Íslendingur - Ísafold

Útgáva

Íslendingur - Ísafold - 24.01.1970, Síða 7

Íslendingur - Ísafold - 24.01.1970, Síða 7
ÍSLENDINGUR-ISAFOLD - LAUGARDAGUR 24. JAN. Í9J& t frá formanni byggingarnefndar, og afhenti það Guðjóni Teits- syni forstjóra Skipaútgerðar rík- isins. Samgöngumálaráðherra gat þess í ræðu s;nni, að nú væri enginn fiskibátur í smíðum er- lendis, en þar eru nú í srníðum þrjú vöruflutningaskip fyrir Eim skipafélagið og hafrannsókna- skip fyrir ríkið. Innanlands eru 23 fiskiskip í smíðum, misjafn- lega stór, og seinna strandferða- skipið. Eftir að Guðjón Teitsson hafði veitt skipinu viðtöku með ræðu, var haldið í Sjálfstæðis- húsið, en þar var boð á vegum samgöngumálaráðherra. Þar tók Jóhann Hafstein iðnaðarmála- ráðherra til máls og fagnaði þeim merka áfanga, sem nú hefði náðst í íslenzkri iðnþró- un. Hann gat sérstaklega Skapta Áskelssonar og lofaði þann dugnað og það áræði, sem Skapti hefði sýnt með bygg- ingu strandferðaskipanna. Var Skapti hylltur af viðstöddum. Bjarni Einarsson bæjarstjóri fór einnig viðurkenningarorðum um dugnað og framtak Skapta Ás- kelssonar, og sömuleiðis gerði Hjálmar R. Bárðarson skipa- skoðunarstjóri. Hér birtast nokkrar myndir, er teknar voru við afhendingu skipsins og í hófinu í Sjálfstæð- ishúsinu. (Myndir: Sæm. G.). LA“ Z SBV6M 358 erðar til ÍGÖRYGGIS, TNEYTNI og INGARGÆÐA, i DEUTZ-vélar fyrir valinu. isins, skipshöfn og Slippstöð- ngju með glæsilegt skip. R .............. II Skapti Áskelsson afhendi Brynjólfi Ingólfssyni, form. byggingarn. strandferðask, Heklu, og hann . . . . . afhendir það síðan Ingólfi Jónssyni, sem síðan PÓSTHÓLF118 RÉTT NIÐURSTAÐA A RÖNGUM FORSENDUM Margir menn, merkir og fróð ir, hafa nú að undanfömu rætt og ritað um þessi síðustu ára- mót, og að sumra dómi áratuga- mót. Um niðurstöður þeirra sem telja nýjan áratug hafinn, ætla ég ekki að fjölyrða, enda vart ástæða til. Rök hafa báðir að- ilar fært fyrir sínu máli, reynd- ar misjafnlega haldgóð. En furðulegastar finnst mér þær á- bendingar, sem gefnar hafa ver ið fólki til glöggvunar, m.a. í Ríkisútvarpinu og í blaðinu Degi. Þar er fólki bent á, að rneð því að taka sér málband í hönd, geti það leiðzt í allan sannleika. Þetta er rangt, og frekar tii þess fallið að villa um fyrir fólki. Á málbandi, sem hefst við núll, hefur hver eining og tugur sinn aðdraganda frá núll inu og er því talan fullnuð, þegar nafn hennar er nefnt. Oðruvísi er þessu farið með tímatalið miðað við Kristsburð. Þar er númer hvers árs sett við upphaf þess og á því eftir að líða til þess að talan sé fulln uð, gagnstætt centimétra, sem er fullnaður þegar hann er nefndur. Fæðingardagur ung- barns í dag gegnir sama hlut- verki og núll á málbandi, og fylgir því mannsaldurinn regl- um tugakerfisins. Sett fæðing- arár Krists er aftur á móti 1, en ekki 0, og hefur því engan aðdraganda í tímatalinu. Til þess að málband mætti teljast hliðstæða tímatalsins, yrði mál bandið að hefjast við töluna 1, og 10 cm t. d. yrðu þá á skilum 10 og 11. Nýr áratugur hefst því ekki fyrr en um næstu áramót, sú niðurstaða er rétt hjá Ríkisút- varpinu og Degi, en byggð á röngum forsendum. Akureyri 14. janúar, Sigurður A. Friðþjófsson. LÆKNI í HLÍÐARFJALL í sambandi við slys það, er nýlega átti sér stað í Hlíðar- fjalli, þá hjó ég sérstaklega eft- ir því í fréttum blaða, að sagt var frá því, að svo heppilega hefði viljað til, að læknakandí- dat hefði verið nærstaddur og getað veitt hjálp. En það er ekki víst, að svo heppilega vilji alltaf til, að læknar séu þarna á skíðum. Það má alltaf búast við einhverjum óhöppum þarna uppfrá, því margir kunna ’ítið að standa á skíðum, og þess vegna er nauðsynlegt að lækn- ir sér þar til staðar um hverja helgi. — Með þökk fyrir oirt- inguna. — Móðir. 637 austur- rísk frímerlíi ókeypís! Þér fáið 637 austurrísk frí- merki ókeypis — í kaup- bæti — ef þér kaupið LUXUS-frímerkjapakk- ann með 973 fallegum, mis munandi frímerkjum og sérútgáfum, á aðeins 600 ísl. krónur, sem er tíu sinn um ódýrara en skv. frí- merkjaverðlistum. — Toll- frjálst. Sendum gegn póstkröfu. MARKENÍIAUS AUSTRIA, Abt. AG, Haberlgasse 72, WIEN, Austria.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.