Íslendingur - 30.05.1974, Page 4
HALLDÓR BLÖNDAL:
Útgefandi: íslendingur h.f. - Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Halldór Blöndal - Auglýsingastióri: Gísli Sig-
urgeirsson - Skrifstofur: Kaupvangsstræti 4, II. hæð,
Akureyri - Ritstjórnar- og auglýsingasímar: 21500 og
21501 - Prentsmiðja: Prentsmiðja Björns Jónssonar,
Hafnarstræti 67, Akureyri. ________________
Unga fólkið kýs
Sjálfstæðis-
stefnuna
Sú staðreynd, að mikill meirihluti ungs fólks kaus
sjálfstæðisstefnuna í nýafstðnum bæjar- og sveit-
arstjórnarkosningum, mun hafa varanleg heilla-
áhrif á íslensk stjórnmál Þeir árgangar ungs fólks,
sem komast á kosningaaldur um þessar mundir og
á næstu árum, eru mjög fjölmennir. Um það bil 40
þúsund íslendingar verða tvítugir á áratugnum
milli 1970 til 80. Augljóst er, að stjórnmálaafstaða
unga fólksins mun ráða úrslitum í íslenskri pólitík
á komandi árum. Þetta fólk hefur nú rétt Sjálf-
stæðismönnum örvandi hönd. Það eru tvímæla-
laust athyglisvérðustu tíðindi kosninganna 26. maí.
Útilokað er að skýra hina stórfelldu fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðismanna á annan veg en þann, að
mikill meirihluti ungra kjósenda hafi kosið sjálf-
stæðisstefnuna. Þetta afsannar með öllu þá fals-
kenningu, að unga fólkið sé vinstrisinnað öfgafólk,
þótt fámennir hópar, sem hafa hátt um sig, hafi
svo viljað vera láta. Þetta merkir, að unga fólkið vill
að ísland sé, eins og nú standa sakir, VARIÐ LAND.
í því efni hefur stefna Sjálfstæðismanna verið skýr
og ótvíræð. Ungir kjósendur hafa því ekki látið
blekkjast af áróðri kommúnista í varnar- og örygg-
ismálum þjóðarinnar og síst því að það sé stefna
Sjálfstæðismanna, að á íslandi verði erlendur her
um aldur og ævi.
Það er ekki vandséð, hvers vegna unga fólkið kýs
sjalfstæðisstefnuna. Það rís öndvert gegn því að allt
mannlíf sé fellt í rígskorðað kerfi, sem stjórnað er
af fámennri klíku í Reykjavík. Það vill persónu-
frelsi, að hver og einn einstaklingur fái svigrúm til
þroska, athafna og til þess að tjá sig og hafa sem
beinust áhrif á umhverfi sitt. Það vill draga úr mið-
stjórnarvaldinu og auka áhrif einstakra sveitar-
stjórna þar sem að auðveldara er að ná til ábyrgra
pólitískra aðila í hverju byggðarlagi heldur en ó-
persónulegs ríkisbákns. Það styður í þessum grund-
vallaratriðum sj álfstæðisstefnuna.
VARIÐ LAMD
Stefna ríkisstjórnarinnar, sem felst í viðræðupunkt
um Einars Ágústssonar við Bandaríkjamenn, er sú
að gera ísland varnarlaust á miðju árinu 1976. Þá
yrði ísland eitt Evrópulanda varnarlaust á sama
tíma sem Sovétmenn stórauka kafbáta- og skipa-
flota sinn á Atlantshafi og ófriðlega horfir í heim-
inum. Það er afdrifaríkt ábyrgðarleysi að taka
þannig einhliða ákvörðun í öryggis- og varnarmál-
um þjóðarinnar. Sjálfstæðismenn hafa einir flokka
gagnrýnt þessa stefnu ríkisstjórnarinnar og vilja
að ísland sé eins og nú standa sakir VARIÐ LAND.
Undir þessa stefnu hefur meirihluti þjóðarinnar
tekið í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum og
með undirskriftum undir áskorunina VARIÐ
LAND. Þessi vilji þarf að koma enn skýrar fram í
næstu alþingiskosningum. — L J.
4 - ÍSLENDINGUR
99
Fólkið vill öf luga forystu
66
- Hugleiðiingar um jboð, sem gerðist i
bæjarstjórnarkosningunum
Úrslitin í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum þurfa engum
að koma á óvart. „Nokkur atriði, sem maður tekur eftir, er það
að fólk vill öfluga forystu, samanber úrslitin í Reykjavík og
svo á Neskaupstað,“ segir Magnús Kjartansson í Vísi sl. mánu-
dag. Aldrei þessu vant hitti iðnaðarráðherra naglann á höfuðið:
Fólk vill öfluga forystu. En hann kærði sig ekki um að bæta við:
30. júní mun koma í ljós, að fólk vill líka öfluga forystu í þjóð-
•nálum. , -
Fyrir bæjar- og sveitarstjórnar
kosningarnar voru festir sam-
mála um, að þær hlytu að mót
ast mjög af viðhorfinu í lands-
málum eins og m. a. kom fram
í dæmalausu kosningaávarpi í
Degi, rituðu af fremsta þing-
manni Framsóknarflokksins
hér í kjördæminu, Stefáni Val
geirssyni. Á þetta sjónarmiö
hafa ýmsir forystumenn Al-
þýðubandalagsins einnig fall-
ist, bæði fyrir og eftir kosn-
ingar. Þess vegna hefur það
vakið undrun, hvernig for-
menn stjórnarflokkanna, Ragn
ar Arnalds og Ólafur Jóhann
esson, hafa brugðist við úr-
siitunum. Þannig segir sá síð-
arnefndi: ,,Ég tel bara rétt að
draga ekki of miklar ályktan-
ir af þessum kosningum í sam
bandi við alþingiskosningarn-
ar.“ Ragnar Arnalds hefur
sagt: „Það er alveg fráleitt að
halda því fram, að úrslitin séu
sérstakt áfall fyrir ríkisstjórn-
ina.“
Þannig farast þessum fyrir-
mönnum Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags orð, eftir að
fyrir liggur, að Sjálfstæðis-
flokkurinn einn hefur hreinan
meirihluta, yfir 50% atkvæða,
í öllum kaupstöðum og kaup-
túnum á landinu! En ætli fólk
ið meti þetta nú ekki öðru
vísi, — fólkið, sem Magnús
Kjartansson viðurkennir, aö
vilji „öfluga forystu.“
Ýmsir ímynda sér, að at-
kvæði muni falla öðru vísi í
alþingiskosningunum. Rétt er
að íhuga hvaða sveiflur urðu
raunverulega á fylgi flokkanna
26. maí sl.
Þeir, sem leíigst eru til
vinstri í hinum ýmsu flokks-
brotum og í Samtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna, halda
dauðahaldi í vinstri stjórnina í
von um að gera landið varnar -
laust. Vafalaust hefur megin-
þorri þessa fólks kosið Alþýðu
bandalagið nú, en aðrir, eink
um Möðruvellingar,' kosið
Framsóknarflokkinn áfram.
Þetta fólk mun hins vegar
kjósa kosningabandalag
Möðruvellinga, Samtaka frjáls
lyndra og vinstri manna og
vinstri jafnaðarmanna við al-
þingiskosningarnar. Tap Fram
sóknarflokksins og Alþýðu-
bandalags er því raunverulega
meira en kosningatölurnar
báru með sér.
Alþýðuflokkurinn beið nú
mesta afhroðið í kosningun-
um. Sumpart var það vegna
þess, að Alþýðuflokksfólk sat
heima, sumpart hefur flokkur-
inn mist traust. Síðustu fréttir
úr þeirra herbúðum benda
ekki til þess, að flokkurinn sé
í endurnýjun lífdaganna, þótt
vera megi, að atfylgi Björns
Jónssonar nægi honum til
þess að eiga áfram, fulltrúa á
Alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn naUt
þess, að hann er eini óklofni
stjórnmálaflokkurinn í land-
inu. Hann naut þess einnig, að
í öryggismálum hefur hann
markað skýra stefnu og er sjá'.r
um sér samkvæmur og í takt
við vilja meirihluta þjóðarinn-
ar. Af þessum sökum fékk
hann nú nýtt fylgi frá Alþýðu-
flokki og Framsóknarflokki.
En einnig var það áberandi,
hversu margt ungt fólk kaus
Sjálfstæðisflokkinn að þessu
sinni. Nýju kjósendurnir eru
búnir að fá nóg af vinstri
stefnunni. Þeir finna, hvernig
efnahagsöngþveitið er smám
saman að þrengja að einstakl-
ingnum í þjóðfélaginu og lama
sjálfsbjargarviðleitni hans og
frumkvæði. Þess vegna finnst
þeim tími til kominn að slá frá
sér og stuðla að öruggri ior-
ystu í þjóðmálum.
Á Akureyri vai sigur Sjálf-
stæðisflokksins einna mestur
á landinu. Hann hefur nú
fimm bæjarfulltrúa af ellefu,
svo að honum nægir samstaða
við einn bæjarfulltrúa af hin-
um sex til þess að mynda á-
byrgan meirihluta um stjórn
bæjarmálefna, eins og heitið
var fyrir kosningar. Vafalaust
á þessi afstaða flokksins mik-.
inn þátt í sigri hans. Akureyr-
ignar eru fyrir löngu orðnir
dauðþreyttir á þeim henti-
stefnuvinnubrögðum, sem
Framsóknarflokknum hefur
síðustu kjörtímabil tekist að
viðhalda í þeirri vissu, að slíkt
hafi þjónað best stundarhags-
munum hans.
í Ólafsfirði jók Sjálfstæðis-
flokkurinn fylgi sitt, þótt hann
missti meirihlutann Og munaði
þó einungis um ellefu manns.
Úrslitin á Dalvík urðu Sjálf-
stæðismönnum vanbrigði. Hins
vegar bætti hanu mjög stöðu
sína á Húsavík og fékk tvo
bæjarfulllrúa og einn í hrepps
nefnd Raufarhafnar. Þar reynd
ist hann vera sterkasta aflíð
gegn Alþýðubandalaginu, sem
mjög hefur vaðið uppi, en
hlaut nú verðugan skell og er
fylgið byrjað að hrynja af því.
í heild hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn stórbætt stöðu sína
í Norðurlandskjördæmi eystra.
Á ofangreindum stöðum hlaut
flokkurinn 2905 atkvæði.
Framsóknarflokkurinn
fékk eitthvað í kring um 2400
atkvæði, en vegna sambræðslu
við aðra flokka verður fylgi
hans ekki greint nákvæmlega.
Fyrir fjórum árum hafði Fram-
sóknarflokkurinn hins vegar
ívið fleiri atkvæði á þessum
stöðum en Sjálfstæðisflokkur-
inn.
Þessi úrslit benda til þess,
að góðar horfur séu á því, að
Sjálfstæðisflokknum auðnist
að fá þrjá menn kjördæma-
kjörna í alþingiskosningunum.
Það er líka í samræmi við úi -
slit bæjarstjórnarkosninganna
í heild. „Fólk vill öfluga fov-
ystu“ og nú stefnir Sjálfstæð-
isflokkurinn að því að fá hrein
an meirihluta í næstu alþing
iskosningum og taka til hend-
inni eftir vinstri stjórn,
Það sem gefur mönnum
trúna á, að þetta megi takast.
er það, að unga fólkið, nýju
kjósendurnir, standa með Sjálf
stæðisflokknum.
Uppgötvaði Lúðvík
skuttogarana?
Engu er líkara oft á tíðum, ef
marka má stuðningsblöð ríkis-
stjórnarinnar, en að Lúðvík
hafi uppgötvað skuttogarana.
Svo mjög rembast þessi mál-
gögn við að telja fólki trú um,
að þeir séu skilgetin afkvæmi
núverandi ríkisstjórnar og sú
atvinna, sem þeir hafa skapað
í sjávarplássum víða um land
Hverjar eru staðreyndir þessa
ináls?
1. f tíð fyrrverandi ríkisstjórn-
ar voru keyptir þrír notaðir
skuttogarar erlendis frá: -
Hólmatindur, Barði og
Hegranes.
2. Reynsla af rekstri þeirra og
efnahagsráðstafanirnar 1968
vöktu ahnennan áhuga fran*.
kvæmdamanna á skuttogara
kaupum.
3. í tíð fyrrverandi ríkisstjórn-
ar var samið uin smíði á 17
skuttogurum: A Spáni, Alc-
Framhald á bls. 5.