Íslendingur


Íslendingur - 19.06.1975, Page 2

Íslendingur - 19.06.1975, Page 2
Sló holu í höggi Gunnar Sólnes sló draumahögg allra kylfinga, þ. e. holu í höggi á fyrsta degi í kcppninni um Gunnarsbikarinn sem haldin var á Jaðarsvelli 12.—15. júní. Það gerðist á 4. braut, sem er par 3 hola 158 metrar. Gunnar er annar maðurinn sem vinnur þetta afrek á Jaðars- vellinum, en Heimir Jóhannsson varð fyrstur til að slá holu í höggi þar fyrir tvcimur árum. Gunnar Sólnes er annar maðurinn, sem slær holu í höggi á Jaðarsvellinum. í stuttu spjalli við Gunnar sagði hann að það væri allt- af „hundaheppni“ þegar maður slægi holu í höggi og völlurinn hefði í raun og veru síður en svo boðið upp á að þetta gerðist. Keppnin var ekki haldin á venjuleg- um flötum og völlurinn ekki eins jafn og hann á að vera. Gunnar sagðist vera búinn að fara 4—5 sinnum á völl- inn á þessu sumri en til skamms tíma hefur tíðarfar- ið norðan lands komið í veg fyrir að golfáhugafólk gæti stundað íþrótt sína. Sagði Gunnar að tíðarfarið hefði gefið golffólki á Suðurlandi mánaðar forskot. Keppnin um Gunnarsbik- arinn er haldin árlega, en hún er haldin til minningar um Gunnar Hallgrímsson tannlækni. Leiknar voru 72 holur með fullri forgjöf. Úr- slit urðu þessi: 1. Konráð Gunnarsson 292 högg netto. 2. Sævar Gunnarsson högg netto. 300 3. Ragnar Steinbergsson 304 högg netto. 4. Arnar Árnason 309 högg netto. 5. Árni Jónsson 310 högg netto. Sviffluga stöðvaði leik KA og ÞÖRS A 17. júní kepptu KA og Þór í knattspyrnu í 3. flokki. — Leiktími var 2x15 mín. og urðu úrslit þau að KA sigr- aði með 2 mörkum gegn 1. I leikhléi var staðan 1-1. Leik- urinn var jafn og sýndu liðin nokkuð skemmtilegan leik. Dómari var Steindór Gunn- arsson. Það gerist ekki oft að það þurfi að stöðva knattspyrnu- leik vegna flugvélarlending- ar, en það gerðist í leik KA og Þórs. Þegar leikurinn stóð sem hæst kom sviffluga með Braga Snædal við stjórn og lenti á vellinum. Lendingin tókst vel og var leiknum hald ið áfram eins og ekkert hefði í skorist strax að henni lok- inni. Á 17. júní var einnig keppt í 4x100 m boðhlaupi kvenna á íþróttavellinum. Þrjár sveit- ir mættu til leiks, frá Þing- eyjarsýslu, Akureyri og Eyja- fjarðarsýslu. Sveit Þingeyinga sigraði með tímann 53.4 sek. Látið matarpeningana endast lengur Strásykur 1 kg. krónur 295.00 Fylgist með vöruverðinu Opið laugardaga frá kl. 9—12 og sunnudaga kl. 10 — 12 f. h. • Hveiti 5 lbs. 236,00. • Sykur 1 kg 295,00. • Tekex 79,00. • Kraftsúpur 65,00. • Kakó Va kg 283,00. • Sultuhleypir 69,00. • Döðlur í pökkuni 67,00. • Tómatsósa 3A 1 290,00. • Vanilludropar % 1 384,00. IVieira vöruval — IVieiri fijónusta HAFNARBÚÐIN Skipagötu 4 — 6, símar 1-10-94 og 2-18-89. Bikarmeistarar í körfubolta Það hcfur ekki farið hátt um það í blöðum að það voru Þórs- stúlkur frá Akureyri sem fóru með sigur af hólmi í fyrstu Bikarkcppni KKÍ í körfubolta. Hrepptu þær þar með Bikar- mcistaratitilinn 1975 og færðu þar með félagi sínu skemmti- lega gjöf á 60 ára afmælinu með því að fá nafn þess skráð fyrst allra nafna á hinn nýja bikar. Á myndinni hér að ofan eru Bikarmeistararnir 1975, talið frá vinstri: Aftari röð: Stein- unn Einarsdóttir, Rósa Þor- steinsdóttir, Ásta Pálmadóttir, Guðrún Hreinsdóttir. Fremri röð: María Guðnadóttir, Þór- unn Rafnar, fyrirliði, og Sól- veig Gunnarsdóttir. Á mynd- inni er líka þjálfari liðsins, Anton Sölvason. Kynnið leikmennina Ahorfandi að leik KA og Leifturs, á dögunum, hafði samband við íslending og kvartaði yfir því, að leik- menn liðanna væru ekki kynntir fyrir leikinn. — Það eru margir ungir leikmenn að koma fram og ég þekkti t. d. ekki nema 3 af leikmönnum KA-liðs- ins. Það ætti ekki að vera mikið verk, né tímafrekt, að kynna leikmennina áð- ur en leikir hefjast, þar sem hátalarakerfi er fyrir hendi á vellinum, jafnvel þó leikurinn sé bara í 3. deild, sagði viðmælandi blaðsins. Weston gólfteppin eru dönsk gæðavara • Nýir lilir. — Ný munstur. • Úr 100 mismunandi litum og 14 tegunduin að velja. • 100% nylon, ull, acryl eða polyster. — Einnig 80% ull og 20% nylon eða polyster. • Enginn afskurður, — tcppin eru pöntuð eftir máli frá Danmörku. • Afgreiðslufrestur 3 vikur til 1 mánuöur. • \y* 1 ••í Weston-umboðið Kaupvangsstræti 4. — Gengið inn frá Skipagötu. Sími 2-29-34. 2 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.