komið hefur um mörg
ár á svo skömmum tíma. Sam-
göngur á landi tepptust eða töfð
ust, og ekki var unnt að fljúga
dögum saman. Hátt á 2. hundr
að manna beið á annan í nýári
hér nyrðra eftir flugferð til
Reykjavíkur, og mun ekki að
fullu hafa gréíðst úr fyrri en
allra síðustu daga. Engir mann
skaðar urðu af völdum veðurs
í fyrradag gerði hláku, og seig
þá fönnin vcrulega, og vegir
voru ruddir víða. Hér í bæn-
um voru allar fáánlegar ýtur
og moksturstæki í gangi langt
á nótt fram, og var orðið sæmi-
lega fært um göt'ur í gær.
Ljósmynd: K: Hjaltason.
Fjárliagsáætlunin
SÍÐARI umræða fjárhagsáætl-
unar fyrir Akureyrarbæ árið
1965 verður n.k. þriðjudag kl.
4 e.h. í Landsbankasalnum.
ekki aðeins á sviði sjósóknar og
útgerðarmála heldur og um al-
hliða framfarir á heimaslóðum.
Rafvæðing, sundlaug, hitaveita,
— öllu þessu hafa þeir í höfn
komið fyrir löngu, og nú er
Múlavegurinn þeirra aðalmál,
auk hafnarmálanna, sem ekkert
annað getur skyggt á. Fræðs’.u
málum sínum hafa þeir komið
í gott horf, og byggingar íbúðar
húsa munu vera þar meiri hlut
fallslega en í öðrum bæjarfélög
um.
Fyrsti bæjarstjóri Ólafsfjarð
ar var Þórður Jónson frá Þór-
oddsstöðum, en frá öðru ári cg
til þessa dags Ásgrímur Hart-
mannsson.
íslendingur árnar hinum unga
kaupstað við Eyjafjörð allra
heilla í tilefni þessa afmælis.
Hið unga blað Sjálfstæðis-
manna í Ólafsfirði, ÓLAFS-
FIRÐINGUR, nýtur forustu Lár
usar Jónssonar bæjargjaldkera
(Framhald á blaðsíðu 7).
Góðar flugsamgöngur
við Grímsey
Grimsey í gær: Hér er mikil
aflatregða og ógæftir, lítið ró-
ið og lélegur árangur. Kalla má
snjólaust í eynni, því þótt nokk
ur snjókoma væri síðustu dag_-
ana fyrir áramót, var svo hvasst
að snjórinn fauk að mestu fyrir
björg.
Norðurflug hefur nokkurnveg
inn getað haldið uppi áætlunar
flugi það sem af er vetri og far
ið nokkrar ferðir utan áætlun-
ar. Má því segja, að við búum
við sæmilegar samgöngur.
Heilsufar hefur verið gott í vet
ur. — A. J.
FRÁ LITLU JÓLUNUM í Bamaskó'a Akureyrar 1964.
Hafnarmálin eru þar „mál málanna“
Á NÝARSDAG s. 1. voru 29 ár liðin frá því að Ólafsfjörður hlaut
kaupstaðarréttindi, en fram að þeim tíma hafði hann verið eitt af
sveitarfélögum Eyjafjarðarsýslu.
í tilefni af þessum tímamótum
í sögu hins unga kaupstaðar
gáfu Sjálfstæðismenn í Ólafs-
firði út viðhafnaútgáfu af blaði
sínu Ólafsfirðingi, þar sem saga
kaupstaðarins er rakin, gerð
grein fyrir helztu atvinnuveg-
um bæjarins og framkvæmdum
á hinum liðnu tveim áratugum,
og þó skyggnzt lengra aftur í
tímann. Auk þess rita nokkrir
menn og konur þar minninga-
þætti og frásagnir.
Ástæðan til þess, að Ólafs-
fjörður hlaut kaupstaðaréttindi
á þeim tíma er ekki með öllu
Ijós þeim, er þá voru í vöggu
eða á barnsaldri. En hún var í
stuttu máli sú, að vegna hafn-
leysis var sýnt, að ætti Ólafs-
fjörður að dafna og byggja upp
aðalatvinnuveg sinn — sjávar-
útveginn, var honum nauðsyn-
legt að fá fé til hafnargerðar,
en það lá engan veginn á lausu
í byrjun styrjaldarinnar síðustu
Þá var ekki annarra kosta völ
en leita til sýslunefndar Eyja-
fjarðarsýslu um bakstuðning,
og. var þá sótt um, að sýsian
veitti lántökuheimild og ábyrgð
fyrir væntanlegu láni. Sýslu-
nefnd svnjaði erindinu, og virt
ist þá fokið í flest skjcl. En þá
var gripið til þess ráðs að til-
lögu þingmanna sýslunnar, að
Ólafsfjörður sækti um kaup-
staðarréttindi, en að þeim fengn
um fengju þeir sín HAFNAR-
LÖG sem aðrir bæir og væru
ekki lengur upp á sýslufélagið
komnir. Gekk þetta allt að ósk-
um, og hlaut Ólafsfjörður bæj-
arréttindi svo sem áður segir á
nýársdag 1945.
Ólafsfirðingar hafa löngum
verið kappsfullir athafnamenn,
ÍSLENDINGUR