Íslendingur - 29.03.1978, Blaðsíða 5
iðbænum?
eyrarbœjar, skrifar um
n, sem gerð var um fyrri
sta blaði
skotum og portum. Bílaumferð
var allstöðug en hæg (8-10 bíl-
ar á mín.). Háreisti af henni var
hinsvegar mjög mikil. Nokkur
hluti vegfarendanna, sem flestir
voru undir tvítugu, hafði vín um
hönd og var undir áhrifum,
þetta var þó mikill minnihluti.
Við lok dansleikjanna í skólun-
um og í Dynheimum kom
straumur unglinga um miðbæ-
inn ogfórhjááu.þ.b. l-l'/klst.
Áfengisneyslu varð ekki vart
hjá þeim, er þaðan komu.
• Bílum gagngert
ekið að heiman
með áhorfendur
að brottreisu gesta
Sjálfstœðishússins
Nokkur hluti þessa fólks og
þess, er fyrir var í miðbænum,
lagði leið sína að Sjálfstæðis-
húsinu, er dansleikjum lauk
þar. Þeirra á meðal á að giska
25-40 undir 16 ára aldri. Sömu-
leiðis safnaðist þangað allmargt
bifreiða, bæði þeirra, ej áður
voru í miðbænum og eins ann-
arra, er gagngert virtist ekið
þangað að heiman með áhorf-
endur að brottreisu gesta húss-
ins. Tepptist af þessu bílaum-
ferð um Geilsgötu að mestu.
Þegar dyrum Sh. var upplokið
blönduðust gestir hússins
áhorfendahópnum og varð af
mikil þvaga, yfir 200 manns er
mest lét, þar utan dyra og á
Geislagötu. Margir gestanna
gátu illa staðið í fætur sína og
þaðan af síður stýrt þeim. Flest-
ir hurfu fótgangandi frá Sjálf-
stæðishúsinu, trúlega heim á
leið, en allstór hópur gesta og
áhorfenda staulaðist næstu
klukkustund inn á'Ráðhústorg
og var það fullorðið fólk í meiri-
hluta, margt mjög drukkið.
Hafnarstræti var um þetta leyti
lokað fyrir bílaumferð og fá-
mennt var orðið þar af fótgang-
andi. Lögregla var í varðstöðu
við Ráðhústorg. Um kl. 3.00 á
aðfaranótt laugardags voru um
40 manns í miðbænum og tæp-
ur fjórðungur undir 16 ára aldri,
á sama tíma aðfararnótt sunnu-
dags voru tæplega 60 manns í
miðbænum en örfáir undir 16
ára aldri.
Fjöldi og aldursskipting veg-
farenda á föstudagskvöldið
kemur fram í eftirfarandi töflu.
Vegfarendur í miðbæ Akur-
eyrar 17. mars.
Kl. Yngri en 16 ára 16-20 ára 20 ára ag eldri Alls
21.30 41 6 11 58
22.00 15 45 16 76
22.30 18 31 22 71
23.00 31 29 9 69
23.30 19 28 4 51
24.00 14 34 4 52
0.30 6 47 17 70
1.00 69 88 27 184
1.30 43 185 95 323
2.00 40 120 25 185
2.30 18 50 4 72
3.00 7 24 5 36
ígugötu, en slík hugmynd kom fyrst fram fyrir mörgum
tid gæti ef til vill orðið til að bæta ástandið í næturlífi mið
sem tekin er á öskudaginn síðasta. Þá voru óvenjumargir
Þetta var stuttorð lýsing að-
stæðna og atburðarásar í mið-
bænum þessi kvöld. í eftirfar-
andi vil ég fjalla nánar um örfá
atriði.
• Aðfinnsluverðara
hátterni hjá full-
orðnum, heldur en
unga fólkinu
Á stundum voru á þriðja hundr-
að manns undir tvítugu í mið-
bænum. Miðbærinn mun vera
nánast eini samkomustaður
unglinga utanhúss á Akureyri
og ku svo hafa verið í manns-
aldur. Aldurshópurinn 16-18
ára á ekki í mörg hús að venda
að kvöldlagi. Trúlega finnst
mörgum í þeim hópi þeir ekki
eiga samleið nteð sér yngri
krökkum, sem sækja Dynheima
og skóladansleiki. Vínveitinga-
húsin eru þeim lokuð og hinn
frjálsi skemmtanamarkaður
bæjarins virðist hafa takmark-
aðan áhuga áaðskemmta þeim,
sem ekki er hægt að selja áfengi.
Þetta er því landlaus hópur og
hann hittist í miðbænum til þess
að sýna sig og sjá aðra, meðal
annars foreldrakynslóðina
koma úr Sjálfstæðishúsinu. Það
vakti athygli, hve friðsamur og í
raun prúður þessi stóri hópur
var, a.m.k. umrædd kvöld.
Hann sýndi ekki merki skemmd
arfýsnar (flöskubrot undanskil-
in) eða árásargirni, áflog urðu
ekki né illindi, vegfarendur
fengu að fara ferða sinna óáreitt
ir, rúður voru ekki brotnar, bíl-
ar voru ekki skemmdir. Til alls
þessa voru þó ótæmandi rnögu-
leikar; þessi hópur átti miðbæ-
inn cinn. Að þessu leyti voru
umrædd kvöld ekki undantekn-
ing; skemmdarverk í miðbæn-
um, segja kunnugir, eru oftast
óviljaverk. Þessi staðreynd ein
gerir allar samlíkingar við at-
burðina á Hallærisplaninu í
Reykjavík fyrir nokkru að stað-
leysu. Akureyri getur að mínu
viti hrósað happi yfir sínum
unglingum, þrátt fyrir miðbæ-
inn og sumpart einmitt vegna
hans. Þvert á móti, fannst
a.m.k. undirrituðum hann sjá
mun aðfinnsluverðara hátterni
hjá fullorðnum heldur en unga
fólkinu. Þar með skal þó ekki
sagt, að ekkert sé að, og skal
þess nú að nokkru getið:
Á aðfararnótt laugardagsins
voru brotnar a.m.k. 250flöskur
í miðbænum, oft eru þær fleiri.
Brotin skapa hávaða, óþrif,
slysahættu og skemma oft hjól-
barða bíla. I það minnsta einn
unglingur sást skerast illa á
broti. Á það skal bent, að hæfi-
legt ílát undir rusl skortir að
mestu í miðbæinn.
• Áfengi er vand-
meðfarið og það
þarf þroska, sem
margan fullorðinn
skortir, til þess
að nota það
Erfitt var að meta ölvun ná-
kvæmlega, en leitast var við að
telja þá unglinga undir lögaldri,
sem höfðu áfengi um hönd eða
voru sýnilega undir áhrifum.
Lausleg ágiskun er, að saman-
lagt bæði kvöldin, hafi 12-15
unglingar undir 16 ára aldri
sýnilega neytt áfengis, en 40-50
manns á aldrinum 16-20 ára.
Áfengisneysla þessa hóps var
mun meiri á föstudaginn en
laugardaginn og meiri fyrri
hluta kvöldsins en síðari. Stúlk-
ur virtust neyta áfengis meira og
verr en piltar. Áfengi er vand-
meðfarið og það þarf þroska,
sem margan fullorðinn skortir
til þess að nota það. Skv.
áfengislögunum nr. 82/1969 má
ekki selja, veita né aftienda
yngra fólki en tvítugu áfengi
með nokkrum hætti. Þessi lög
Jón Björnsson, félagsmálastjóri
eru ekki haldin og ófáir hafa
orðið til þess að brjóta þau án
stórrar iðrunar. það er hins-
vegar ömurlcg tilhugsun, að hér
í bæ skuli vera til nægilega
samvisku- og siðlaust fólk til
þess að útvega sumum barn-
anna í Hafnarstræti áfengið,
sem þau drukku þessi kvöld, því
ekki keyptu þau það sjálf.
Sömuleiðis er ömurlegt, að til
skuli vera heimili hér í bæ og
foreldrar, sem láta afskipta-
laust og virðast áhyggjulaus af
því, að börn, langt innan við
fermingu, séu ein og allsendis á
eigin vegum úti svo lengi næt-
ur, sem þeim sýnist. Útivistar-
reglur heimila unglingum innan
15 ára útivist aðeins til kl. 22.00
um vetur, með undantekning-
um þó. Það er fyrst og fremst
heimilanna að framfylgja þess-
um reglum. Þar sem heimilin
bregðast ætti Iöggæslan að
koma til. Hvorutveggja virtist
ábótavant umrædd kvöld.
• Hvaða skyldur um
þjónustu, fylgja
þeim réttindum, að
fá heimild til að
aka leigubíl
Þegar dansleikjum lauk í Sjálf-
stæðishúsinu varð sem fyrr
greinir mikil þvaga fyrir dyrum
úti. Margir voru þar mikið
ölvaðir og vart fótafærir. Engu
að síður urðu þeir að staulast
fótgangandi á brott í stórri
hættu á að detta eða að á þá yrði
ekið. Vafalaust töfðu margir
lengur í miðbænum en ella ein-
faldlega vegna þess, að þeiráttu
ekki farkosta völ. Leigubílar
munu vera torfengnir, einkum
er á líður nóttina. Afgreiðsla
stöðvarinnar er lokuð hluta
nætur, sem er afar óheppilegt.
Að fá heimild til þess að aka
leigubíl og reka bílastöð eru
réttindi, hvaða skyldur um
þjónustu fylgja þeim réttindum?
Þess var getið, að háreisti hafi
verið mikil í miðbænum. Það
voru hróp og köll unglinga,
söngur og glaumur drukkins
fólks, flöskubrot en ekki hvað
síst hávaði frá umferð vélknú-
inna farartækja, lítt hljóð-
deyfðra bifreiða, vélhjóla og
flautur, sem þeyttar voru án til-
efnis og afláts. Gekk þetta allt
kvöldið og lengi nætur.
• íbúum miðbœjar-
ins hefur fcekkað
á undanf örnum
árum
í miðbænum býr allmargt fólk.
Sé aðeins talið það íbúðarhús-
næði, sem liggur að þeim göt-
um, þar sem háreistin er mest,
bjuggu þar 1. des. sl. u.þ.b. 270
manns eða rúm 2% íbúa á Akur-
eyri. Fyrir átta árum aðeins eða
1. des. 1969 bjuggu 386 manns í
sama húsnæði, sem þá voru tæp
4% íbúa bæjarins. Fátt íbúðar-
húsnæðis hefur verið rifið síðan
á svæðinu. Hér er því um brott-
flutning að ræða, fækkun i
íbúðum og það, að íbúðarhús-
næði hefur verið lagt undir
önnur not. íbúum miðbæjarins
mun ekki vera svefnsamt um
helgar og þeir verða flestir að
þola Iangar vökur, a.m.k. tvær
nætur vikunnar, auk ónæðis af
■umferð og þarafleiðandi reyk-
og rykóþverra um daga. Barna-
fólki er illmögulegt að búa í
miðbænum, útivist ungra barna
er þar hættuleg og langt í örugg
útivistarsvæði. Margir munu
hafa flutt úr miðbænum af þess-
um ástæðum fyrst og fremst.
Aldursdreifing hinna, sem
þrauka þar enn, sýnir Ijóslega
að hér er brottflutningssvæði.
17% íbúanna eru yfir 70 ára, en
á Akureyri í heild eru um 7%
íbúanna á þessum aldri. Börn
og barnafólk er færra en vænta
mætti. Svona aldursdreifing á
byggðasvæði er gjarnan talin
dauðamerki þess. Hver flytur í
íbúðir eldra fólksins þarna. þeg-
ar það fellur frá? í aðalskipu-
lagi Akureyrar er gert ráð fyrir,
að 25% húsnæðis í miðbænuni
sé íbúðarhúsnæði og það er vel.
Áðurlýst skilyrði til búsetu eru
þó vart boðleg, enda sýnir
fækkun íbúa og aldursdreifing
þeirra ljóslega hvert stefnir.
• Þá fyrst tekur
steininn úr
Nýlega stóðu skipulagsyfirvöld
frammi fyrir ákvörðun, sem vel
gæti ráðið úrslitum um búsetu
fólks í rniðbæ Akureyrarogáég
þar við ráðagerð um skemmti-
stað í húsinu Hafnarstræti 100.
Sá skemmtistaður yrði líkt og
gríðarstór hátalari i miðjum'
miðbæjarkjarnanum nteð til-
heyrandi umferðaraukningu.
Skemmtistaðar er þörf, en að
hafa hann einmitt þarna er sér-
deilis ólukkuleg staðsetning,
bæði fyrir þá, sem búa vilja og
búið gætu í miðbænum ogyrði
það enn erfiðara, og eins óttast
ég að sé „ástand“ í miðbænum
nú, tæki fyrst steininn úr við
þessa breytingu. Þakkarvert
væri hinsvegar að koma upp
skemmtistað úti í hinum nýju
hverfum, þeirri þjónustu þarf
að dreifa eins og annarri.
Þakkarvert væri þó fyrst og
fremst, ef settur yrði á laggirn-
ar skemmtistaður, sem stæði
þeim unglingum opinn, sem
eiga nú vart annarra kosta völ
en að hittast í Hafnarstræti um
helgar.
ÍSLENDINGUR - 5