Íslendingur - 16.09.1965, Page 4
r
BLAÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTKA
Kemur út hvern föstudag. — Útgefandi: KJÖRDÆMISRÁÐ. — Ritstjóri og ábyrgðar-
xnaður: JAKOB ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1, sími 11375. Skrifstofa og afgreiðsia
í Hafnarstræti 107 (útvegsbanlcahúsið) III. hæð (innst). Sími 11354. Opið kl. 10-12
og 13.30-17.30. Laugardaga kl. 10-12. Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri.
Búvöruverð Íiækknr
SVO SEM að líkum lætur eftir þær launahækkanir í flest-
tun stéttum þjóðfélagsins, sem prðið hafa á þessu ári, hækk-
ar allt búvöruverð á þessu liausti. Oeðlilegur dráttur hefur
orðið á ákvörðun þess, sakir hinnar fáheyrðu samþykktar
meirihluta stjórnar Alþýðusarnhandsins a"ð draga fulltrúa
sinn út úr sex-manna nefndrnní, sem allt frá upphafi af-
urðasölulaganna hefur möglunaríaúst átt þar sæti. Því
furðulegri cr þessi uppreisn Alþýðusambandsins, sem á sl.
ári var samkomulag nefndarinnar í betra • iagi, og fengust
þá verulegar leiðréttingar á því misræmi, sem áður var orð-
ið á afkomu sauðfjárræktarbænda og mjólkurframleiðenda,
er hinir fyrrnefndu töldu verufegt spor í rétta átt, þó þeir
viðurkenndu ekki allir, að fulhim jöfnuði væri náð í verð-
lagningu þessara tveggja framjeíðslugréina.
Stjórn Alþýðusambandsins var svo seint á ferðinni með
þessa ákvörðun sína, að í eindaga var komið um verðlagn-
ingu búvörunnar, þar sem ætfazt er til; að bún liggi fyrir
um mánaðamót ágúst og september. Er að sjálfsögðu nauð-
synlegt, að verð á kartöflum liggi fyjrirger þær koma í stór-
um stíljá markaðinn og á kjöjafuijhim fyrir'sláturtíð. Sex-
mannanefndin garnla var nú úr* Teik, þár sém einn aðili
hennar hafði skyndilega lilaupizt undan þeim vanda að
starfa í henni, án þess að bera fram nokkur frambærileg rök,
og átti því ríkisstjórnin ekki annars úrkosta til að bjarga
málinu, en að gefa út bráðabirgðalög um verðlagningu bú-
viiru, sém hún og gerði sl. laugardag.
Þar er svo gert ráð fyrir, að Hagstofan reikni út verðlags-
gruiidviill fyrir afurðaverð til framleiðénda á verðlagsárinu
1965—66, en þriggja manna nefrtd taki svo við verkinu og
ákvarði verð hinna sérstiiku búvara, en sú nefnd skal skip-
uð ráðuneytisstjóra landbúnaðarráðúneytisins, forstjóra
Efnahagsstofnunar og framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs
jandbúnaðarins. Skal svo Framleiðsluráð landbúnaðarins
starfa með nefndinni að verðlagningu landliúnaðarvara á
verðJagsárinu, svo sem það gerði með „Séx-manna nefnd-
inni“ áður.
Hagstofa íslands hefur þegar lokið sínu verki, þ. e. að
reikna út verðlagsgrundvöllinn, en samkv. honum telur hún
hann vera hækkun á afurðaverði til Irænda um 11.2% mið-
að við haustverð 1964 en um 9.4% miðað við það verð, er
gilt hefur síðan í marz sl.
Væntanlega mun þriggja manna nefndin ljúka verki sínu
með svipuðum liraða svo að verð hinna einstöku búvara
liggi fyrir innan skamms.
sus
XJM HF.LGINA var 18. jring Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna Jialdið hér á Akureyri, en jrað sóttu rúmlega hundr-
að manns víðs vegar að af landinu. Tókst jrað í alla staði
hið bezta, en umræður snerust aðallega um menntamálin
og hina ýmsu erfiðleika dreifbýlisins.
Rannsóknar- og upplýsingastofnun Samlrands ungra
Sjálfstæðismanna, RUSUS, hefur unnið mikið starf með
öfltin gagrta varðandi skólamál þjóðarinnar og eru álykt-
anir þingsins byggðar á þeim.
Hiklaust ma telja, að hér sé um mjög merka starfsemi
að ræða, sem á eftir að móta og setja mjög svip sinn á bar-
áttu ungra Sjálfstæðismanna á næstu árum.
Átjánda þiiij
Sambykktir um
1 J
menntamál
EFTIRFARANDI tillaga
frá menntamálanefnd var
samþykkt:
„Átjánda þintg SUS
samþykkir, að í fram-
haldi af þeim umræðum,
sem orðið hafa um
menntamál á þinginu,
verði hiö fyrsta efnt til
ráðstefnu um þann mála-
flokk á vegum ungra
Sjálfstæðismanna, enda
haldi RUSUS áfram at-
hugunum sínum á þessu
sviði.“
(Borin upp af Þóri Ein-
arssyni).
EFTIRFARANDI tillaga
frá Rágnari Kjartanssyni
var samþykkt:
„Þingið beinir því til
stjórnar RUSUS að kanna
gaumgæfilega, hvort eigi
sé framkvæmanlegt að
koma á fót sérstöku lána-
og styrkjakerfi til að auð-
velda dreifbýlisæskunni
að stunda nám fjarri
heimilum sínum.“
VlSNA
BÁLKUR
Stökur.
Síldin snemma sótti heim
svalar íslands strendur,
utan úr fríðum fiskigeim
í fiskimannahendur.
Þó að reyndist gnægðin góð,
glápt var fast á launin,
að eignast meira en mikinn sjóð
er mesta æviraunin.
Tæknibúinn heim í höfn
lileypti allur skarinn.
Vildu fúsir friða Dröfn
og fá sér glas við „barinn“.
Skildi ei þennan skollaleik,
skenimti sér á meðan.
Þegar firðar fóru á kreik,
flýtti ’ún sér héðan.
Ovíst er um auðinn þann,
upp sem skyldi róta.
Kúgun aldrei auðgar mann,
sem óskráð lög vill brjóta.
Mælt við Alexander rektor á
sjúkrabeði:
Jóhannesar sagður sveinn,
sannanlega greindur,
Alexander íturhreinn,
að ættjörð góðu reyndur.
Egó.
lÍl!lIllllllllIII!lIII31111IlllllIIl!!Illlll3III!llll!Ii!IÍI!ini!IllÍlÍIIBI
r
Alyktun 18. þings SUS um
alvinnu- og samgöngu-
má! dreiibýlisins
STEFNA ungra Sjálfstæðismanna í atvinnu- og samgöngu-
málum dreifbýlisins er mótuð með hliðsjón af byggðajrró-
un síðustu ára og lreinist að æskilegri nýtingu fjárfestingar
og auðlinda til lands og sjávar á hinum ýmsu stöðum.
Ungir Sjálfstæðismenn telja að Jdcssu marki megi ná með:
1. Frumkvæði einstaklinga og félaga til athafna.
2. Skipulagningu og gerð framkvæmdaáætlana, er taki
til ákveðinna landssvæða dreifbýlisins í efnahags-, sam-
göngu- og félagsmálum.
Reynslan liefur sýnt, að of Jrvingað Jijóðfélagskerfi getur
ekki komið í stað frjálsra athafna einstaklinga. Á Jtinn lióg-
inn er nauðsynlegt að setja efnahagsþróuninni ákveðin
markmið, sena æskilegt er að ná.
1 svæðisáætlunum skal fjallað um uþpbyggingu atvinnu-
veganna í ákveðnum landshlutum og stefna hins opinbera
mörkuð, m. a. er varðar rafvæðingu, byggingu skóla, sjúkra-
liúsa, nýbyggingu vega, lrafnarframkvæmdir o. s. frv. Mikil-
vægt er að stuðla að myndun byggðakjarna, eins eða fleiri,
á viðkomandi svæði og bæta vegakerfið innan héraðanna
til jreirra. Jafnframt ber að treysta aðalumferðaæðar til
lielztu verzlunar- og samgöngustöðva landsins.
Með tryggari samgöngum skapast auknir möguleikar til
iðnvæðingar og fjölbreyttari Jjjónustu í héruðunum sjálf-
um. Aukna áherzlu ber að leggja á fullnýtingu landbúnað-
arafurða og sjávarafla. Grundvöllur fiskiðnaðar verði treyst-
ur með auknum síldar- og fiskflutningum.
Til þess að fjárhagsafkoma hinna ýmsu staða verði elcki
um of háð misjöfnu árferði og vinnuafl nýtist betur, ber að
stuðla að því, að iðnfyrirtæki fyrir iimlendan markað verði
staðsett í dreifbýlinu. í því skyni má m. a. lrenda á stérstaka
lánsfjárfyrirgreiðslu, skattívilnanir tiltekinn tíma og aukna
iðn- og tæknifræðslu út um land.
iiiHiiiiiiiiiiiiiiniinuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
- FRÁ 18. ÞINCI SUS Á AKUREYRI
(Framhald af blaðsí^u 1).
á verkalýðsmálin, deiluna um
bræðslusíldarverðið og bráða-
birgðalögin um landbúnaðar-
verðið. Síðan ræddi hann horf-
ur í atvinnu- og efnahagsmál-
um, ný viðhorf í utanríkismál-
um og veik svo að •menntamál-
unum, aðalviðfangsefni sam-
bandsþingsins, og komst hann
svo að orði í lok máls síns:
„Menntun er undirstaða fram
fara, vísinda og tækni. En samt
sem áður getur engin mennt
komið í stað manndáðarinnar
sjálfrar. Fyrst og fremst skul-
um við keppa að því, að allir
geti notið sinna krafta, að
manndáðin verði ríkjandi. Við
skulum halda frelsinu á lofti.
Það hefur verið, er og verður
haldbezt.“
Síðan var þingstörfum fram
haldið og lauk sambands-
þinginu síðdegis á sunnudag.
Árni Grétar Finnsson var ein-
róma kjörinn formaður, en aðr-
ir í stjórn: Birgir fsleifur Gunn
arsson borgarfulltrúi, Reykja-
vík, Bjarni Beinteinsson hdl.,
Seltjarnarnesi, Halldór Blöndal
erindreki, Akureyri, Hörður
Sigurgestsson viðskiptafræðing-
ur, Reykjavík, Jón E. Ragnars-
son stud. jur., Reykjavík, Krist-
inn Ragnarsson húsgagnasmið-
ur, Reykjavík, Kristján Guð-
laugsson verzlunarmaður, Kefla
vík, Lárus Jónsson bæjargjald-
keri, Ólafsfirði, Óli Þ. Guð-
bjartsson lcennari, Selfossi,
Ra-gnar Kjartansson framkvstj.
Reykjavík, Sigfús Johnsen
kennari, Vestmannaeyjum, Sig-
urður Hafstein stud. jur.,
Reykjavík, Styrmir Gunnars-
son lögfræðingur, Reykjavík og
Þórir Einarsson hagfræðingur,
Reykjavík.
- GOÐIR CESTIR
(Framhald af blaðsíðu 8).
ráðuneytis Bandaríkjastjórnar.
Kvenhlutverkin leikur Ruth
Brinkmann, en Maurice Warn-
er karlhlutverkin. John Gitt-
ings og Dorothy Millar annast
söng og hljóðfæraslátt.
ÍSLENBINGU^