Íslendingur - 29.10.1980, Qupperneq 2
Fyrsta keppni Bridgefélags
Akureyrar á starfsárinu
Gagnfræðaskóli
Akureyrar
Nú er lokið fyrstu keppni Bridge
félags Akureyrar á þessu starfs-
ári, en það var þriggja kvölda
Thule-tvímenningur.
Að þessu sinni sigruðu þau
Soffía Guðmundsd., og Ævar
Karlesson, eftir góðan enda-
sprett i síðustu umferð, en þegar
síðasta umferð hófst voru þau í
6.-7. sæti, 23 stigum á eftir efstu
pörunum.
Röð efstu para varð þessi:
stig
1. Soffía Guðmundsdóttir -
Ævar Karlesson 391
2. Ragnar Steinbergsson -
Gunnar Sólnes 383
3. Ólafur Ágústsson -
Grettir Frímannsson 379
4. Júlíus Thorarensen -
Sveinn Sigurgeirsson 371
5. Hörður Steinbergsson -
Jón Stefánsson 368
6. Stefán Sveinbjörnsson -
Sigurður Búason 367
7. Páll Pálsson -
Frímann Frímannsson 362
8. Sveinbjörn Jónsson -
Einar Sveinbjörnsson 360
9. Stefán Ragnarsson -
Pétur Guðjónsson 357
10. Arnald Reykdal -
Gylfi Pálsson 354
Spilað var í þremur 12 para
riðlum og var meðalárangur 330
stig. Keppnisstjóri félagsins er
Albert Sigurðsson.
Næsta keppni félagsins er
sveitakeppni, Akureyrarmót,
og eru spilarar beðnir að skrá
sveitir sínar hjá stjórn félags-
ins. Einnig mun stjórnin að-
stoða og leiðbeina við myndun
sveita.
Sveitakeppnin hefst þriðju-
daginn 28. október kl. 20 í
Félagsborg.
„Opið hús“ í Brekkukoti
Það var mikið um að vera á skóladagheimilinu að Brekkugötu 8 s.l. sunnudag. Þá var „opið hús“ og
foreldrar og börn önnum kafin við alls konar leiki og störf. Þá var boðið upp á veitingar. Ljóst er að
fjölbreytt starfsemi fer fram að Brekkugötu 8 en þangað koma börn fyrir eða eftir skólatíma, fá kennslu
og aðstoð við heimanám.
Að sögn forstöðukonunnar, önnur Fíu, eru um 30 börn á heimilinu og annar það ekki eftirspurn, þó
taldi hún að Akureyringar hefðu ekki að fullu áttað sig á starfsemi þeirri sem þar fer fram.
Ánægjulegt var að sjá börn og foreldra vinna saman að ýmsum verkefnum, m.a. skreytingum á
veggjum auk þess sem gestum gefst kostur á að sjá leiklist sem börnin önnuðust.
Lesendur leggja orð í belg
Leiruvegur þolir enga bið
Vegamál eru oft á dagskrá eins
og eðlilegt er, þar sem við erum
svo mjög háð samgöngukerfinu
um hinar dreifðu byggðir lands-
ins. Og ekki mun vandalaust að
standa þar í forsvari fyrir
fjárframlögum til landshlut-
anna, enda er þar oft misskipt
eins og við hér á norðurslóðum
erum vitni að.
Mörgum finnst ganga seint
með vegalagningu yfir Víkur-
skarð. Vegna þess seinagangs
verður hann mörgum sinnum
dýrari en áætlað var í upphafi.
Annars er það áberandi hve
vegir hér austan Akureyrar hafa
dregist afturúr. Það er engu
líkara en þetta svæði sé í svelti
hvað íjármagn ogframkvæmdir
snertir, og hafi verið það um
árabil, hver svo sem ástæðan er.
Það hefur heyrst að ein Eyja-
fjarðar brúin væri að hruni
komin, og vart held stórum
bílum lengur. Þetta eru ljótar
fréttir, og ætti öllum að vera
ljóst, að bygging Leiruvegar
2 - ÍSLENDINGUR
ásamt brú þar yfir, þolir enga
bið. Ég hef heyrt að þá fyrst,
þegar Víkurskarðsvegurinn
væri fullbúinn yrði hafist handa
um Leiruveginn. En verður það
ekki of seint? Eðlilega hefur það
síst verkað hvetjandi á fjárveit-
ingavaldið, að sumir heima í
héraði hafa lagst eindregið gegn
þessari vegalagningu, og talið
að með vegi í gegnum Vaðlareit
muni hann verða fyrir óbætan-
legu tjóni, og hafa haft þar stór
orð um.
En þetta er ekki nýtt fyrir-
bæri, þegar um þjóðþrifamál er
að ræða láta úrtöluraddir ekki á
sér standa.
En það hafa líka heyrst raddir
og þær háværar, sem mæla með
vegi í gegnum Vaðlareit, með
því fengi hann meira gildi sem
útivistarsvæði, og með veginum
skapaðist skilyrði til skógrækt-
ar á stóru svæði sem ekki hentar
til annars. Það yrði auðvitað að
setja það skilyrði að hann yrði
með bundnu slitlagi, ogtraustar
girðingar meðfram. Kannski
eru menn einnig á móti vegi yfir
Leirur og gegnum Vaðlareit af
ótta við að Svalbarðseyri mundi
færast það nærri bænum að hún
„stæli senunni“. Fólk mundi
sækja þangað jafnvel til búsetu.
Þar gæti með tímanum risið
einskonar Kópavogur þeirra
R.víkinga. Vissulega mundi
skapast sá möguleiki með til-
komu vegarins, að hægt væri að
búa á Svalbarðseyri þó vinna sé
sótt í bænum.
Óneitanlega er fallegt bæjar-
svæði umhverfis Svalbarðseyri
og kannski raunhæft að álykta,
að á næstu áratugum muni
verða þar gjörbylting hvað bygg
ingamál varðar, en varla verður
það á næstunni.
En hvað sem því líður, má
ekki ótti við þessa ímynduðu
byggðaröskun né aðrir for-
dómar tefja fyrir framkvæmd-
um Leiruvegar.
A.E.
Gagnfræðaskóli Akureyrar verður 50 ára 1. nóvember
þ.e. á laugardaginn kemur. Þessara merku tímamóta í
sögu skólans verður nánar getið síðar í blaðinu.
„fslendingur“ sendir starfsliði og nemendum skólans
bestu óskir í tilefni afmælisins.
Útgáfustarfsemi Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri
Náttúrugripasafnið á Akureyri
hefur á undanförnum árum
gefið út (eða staðið að útgáfu á)
fjórum tímaritum eða ritaserí-
um þe. Týli Tímarit um náttúru-
fræði og náttúruvernd. Mynd-
skreytt tímarit, ætlað almenn-
ingi og fræðimönnum. Kemur
út tvisvar á ári, um 50 bls. hvert
hefti. Það er gefið út í samvinnu
við Bókaforlag Odds Björns-
sonar á Akureyri, sem annast
um prentun og dreyfingu á því.
Út eru komnir 10 árgangar.
Acta botanica fslandica Tíma
rit um íslenska grasafræði.
Þetta tímarit er arftaki tíma-
ritsins Flóru, sem út var gefið af
Bókaforlagi Odds Björnssonar
á árunum 1963-1968 (alls 6
hefti). Það hóf göngu sína árið
1972 og voru fyrstu þrír árgang-
arnir (heftin) gefin út af Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs í
Reykjavík. Síðan 1975 hefur
safnið séð eitt um útgáfuna og
frá sama tíma hefur ritið verið
prentað beint eftir vélrituðum
handritum. Ritstjóri er Hörður
Kristinsson prófessor.
Fjölrit Náttúrugripasafnsins
á Akureyri. Eins og nafnið segir
er þar um að ræða fjölritaseríu,
sem byrjað var að gefa út árið
1971. Það er fyrst og fremst
ætlað til kynningar á niður-
stöðum rannsókna sem unnar
eru við safnið eða á þess vegum
og kemur því ekki reglulega út,
en að meðaltali hefur þó komið
eitt hefti á ári (alls 10 hefti). Þar
hafa m.a. birst niðurstöður
mengunarrannsókna, sem gerð
ar voru á sjónum við Akureyri
árin 1971-1980.
Ársskýrsla náttúrugripasafns
ins á Akureyri. Kemur að
jafnaði út árlega, fjölrituð (um
10-15 bls.) í stærðinni A5 og
flytur aðeins skýrslu safnsins.
Er til upplag af henni frá 1968
(9 hefti alls). Ókeypis.
Póstfang safnsins er: Póst-
hólf 580, Akureyri.
Þessar fréttir lesum við í
Þjóðviljanum og eru hreint
ekki hlýlegar fyrir blessað
kvenfólkið svona rétt þegar
vetur sest að og næðingar
kaldir og blygðunarlausir
vægja engu sem fyrir verður.
Þetta skilst okkur aðséfyrsti
lekdómur sem birtist á þessu
lekári.
Ktvmnurekendur
klotna.
Þegar við svo lesum þessi
ósköp í sama blaði sama
daginn fer heldur að kárna
gamanið en við vonum þó að
fyrri fréttin eigi engan þátt í
að kljúfa niður atvinnurek-
endur.
Besti punkturinn kom svo
auðvitað í Islendingi og þótti
víst ýmsum sem nú væri
skörin farin að færast upp í
kviðarholið þegar þeir lásu
um þessi fósturlæti í blaðinu.
Aðalfundur
KNATTSPYRNUDEILDAR KA
verður haldinn n.k. miðvikudag 5. nóvember í
Lundarskóla kl. 20.30.
STJÓRNIN.