Íslendingur


Íslendingur - 30.05.1985, Blaðsíða 2

Íslendingur - 30.05.1985, Blaðsíða 2
2 3$lcudro0ur FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 Síöan í janúar hafa eyfirskar konur unnið aö því að skipu- leggja gróðursetningu þann 19. júní n.k. Takmarkið er að gróð- ursetja eina trjáplöntu á hveija konu í héraðinu. Til að ná þessu takmarki þurfa akureyrskar kon- ur að gróðursetja um 7000 tré. Tilefni gróðursetningarinnar er tvíþætt. í fyrsta lagi er kvennaáratugnum nú að ljúka, og verður gróðursetningin loka- átak kvenna á þessu tímabili. í öðru lagi eru liðin 70 ár frá því að íslenskar konur hlutu kostn- ingarétt og kjörgengi.. Gróðursetningin fer fram í Kjarnaskógi, á því viðbótar- svæði, sem nú hefur verið tengt Kjarnaskógi og nær um Nausta- borgir. Gróðursett verður frá kl. Akureyrskar konur gróðursetja 9.00 til kl. 21.00, og verður end- að með sameiginlegri kvöldvöku á staðnum, ef veður leyfir. Kvöldvakan verður auglýst nán- ar síðar. Það er sérstakur hópur kvenna, sem hefur undirbúiö þessa athöfn, en sjálf gróðursetn- ingin verður að miklu leyti skipulögð af Skógræktarfélagi Eyfirðinga, sem sér um val plantna, staðsetningu og verk- færi, að svo miklu leyti sem tök eru á. Ljóst er þó að verkfæra- skortur gæti orðið tilfinnanlegur, og eru þátttakendur hvattir til að Lögtaksúrskurður Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akur- eyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með, að lögtök geti farið fram fyrir eftir- töldum gjöldum, gjaldföllnum, en ógreiddum: Söluskattur fyrir janúar, febrúar og mars 1985, svo og viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri ára og skipulagsgjaldi af nýbygg- ingum. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 15. maí 1985. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Utboð Tilboð óskast í byggingu 4. áfanga VMA. Áfanginn er 618 fm að grunnfleti ásamt leiðslukjallara 92 fm. Verktaki tekur við útgröfnum grunni og skal skila húsinu í fokheldu ástandi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fulltrúa bygginganefndar VMA, Kaupangi v/Mýrarveg 2. hæð frá 31. maí kl. 16.00 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Forgögn áfhent frá 28. maí. Tilboð verða opnuð á sama stað 10. júní 1985 kl. 16.00. Bygginganefnd Verkmenntaskólans. Konur - Karlar Skólar - Vinnuveitendur ★ Er jáfnrétti karla og kvenna sjálfsögð mannréttindi? ★ Hvenær og hvernig mótast viðhorfin? ★ Eru störf kvenna mannkyninu minna virði en störf karla? ★ Hvers vegna eykst launamunur með aukinni menntun? Handhægar upplýsingar og staðreyndir um misrétti kynjanna. Fræðsluritið Jafnrétti eða hvað fæst í helstu bókaverslunum landsins. Jafnréttisnefnd Akureyrar. taka með sér stunguspaða, þeir sem eiga. Mest verður gróðursett af tveggja ára plöntum, birki, lerki, stafafuru og víði, og má gera ráð fyrir að plantan kosti um kr. 10. Gert er ráð fyrir að á vett- vangi verði unnið í tveggja klukkustunda vinnutörnum, og er tilvalið að stærri hópar not- færi sér þá tilhögun. Starfsmenn Skógræktarfélagsins munu veita leiðbeiningar og afhenda áhöld, þeim sem þurfa. Smærri hópar, 2-10 konur, eða einstaklingar, geta komið hvenær dagsins sem er. Til að auðvelda skipulagningu verkefnisins hafa verið gerðir listar á vegum „Tijáplöntuhóps kvenna”, en í fyrirsvari fyrir hóðinn eru þær Ingibjörg Auð- unsdóttir (sími: 24758) og Margrét Kröyer (sími: 23527). Þessir listar verða látnir ganga á þeim vinnustöðum, þar sem tengiliðir fmnast til að sjá um listana og taka á móti greiðslum fyrir plönturnar. Nauðsynlegt er að taka það fram á listanum hvenær dagsins konurnar kjósa að koma til gróðursetningarinn- ar. Búast má við að flestar mæti til leiks eftir kl. 17.00, og væri því æskilegt að þær, sem geta, kæmu fyrri hluta dagsins. Kon- ur, sem ekki geta mætt í gróður- setninguna, eru hvattar til þess að skrá sig á listana og gefa andvirði nokkurra plantna. Það verða eflaust margar hendur til- búnar til þess að gróðursetja tréin. Konur geta komið í Kjama þótt þær séu ekki á neinum lista og hafi ekki greitt fyrir plöntur. Trjáplöntur verða seldar á út- plöntunarstaðnum í Nausta- borgum. Um mánaðarmótin maí-júní verða sem flestar konur að hafa skráð sig á lista, því í byijun júní þarf tala plantanna að liggja nokkurn veginn fyrir. Tengiliðir þurfa því að skila listum og innheimtum peningum eigi síðar en 8. júní til eftirfarandi aðila: Margrétar Kröyer, Helgamagra- stræti 9, sími 23527, eða Guðrúnar Óskarsdóttur, Staf- holti 18, sími 24012. Nauðsynlegt er að sem flestar konur greiði plöntur sínar fyrir- fram, því ekki er hægt að panta þúsundir plantna án þess að hafa tryggingu fyrir greiðslu. Listarnir verða í Kjarna, þar sem plöntunum verður úthlutað í samræmi við þá. Hópurinn sem að undurbún- ingi hefur starfað hefur beðið blaðið að taka það fram að kvöldvakan, þann 19. júní, er ekki eingöngu fyrir konur bú- settar á Akureyri, heldur eru allar konur velkomnar. TIO Akureyrarsímaskrá komin út í síðustu viku kom út Upplýs- ingarit um Akureyri 1985, sem er símaskrá. Henni var dreift í öll hús á Akureyri um síðustu helgi og verður væntanlega dreift á næstunni um byggðir Eyjafjarðar. Upplýsingaritið kom út í 7.000 eintökum. Fundur hjá Alliance francaise Þriðjudáginn 4. júni nk. mun Pierre Callet frá Paris flytja fyrirlestur í stofu 2 á Möðruvöll- um, raunvísindahúsi Mennta- skólans á Akureyri. Fyrirlestur- inn hefst kl. 20.30 og nefnist L’Islande dans la litterature francaise eða ísland í frönskum bókmenntum. Fyrirlesturinn er á vegum Alliance francaise. Öllum er heimill aðgangur. Að sögn Gunnars Berg, ábyrgðarmanns ritsins hefur gengið vel að dreifa því. Ritið er nú gefið út í fjórða sinn. Nú er það gefið út með leyfi frá Pósti og síma og skv. því mátti einungis ljósrita upp úr þeirri símaskrá, sem er rétt komin út. Þetta þýðir að ekki er hægt að gera neinar breytingar á nöfnum og símanúmerum. Það hefur valdið óþægindum, enda er skráin orðin hálfs árs gömul, þegar hún kemur út. Gunnar sagði að síminn hjá sér hefði ekki stoppað frá því að skráin kom út, því að fólk vildi lýsa óánægju sinni með það að geta ekki gert breytingar á Akureyr- arskránni. Það voru höfð snör handtök við að koma skránni út því að hún kom út sólarhring eftir að farið var að dreifa símaskránni hér á Akureyri. Það vekur nokkra athygli við þetta mál að farið er að dreifa símaskránni hér á Akureyri hálfum mánuði eftir að byijað er að dreifa henni í Reykjavík. Einnig að einungis eru blaðsíður fyrir ný og breytt símanúmer af Stór-Reykjavíkursvæðinu en ekki fyrir Akureyri til dæmis eða aðra staði á landsbyggðinni. GHF Sjötugsafmœli Páll Arason, fyrrverandi öræfa- fari, verður sjötugur 2. júní n.k. Þann 1. júní tekur hann á móti gestum í Smiðjunni milli kl. 15 og 17. Um kvöldið hefur hann opið fyrir vini sína og kunningja í húsi sínu í Bugi í Þúfnavalla- landi. Allir vinir og kunningjar Páls eru velkomnir. GHF Lesendobréf Fyrirspurn til hitaveitustjóra íbúi í fjölbýlishúsi við Tjarnar- lund skrifar: í fjölbýlishúsinu þar sem ég bý, var sameiginleg olíukynding, áður en heitt vatn var leitt í húsið. Með tilkomu hitaveitu var sett upp hemlagrind. Fékk hver íbúð sendan reikning og var gjaldið miðað viö stærð íbúðar- innar. Með breyttu sölufyrir- komulagi H.A. er ætlunin að íbúum fjölbýlishússins verði sendur ósundurliðaður reikning- ur. Ef heildarreikningurinn er ekki að fullu greiddur á eindaga, falla á hann dráttarvextir, sem skiptast á alla íbúa hússins, jafnt þá sem hafa staðið í skilum sem hina sem ekki hafa borgað. Hvers vegna er ekki hægt að senda reikning á hveija íbúð eftir stærð hennar, ef allir íbúar hússins eru sáttir við það fyrir- komulag? Svar hitaveitustjóra: í nýrri reglugerð fyrir Hita- veitu Akureyrar þarf að skilgreina greiðendur varmaorkunnar. Greiðandi er sá einstaklingur eða húsfélag, sem skráð er fyrir mælagrind (mæli) og er ábyrgur gagnvart Hitaveitunni m.a. fyrir greiðslum varmaorkugjalda fyr- ir mæli, óháð fjölda aðila er tengjast honum. Þar sem fleiri en einn aðili er tengdur sama mæli verður að stofna húsfélag eftir þeim reglum, sem kveðið er á um í lögum fjölbýlishúsa frá 31. maí 1976. Húsfélagið sér um innheimtu varmaorkugjalda eins og ann- arra semeiginlegra gjalda við- komandi húss og er ábyrgt gagn- vart Hitaveitunni. Hitaveitan vill engin áhrif hafa á samkomulag aðila um skiptingu varmaorku- gjaldanna. Þegar húsfélag stendur í skil- um, kemur ekki til neins konar innheimta dráttarvaxta af hálfu Hitaveitunnar, óháð stöðu ein- stakra aðila gagnvart hússjóði. Standi húsfélag hins vegar ekki í skilum við Hitaveituna, falla dráttarvextir á húsfélagið eöa hússjóð vegna hinnar ógreiddu skuldar. Hvernig þeim útgjöld- um verður síðan skipt á milli aðila, er framkvæmdaratriöi hvers húsfélags, sem Hitaveitan getur engin áhrif haft á. Til að auðvelda greiðendum veitunnar að stofna húsfélög, mun Hitaveitan afla nafnnúm- era fyrir öll væntanleg húsfélög og veröa þau send út með fyrsta varmaorkureikningi eftir sölu- fyrirkomulagsbreytinguna. Vænta má útsendingar þessa reiknings, síðari hluta júlímán- aöar. • Ein af meginforsendum ákvörðunar um að breyta sölu- fyrirkomulagi veitunnar, var að auka sjálfræöi notendanna. Fyrirspum til Hifa- veitu Akureyrar Ef húseigandi verður á braut í mánuð og skrúfar fyrir hita- vatnsleiðslur, þarf hann samt sem áður að borga fyrir vatniö? Svar hitaveitustjóra: Nýja fölufyrirkomulagið verður þannig að fyrir hvern mínútulítra veröur greitt fast afl- gjald, kr. 300 fyrir mínútu- lítrann. Það gjald verður að greiða mánaðarlega, óháð notk- un. Að öðruleyti verður verðlagt eftir notkun, þannig að ef skrúf- að verður fyrir ofnakerfi og ekk- ert neysluvatn notað, verður að- eins að greiða hiö fasta aflgjald. Má áætla að, miöað viö eðli- lega upphitun, veröi fast aflgjald um 20% af heildarútgjöldum meðalheimilis á ári.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.