Íslendingur - 08.10.1980, Síða 6
íslendingur
Útgefandi:
Ftitstjóri og ábm. :
Augiýsingastjóri:
Gjaldkeri:
Dreifingarstjóri:
Ritstjórn, simi:
Auglýsingar, simi:
Áskriftargjald:
Lausasala:
Auglýsingaveró:
Prentun:
fslendingur hf.
Kristinn G. Jóhannsson
Guólaug Siguróardóttir
Ottó Pálsson
Sigurlína Sigurgeirsdóttir
21501
21500
kr. 3000 á ársfjóróungi
kr. 280 eintakió
kr. 2800 dáiksm.
Prentsmiója Björns Jónssonar
F ylgis-
hrun
Með ýmsu móti hefur verið lagt út af skoðanakönnun þeirri
sem Dagblaðið efndi til á dögunum um hvert væri fylgi
kjósenda við núverandi ríkisstjórn. Þar kom fram að
stuðningsmönnum stjórnarinnar hafði fækkaðsíðan ífebrúar,
er sams konar könnun var gerð, úr 70% niður í 41% nú. Þessi
niðurstaða útleggst af einna mestri bjartsýni í Degi og er
fylgishrunið tíundað þar í leiðara undir yfirskriftinni
„Traustsyfirlýsing" en þó tekið fram til frekara öryggis ,,að
margir kjósendur eru orðnir óþreyjufullir að sjá árangur í
baráttunni gegn verðbólgunni og glímunni við önnur
vandamál í þjóðfélaginu." Þegar nú 30% fylgishrun og auk
þess óþreyja að sjá nokkurn minnsta árangur af störfum
stjórnarinnar gegn verðbólgu og öðrum vandamálum sem að
steðja er talin traustsyfirlýsing sýnist að venjulegir borgarar
verði ofurlítið að fara að endurskoða rökhugsun sínaog sníða
að þessari nýju bjartsýnisstefnu.
Ef nú Dagur og aðrir þeir sem vilja taka að sér að túlka
margrædda skoðanakönnun með sínum hætti vildu hyggja
nánar að er ef til vill rétt að benda þeim á að fram kemur þar
einnig að sögn Dagblaðsins að Framsóknarflokkurinn tapar
3,2% fylgis frá því sem það var við síðustu þingkosningar.
Þetta héti eflaust á máli bjartsýnismanna stóraukið fylgi
Framsóknarflokksins og traustsyfirlýsing á stefnu hans, enda
hefur Stefán Valgeirsson, alþm., komist að þeirri niðurstöðu
að stefna núverandi ríkisstjórnar byggist á stefnumörkun
Framsóknarflokksins m.a. hvað varðar niðurtalningu verð-
bólgunnar. En eins og Dagur getur réttilega er ekki laust við
að fólk sé orðið óþreyjufullt að sjá árangur af þeirri aðferð sem
Framsóknarmenn hyggjast beita í þeim efnum og allt ganga
öndvert við það sem lofað var. FHin svokallaða niðurtalning
enda orðin þess konar skopyrði að enginn tekur mark á lengur
heldur spyrja eins og Framsóknarþingmaðurinn: ,,Hvað er
framundan?" En þegar þeir sem segjast marka stefnuna hafa
ekki hugmynd um hvert stefnir, er ef til vill lítil von til þess að
aðrir hafi svör á reiðum höndum.
Skólabærinn Akureyri
Það fer víst ekki fram hjáneinum á Akureyri um þessar mundir
að skólarnir eru að hefja vetrarstarf sitt. Fjöldi nemenda
flykkist nú í bæinn til framhaldsnáms. Það fylgir ferskleiki
þessu unga fólki og það giæðir lífið í bænum yfir veturinn þótt
ekki sé nema með veru sinni einni, gáska og glaðlyndi.
Akureyri er og verður miðstöð framhaldsmenntunar á
Norðurlandi eystra og raunar Norðurlands alls og fer fjöl-
breytni námsins sem hér er hægt að stunda vaxandi með
hverju ári.
Það sem hins vegar veldur nokkrum áhyggjum er það
hversu Akureyri er raunar illa undir það búin að gegna því
hlutverki sem henni er ætlað í menntakerfinu í fjórðungnum.
He'r er fyrst og fremst átt við það að bærinn er alls ófær um að
bjóða nemendum úr nágrannabyggðum upp á þá aðstöðu í
heimavist og mötuneyti sem nauðsynleg er. Að vísu er
myndarleg heimavist við Menntaskólann en nægir þó ekki
fyrir þann nemendafjölda sem þangað sækir. Mötuneytis M.A.
njóta margir þótt úr öðrum skólum séu. Sé hins vegar litið til
hinna ýmsu sérskóla og verkmenntaskóla er Ijóst að þar er
komið í nokkurt óefni og miklum erfiðleikum bundið fyrir
utanbæjarnemendur að sækja þessa skóla þar sem þeir eiga
ekki neinn öruggan samastað. Það fer því vaxandi nú hin
síðari ár að fólk leitar langan veg út úr fjórðungnum þangað
sem heimavistir eru eða ættmenni, að stunda þar nám sem þó
er boðið upp á'innan umdæmisins.
Þegar hugað er að uppbyggingu Akureyrar sem skólabæjar
er því ekki nóg að byggja upþ kennsluhúsnæði heldurverður
jafnframt að sjá til þess að utanbæjarnemendur geti sótt þá
kennslu er þar fer fram.
Kr. G. Jóh.
Valsmíði s.f.
flytur í nýtt
húsnæði
Trésmíðaverkstæðið Valsmíði
s.f. hefur nú nýlega flutt í nýtt og
rúmgott húsnæði að Frostagötu
6c á Akureyri. Að því tilefni
leitaði blaðið upplýsinga hjá
eigendum fyrirtækisins þeim
Jónasi Sigurjónssyni og Guð-
mundi Kristjánssyni um starf og
framleiðslu.
Fyrirtækið var stofnað 1974
og var Jónas einn af stofn-
endum þess og var i upphafi
keyptur lager og áhöld af
„Valbjörk.“ Aðalverkefni verk-
stæðisins er sérsmíði á innrétt-
ingum alls konar s.s. í eldhús,
baðherbergi o.fl. auk húsgagna-
framleiðslu og ber þar hæst
smíði svefnsófa og sófaborða
sem fara mest á Reykjavíkur-
markað. Þá hefur Valsmíði s.f.
tekið að sér innréttingasmíði
fyrir verslanir.'
Jónas sagði að nú virtist
mestur áhugi á innréttingum úr
eik og þá æði oft litaðri.
Hjá fyrirtækinu vinna nú átta
manns og hefur vinnuaðstaða
öll batnað verulega með til-
komu hins nýja húss sem nú má
heita fullfrágengið nema að
utan.
Smíði hússins hófstárið 1977
og er 570m2 að stærð og má geta
þess að í hinu eldra húsnæði
hafði hver starfsmaður um 35m2
Vetraráætlun
Flugleiða
Vetraráætlun innanlandsflugs
Flugleiða hefst 1. október n.k.
og stendur til loka aprílmánað-
ar. Innanlandsáætlun er í meg-
inatriðum hin sama og í fyrra-
vetur og viðkomustaðir allir
þeir sömu. Sætaframboð verður
einnig svipað. Til flugsins verða
notaðar fjórar Fokker Friends-
hip flugvélar. Þrjár af gerðinni
F-27-200 með 48 sæti og ein
F-27-500 með sæti fyrir 56
farþega. Sú síðasttalda verður
aðallega í flugi milli Akureyrar
og Reykjavíkur.
Ferðatíðni frá Reykjavík á
viku hverri verður að öðru leyti
sem hér segir: Til Akureyrar
verða 25 flug þ.e. þrjár ferðir á
dag fimm daga vikunnar, en
íjórar ferðir á fimmtudögum og
fimm ferðir á föstudögum. Til
Egilsstaða verða ferðir alla daga
og tvær ferðir þriðjudaga, fimm
tudaga og föstudaga. Til ísa-
íjarðar verða tvær ferðir á
þriðjudögum, fimmtudögum,
föstudögum og sunnudögum og
ein ferð aðra daga. Til Húsa-
víkur verður flogið mánudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga,
föstudaga og sunnudaga. Til
Hornafjarðar verður flogið
þriðjudaga, fimmtudaga, föstu-
daga og sunnudaga. Til Norð-
fjarðar þriðjudaga og fimmtu-
daga og til Patreksfjarðar mánu
daga og föstudaga. Til Sauðár-
króks verður flogið mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga og til Þingeyrar
þriðjudaga og fimmtudaga. Til
Vestmannaeyja verða ferðir alla
daga og tvær ferðir mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga.
Eins og undanfarin ár tengj-
ast áætlunarflug Flugleiða til
Akureyrar ferðum Flugfélags
Norðurlands til Vopnafjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Grímseyjar og Siglu
fjarðar. Þá tengjast ferðir Flug-
leiða flugferðum Flugfélags
Austurlands frá Egilsstöðum til
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og
Borgarfjarðar. Einnig tengjast
ferðir Flugleiða víða áætlunar-
bílferðum m.a. á ísafirði og
Egilsstöðum en einnig á Patreks
firði og Höfn í Hornafirði.
í flugferðum til Neskaupstað-
ar verður lent á austurleið á
Egilsstöðum. Ennfremur hefur
Færeyjaflugið á laugardögum
viðkomu á Egilsstöðum í báð-
um leiðum. Á fimmtudögum og
sunnudögum hafa síðdegisferð-
ir til Akureyrar viðkomu á
Húsavík á norðurleið og sömu
daga hafa flugferðir til ísafjarð-
ar viðkomu á Þingeyri á vestur-
leið.
Á því tímabili vetrarins sem
flugvélar Flugleiða fara í árleg-
ar skoðanir er í ráði að leigð
verði 19 sæta Twin Otterflugvél
til að annast flug á leiðum
félagsins. Flugmenn Flugleiða
munu fljúga þessari leiguflug-
vél. Talið er að í heildina muni
skoðanir Fokker Friendship
vélanna taka 3 mánuði.
6 - ÍSLENDINGUR