Íslendingur - 15.07.1981, Blaðsíða 4
Útgefandi: íslendingur hf.
Ritstjóri og ábm.: Kristinn G. Jóhannsson
Auglýsingastjóri: Guölaug Sigurðardóttir
Gjaldkeri: Ottó Pálsson
Framkvæmdastj. og dreifing: Haraldur Hansen
Ritstjórn, simi: 21501
Auglýsingar, simi: 21500
Áskriftargjald: kr. 35.00 á ársfjórðungi
Lausasala: kr. 5.00 eintakið
Auglýsingaverð: kr. 40.00 dálksm.
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar
Forseti íslands á
Norðurlandi
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, er nú að
Ijúka ferð sinni um austanvert Norðurland.
Forsetinn hefur kbmið víða við og hvarvetna verið
fagnað svo sem verðugt er. í dag lýkur þessari
heimsókn forsetans á Akureyri.
Þaö hefur verið Norðlendingum sérstök ánægja
að hafa forsetann i heimsókn þessa sólskinsdaga
og heimsóknin verið til þess fallin að efla enn þau
tengsl sem er milli þjóðhöfðingja og þjóðar.
í litlu samfélagi sem okkar verða þessi tengsl
nánari en almennt gerist, og persónulegri, svosem
eðlilegt er hjá þjóð sem einatt lítur á sig sem stóra
fjölskyldu. Við Norðlendingar vonum að heim-
sóknin hingað norður hafi verið Vigdísi Finnboga-
dóttur til ánægju með sama hætti og heimamenn
fögnuðu því að fá að taka á móti henni sem Forseta
íslands.
Að loknu landsmóti UMFÍ
Sautjánda Landsmót UMFÍ er nú lokið á Akureyri.
Ekki hefur sennilega í annan tima verið meira
fjölmenni gesta i bænum helden um s.l. helgi þegar
menn giska á að fjöldi þeirra sem heimsóttu bæinn
hafi nálgast íbúana að fjölda.
Það er einsýnt að undirbúningur og framkvæmd
svo fjölmenns móts hefur verið ærið verk fyrir
mótsstjórnina og aðra þá er að unnu. Það er
almennt mál manna að vel hafi til tekist. Ekki aðeins
að mótið hafi farið þannig fram að sæmandi væri
heldur voru einnig unnin þau afrek i íþróttum að
sýnt er að þrátt fyrir allt er öflugt iþrótta- og æsku-
lýðsstarf unnið innan ungmennafélaganna og
þátttakendum í því starfi fer fjölgandi.
Það kjörorð ungmennafélaganna að rækta land
og lýð er sannarlega enn í fullu gildi og er
ánægjulegt að sjá árangur þeirrar ræktunar í
menningarlegum leik og keppni. Það er nýlunda á
þessu landsmóti að nú tóku fatlaðir í fyrsta skipti
þátt. Það er verðugt og sjálfsagt að ungmenna-
hreyfingin gangi fram í því að efla þátttöku þeirra,
sem við fötlun búa í íþróttum og félagsstarfi
yfirleitt. Það er ánægjulegt til þess að vita að
fatlaðir hasla sér nú völl á fleiri sviðum og sýnilegt
að sú umræða sem fram hefur farið upp á síðkastið
um kjör þeirra og vanda i samfélagi hinna fullfæru
ber tilætlaðan árangur á mörgum sviðum. Jafn-
rétti þeirra verður þó ekki afgreitt á einu ári,
sérstaklega helgað þeim, heldur er þetta aðeins
upphaf þeirrar jafnréttisbaráttu sem háð skal til
sigurs. Ungmennafélagi (slands, og þó einkum
þeim sem um framkvæmd landsmótsins sáu nú, er
hér með óskað til hamingju með framkvæmd alla
og þess óskað að hugsjónir þær sem ungmenna-
félögin hafa að leiðarljósi megi enn eflast landi og
lýð til blessunar. _ ...
I
Óhætt er að segja að Akureyri
hafi verið sá staður á landinu
sem augu flestra beindust að
enda mun landsmót UMFI
vera eitthvert mesta íþrótta-
mót sem hér hefur verið haldið,
altént hið glæsilegasta.
Landsmót hófst að morgni
föstudags þess 10. með körfu-
bolta, knattspyrnu og sundi.
Um klukkan 19.00 var safnast
saman í skrúðgöngu við nýju
Iþróttahöllina og haldið niður
Þórunnarstræti, suður Glerár-
götu og síðan gengið inn á
Iþróttavöll Akureyrar þar sem
mótssetning og útisamkoma
var. Tókst hún vel og flutti
margt stórmennið ræður, þar á
meðal frú Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, Pálmi
Gíslason, formaður UMFI og
Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra. Ef eitthvað var hægt
að finna að mótsetningunni á
föstudagskvöld þá var hún of
löng og langdregin en þess ber
þó að gæta, að Landsmót
UMFÍ er einungis haldið
þriðja hvert ár.
Eigi færri en 27 ungmenna-
félög sendu keppendur til
mótsins og munu keppendur
hafa verið kringum 1200. A
einum og sama tíma var keppt
á 8-10 stöðum víðs vegar um
bæinn og tókst mótið í alla
staði frábærlega vel. Aldrei
hefur slík reisn verið yfir
nokkru ungmennafélagsmóti
sem nú og hjálpaðist margt að.
Framkvæmd mótsins var til
fyrirmyndar, íþróttamann-
virki næg og veðrið í heild gott,
sól og blíða. íþróttamót áborð
við þetta er mikið fyrirtæki og
útheimtir mikla vinnu og
mikið fé sem skilar sér
væntanlega að mestu aftur í
aðgöngumiðasölu, o.fl.þ.h. En
ungmennafélagsmótið er orðið
svo stórt og þungt í vöfum að
ótrúlegt er að minni bæjar- og
sveitarfélög ráði við þau ó-
breytt. Allir keppendur er rætt
var við rómuðu aðstöðuna og
framkvæmdina og voru sam-
mála um, að Akureyri væri
ákaflega heppilegur staðurfyr-
ir mót sem þetta.
Það sem hér fer á eftir er
engan veginn tæmandi úttekt á
mótinu heldur verður stiklað á
stóru og minnst á það helsta er
fyrir augu bar á þessu mikla
móti.
Eins og jafnan áður bar
frjálsar íþróttir hæst á Ung-
mennafélagsmótinu og var oft
um mikla keppni að ræða og
frækin afrek unnin.
Fyrsta grein mótsins var
spjótkast kvenna og sigraði
íris Grönfelt UMSB all örugg-
lega með 42.96 metra, sem gaf
félagi hennar 6 stig í stiga-
keppni mótins. Síðan rak hver
greinin aðra, misjafnlega
spennandi en ætíð með mikilli
keppni.
Eins og ávallt á stórmótum
kemur fram afreksfólk sem
stendur öðru framar hvað
árangur varðar og það er þetta
fólk sem lengst verður minnst
síðar. Þetta landsmót er engin
undantekning fyrri móta. Að
vísu var flest þetta íþróttafólk
þekkt fyrir en sigrar á lands-
móti eru ætíð eftirtektarverðir.
Það er ógjörningur að ætla sér
að meta á vogarskálum hversé
öðrum fremri, til þess eru
íþróttagreinarnar of líkar. Það
dylst þó engum er með fylgdist,
að Jón Diðriksson UMSB bar
nokkuð af í karlaflokki frjálsra
íþrótta, a.m.k. í lengri hlaup-
unum sem hann tók þátt í, 800
metra, 1500 og 5000 metra
hlaupi. Hann vann 800 metr-
ana á nýju landsmótsmeti,
1.55,5 mínútur en þó virtist
sem Jón gæti miklu meira en
hann hafði sáralitla keppni.
Keppnin var þó enn minni í
lengri hlaupunum því kappinn
hreinlega kvaddi keppinauta
sína og vann 1500 metrana á
4.06.4 mínútum og 5000 metr-
ana 14.39.6 mínútum og
tryggði félagi sínu þar með 18
stig. En það voru fleiri iðnir við
kolann, Gísli Sigurðsson
UMSS tryggði félagi sínu 17
stig er hann sigraði 110 m
grindarhlaupi á 15.6 sek.
stangarstökk með því að fara
4.30 m og verða annar í 100 m
hlaupi, sjónarmun á eftir Agli
Eiðssyni UÍA á 11.1 sek.
Sannarlega fjölhæfur piltur sá.
Sama má segja um Egil
Eiðsson UIA sem virtist kunna
vel við sig á Akureyrarvelli.
Egill vann 100 metra hlaupið
eins og áður kom fram og 400
metrana á 49.6 sek. sem er
landsmótsmet, var í sigursveit-
im þeirra Austfirðinga í 1000
m boðhlaupi 2.03.8 mín. og
4X100 m (45.3 sek.) og varð
loks fjórði í 800 m hlaupi á
1.58.00 mín. Eftir þessa upp-
talningu getur hver séð að val
mestu afreksmanna er engan
veginn auðvelt. Nafn Vésteins
Hafsteinssonar kom mikið við
sögu í kastgreinunum og Einar
Vilhjálmsson vann eitt glæsi-
legasta afrek mótsins með því
að kasta spjótinu 75.07 metra.
Kári Jónsson HSK stóð vel
fyrir sínu svo ekki sé talað um
Á landsmóti er m.a. keppt í jurtagreiningu og er það íþrótt út af fyrir sig.
4 - ÍSLENDINGUR