Íslendingur


Íslendingur - 29.10.1980, Qupperneq 6

Íslendingur - 29.10.1980, Qupperneq 6
Umsjónarmenn: RAGNAR ÞORVALDSSON EINAR PÁLMI ÁRNASON fþróttir Islandsmótið í körfuknattleik, 1. deild - Þór 67 Fram 68 Þórsarar óheppnír í smum fyrsta leik Þá er körfuknattleikurinn kom- inn á stað. Þórsarar léku sinn fyrsta leik í I. deild á laugardag er liðið mætti Frömmurum hér nyðra. Þessi tvö lið eru fyrir- fram talin sigurstranglegust og var því mikið í húfi. Eftir hörku- spennandi leik voru það Framar ar sem hirtu bæði stigin, þeir sigruðu með aðeins eins stigs mun 68 stigum gegn 67. Það var mikið jafnræði með liðunum allan leikinn og ljóst að hvert atvik gæti skipt sköpum. Nokkurrar taugaspennu gætti meðal beggja liðanna, menn voru oft á tíðum of ákafir og því skotanýtingin í samræmi við það. Það síðarnefnda á þó frekar við um Þórsliðið, sem með þeim mannskap sem það nú býr yfir ætti á góðum degi að geta lagt af velli hvaða íslenskt körfuboltalið sem væri. Liðið lék þennan leik án eins síns besta manns Eiríks Sigurðsson- ar. Fyrri hálfleikurinn var engst af mjög jafn eða þar til staðan var 32-32. Þá náðu Þórsarar mjög góðum kafla og voru komnir yrir sex stig 40-34 er flautað var til leikhlés. Af þessum 40 stigum hafði Gary gert 23 og virtust Framarar ekkert svar eiga við góðum leik hans. Hálfleikinn hafa þó örugg lega notað til lausnar varnarað- gerða á hendur Gary. Þetta gekk upp hjá þeim með því að gefa honum aldrei frið og sést það glöggt ef litið er á skor hans í seinni hálfleiknum miðað við þann fyrri. Hann gerði aðeins sex stig og er það aðalorsök fyrir tapi liðsins. Framarar höfðu hins vegar heppnina með sér því þegar um 10 sekúndur eru til loka leiksins og staðan 68-67 fá Þórsarar þrjú víta- skot til þess að gera tvö stig. Sigurgeir, sem ekki var öfunds- verður af hlutskipti sínu, mis- tókst í öllum skottilraununum og Fram sigur því staðreynd. Þrátt fyrir tap í sínum fyrsta leik verða Þórsarar án efa með í baráttunni. Tilkoma þeirra nafna Jóns Héðinssonar og Jóns Oddssonar styrkir liðið til muna og verður gaman að fylgjast með liðinu þegar á líður og samæfingin er orðin meiri. Stig Þórs skiptust sem hér segir, Gary 29, Jón H. 12, Sigurgeir 10, Alfreð 8 og Jón O. 8. Dómarar voru þeir Hörður Tuliníus og Rafn Benediktsson, þeir hafa oft dæmt betur. Hart barist í leik Þórs og Fram á laugardaginn. Uppskeruhátíð sumarsins - hjá yngri flokkum Þórs Annað kvöld, fimmtudag 30. okt. halda Þórsararloka- hóf fyrir 3. og 4. flokk karla og kvennaflokk í Dynheim- um. Veittar verða veitingar og margt verður til skemmt- unar. Kvikmyndaogmynda- sýning frá liðnu sumri, verð- launaafhending og val á knattspyrnumanni ársins í hverjum flokki ásamt Diskó- dansi. Á sunnudaginn 2. nóv. kl. 17.30 verður siðan haldin samskonar hóf fyrir 5. og 6. flokk í Glerárskóla og eru hóf þessi fyrir alla þá sem hafa æft og leikið með í sumar og sér kvennadeild Þórs um veitingar á báðum stöðum og eru allir Þórsarar kvattir til að mæta. Hvað gerir Haraldur Ólafsson á Norðurlandamótinu? Fjórir Akureyringar í landsliðið Um næstu helgi fer fram í Reykjavík Norðurlandamót unglinga í lyftingum. Tíu menn frá hverri þjóð skipa lands- liðin og eru fjórir Akureyringar í þeim hópi, Viðar Eðvarðsson, 6 - ÍSLENDINGUR Haraldur Ólafsson og tvíbura- bræðurnir Garðar og Gylfi Gíslasynir. Íþróttasíðan óskar þeim alls góðs og vonar að þeir færi okkur Akureyringum Norðurlandameistaratitla. íslandsmótið í handknattleik, 2. deild: ÞÓRSLIÐIÐ ÁN STIGA EFTIR SUÐURFERÐ HELGARINNAR Það blés ekki byrlega hjá Þórs- liðinu ) meistaraflokki karla um helgina er liðið sótti höfðu- borgina heim og lék gegn Ármanni og Aftureldingu. Með tvö töp á bakinu varð Þórs- liðið frá að hverfa, tvö töp í stærra lagi, er sýna það að liðið verður að taka sig á í upphafi móts, ef fallbarátta og erfið- leikar eiga ekki að hrjá liðið í vetur. f liðinu eru nokkrir ungir og efnilegir leikmenn sem með meiri reynslu eiga eftir, að láta að sér kveða og yfirstíga þá erfiðleikana er núna í upphafi móts steðja að. Ármann - Þór 19-12 (8-5). Það var ekki fyrr en á áttundu mínútu að Þórsliðið komst á blað og var þar Sigtryggur að verki, með mark úr vítakasti, en þá höfðu heimamenn skorað þrjú mörk. Þórsliðinu gekk afar illa að finna leiðina í netið og er flautað var til leikhlés var þriggja marka munur á liðunum 8-5 Armanni í vil. Er fram í síðari hálfleikinn dróg, jókst munurinn á liðunum og er yfir lauk höfðu Ármenningarnir skorað 19 mörk gegn 12 og haldið öruggri forustu megin- hluta leiksins. Mörk Þórsara skorðuðu: Sigtryggur Guð- laugsson 3, Sigurður Sigurðs- son, Rúnar Steingrímsson og Einar Árnason 2 mörk hver, Sigurður Pálsson, Árni Gunn- arsson og Davíð Þorsteinsson 1 mark hver. Markahæðstir Ár- menningavoru Óskar Ásmunds son 7 mörk og Kristinn Ingólfs- son með 4 mörk. Afturelding - Þór 31-20 (13-10). Þórsliðið byrjaði leikinn af krafti, var ávallt fyrra til að skora og hélt forustunni fyrstu tuttugu mínúturnar, en þá tók að halla undan fæti. Tvö víta- köst fóru í súginn og þau ásamt fleiri mistökum á sama tíma urðu þess valdandi að heima- menn jöfnuðu leikinn og náðu þriggja marka forustu í leikhléi 13-10. Ef Þórsarar höfðu ein- hvertíman gert sér vonir um að jafnaSAikinn voru þær vonir að englpiyrstu fimmtán mínútur síðari hálfleiks. Aftureldingar- menn sköruðu á þeim tíma átta mörk í röð, án þess að Þór tækist að svara, komust í 21-10 og gerðu þá út um leikinn, er endaði með yfirburðarsigri Á föstudagskvöldið léku Þórs- stúlkurnar sinn annan leik í fyrstu deild fslandsmótsins í handknattleik. Þær sigruðu stöllur sínar hjá Haukum í fyrsta leiknum en máttu nú þola tap gegn Víkingum hér heima. Víkingsstelpurnar sigruðu með 18 mörkum gegn 13 eftir að hafa haft sex markaforustu í leikhléi 10-4. Það var fyrst og fremst lélegur varnaleikur Þórsara í fyrri hálfleiknum sem gerði útslagið, hvað eftir annað löbb- uðu Víkingsstelpurnarígegnum vörnina og var það aðeins góðri markvörslu Eddu að þakka að ekki urðu gerð fleiri mörk en raun ber vitni. Síðari hálfleik- þeirra 31-20. Mörk Þórs: Sig- urður Sigurðsson 8 (3v), Árni Gunnarsson 5, Sigurður Páls- son og Óli Jensson 2 mörk hvor, Davíð Þorsteinsson, Rúnar Steingrímsson og Sigtryggur Guðlaugsson eitt mark hvor. Hjá Aftureldingu voru marka- hæðstir: Einar Magnússon 12 (5v), Steinar Jóhannsson og Gústaf Baldvinsson 5 mörk hvor. urinn var mun betri og lék Þórsliðið oft á tíðum mjög vel bæði í vörn og sókn. Þær sigruðu í síðari hálfleiknum með eins marks 'mun eða 9-8. Víkingssigur varð þó ekki um- flúinn enda forgjöfin úr fyrri hálfleiknum allt of mikil. Loka- tölur leiksins urðu Víkingur 18 Þór 13. Hjá Þórsliðinu voru þær bestar Þórunn og Edda í markinu. Mörk Þórs skoruðu: Þórunn 7 (5 víti) Valdís 2 og þær Anna, Þórey, Freydís og Dýr- finna gerðu eitt mark hver. Dómarar voru þeir Birgir Björnsson og Guðmundur Lárusson og stóðu þeir fyrir sínu. Dýrfinna Torfadóttir reynir markskot. Þórsstelpurnar of seinar í gang

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.