Íslendingur - Ísafold - 24.01.1970, Side 8
8 ÍSLENDINGUR-lSAFOLD - LAUGARDAGUR 24. JAN. 1970.
I tilefni af evrópska
náttúruverndarárinu 1970
Sú deild Evrópuráðsins, sem
f jallar um auðlindir náttúrunn-
ar og verndun þeirra, hefur sam
þykkt að helga árið 1970 nátt-
úruverndarmálum, og mælzt til
þess að svo verði gert í öllum
aðildarríkjum ráðsins. Af því
tilefni senda Samtök um nátt-
úruvernd á Norðurlandi Út eft-
irfarandi ávarp.
I.
1. Náttúruvemd miðar fyrst og
fremst að varðveizlu hinna líf
rænu auðlinda náttúrunnar
og skynsamlegri og hóflegri
nytjun þeirra, svo að þær geti
haldið áfram að vera arðgæf-
ar um alla framtið.
2. Náttúruvernd er mótíalJin
rányrkju, í hvaða mynd sem
hún birtist, og vill leitast við
að endurskapa þau verðmæti,
sem farið hafa forgörðum
vegna óhyggilegrar notkunar.
3. Tilvera lífsins á jörðunm er
undir því komin að þetla
heppnist.Náttúruvernd er því
allra hagur og a'lir ættu að
geta sameinast um hana,
hvar í flokki sem þeir standa.
Náttúruvernd er framtíðar-
stefna, stefna Hfsins á jörð-
inni.
II.
1. Fáir spilla náttúrunni af á-
setningi, heldur er oírast
skammsýni eða hugsunarleysi
um að kenna. Með uppiýsmg-
um og fræðslu má oft ná
miklum árangri.
2. Stundum eru þó sterkir hags
munir annars vegar. í slikum
tilfellum þarf að leita aðstoð-
ar laganna. Góð náttúruvernd
arlög eru því mikilvæg, en
íslenzk lög um náttúruvernd
eru nú í endurskoðun.
3. Með vísindalegri rannsókn
má oftast sjá fyrir afleiðing-
ar hvers konar ígripa í nátt-
úruna, Hver sem fremur slíkt
ígrip, er því ábyrgur gerða
sinna.
III.
1. Náttúra er flókið sambland
af óteljandi þráðum og þátt-
um, einkum þó hinn lifandi
hluti hennar. Á hverjum stað
og tíma skapast jafnvægi
milli þessara þátta. Þar rem
maðurinn kemur við sögu,
bætist við nýr þáttur og rugl-
ar jafnvægið.
2. Jafnvægi náttúrunnar verður
ekki skilið til hlitar, nema
með nákvæmri og ýtarlegri
rannsókn. Rannsókn náttúr-
unnar er því nauðsynlegur
undanfari náttúruverndar.
IV.
1. Ýmiss konar tilbúin eiturefni
og úrgangsefni frá húshaldi
og iðnaði, ógna nú öUu lífi á
jörðinni. Þau berast með vind
um og hafstraumum heims-
horna á milli og menga 'oft,
vatn og sjó. Ekkert land slepp
ur við þessa ógnun.
2. Þessi hætta er nú orðin mörg
um mönnum ljós, og víða
hafa verið gerðar ráðstafanir
til að minnka hana. Þó er tal-
ið, að hún aukist stöðugt, og
eru inargir uggandi um fram
tíð jarðlífsins af þeim sökum.
Hér hafa náttúruverndar-
menn mikið verk að vinna.
V.
1. Náttúruvernd viðurkennir
rétt mannsins til að byggja
'andið og hagnýta sér gæði
þess, svo framarlega sem það
leiðir ekki til varanlegra
skemmda á landi eða lífi.
2. Þar sem menn hafa búið um
aldaraðir og nytjað náttúru-
gæðin hófsamlega, hefur fyr-
ir löngu skapast nýtt jafn-
vægi, sem maðurinn er sjálf-
ur þáttur í. Jafnvel hús og
önnur mannvirki heyra því
til. Þetta jafnvægi ber að
varðveita, og stefna að því
hvarvetna, þar sem land er
byggt.
3. Hæfilega byggt land er oft
fegurra en óbyggt, einkum
ef landið er annars vel fallið
til búsetu. En það er ekki
sama hvernig landið er byggt.
Hús, brýr og vegi þarf að
gera svo úr garði, að ekki
valdi stórum spjöllum á
landslagi eða heildarmynd
byggðarinnar.
4. Ýmiss konar menningar- og
atvinnusögulegar minjar eru
víða orðnar óaðskiljanltgur
hluti náttúrunnar. 3tuðla ber
að varðveizlu slíkra minja og
heimilda, sem þeim eru
tengdar.
5. Allir menn hafa einhverja
þörf fyrir samvistir við ó-
spillt náttúrufar og sumum
er það hrein lífsnauðsyn. —
Náttúruverndin vill vinna að
því að tryggja öl'um þann
rétt, skipulega og án þess að
leiði til örtraðar á því landi,
sem þeim var ætlað að njóta.
VI.
1. Tæknin gerir nú manninum
kleift að komast til hinna af-
skekktustu og fjarlægustu
staða. Enginn blettur á jörð-
inni eða næstu jarðstjörnum
er því óhultur fyrir honum,
og ígripum hans. Því ber
brýna nauðsyn til að vernda
viss óbyggð svæði með meira
eða minna fullkominni frið-
lýsingu.
2. Slík friðlýsing gegnir því hlut
verki, að varðveita sýnishorn
þeirrar náttúru, sem nú <. r til
á jörðinni, til skoðunar og
rannsókna, yndis og ánægju
þeim, sem síðar lifa á jörð-
inni.
3. í sama skyni ber að forðast
að útrýmt sé tegundum dýra
eða plantna, eða þeim fækk-
að svo að hætta sé á útrým-
ingu.
4. Náttúrufyrirbæri, sem eru
sérstök eða einkennandi fvrir
eitthvert land eða landshluta,
ber að sjálfsögðu að varð-
veita, og sama er að segja um
fyrirbæri, sem eru að flestra
dómi óvenju fögur, eða hafa
mikið vísindalegt gildi fyrir
rannsókn landsins.
5. Allar skemmdir á náttúrunni
ber að forðast, hvar og hve-
nær, sem þær eru fram-
kvæmdar. Beri brýna nauð-
syn til að valda skemmdum á
henni, þarf að athuga vand-
lega, hvort meira vegi,
skemmdirnar og afleiðingar
þeirra, eða það hagræði sem
menn telja sig ná.
6. í slíkum tilfellum verður að
hafa í huga, að skemmdir á
náttúrunni verða sjaldan
bættar svo að gagni komi. —
Þær eru því ævarandi skaði,
en hagræðið oft stundarhagn-
aður.
VII.
1. Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi voru stofnuð til
að vinna að framgangi nátt-
úruverndar i fjórðungnum,
eftir þeim markmiðum, sem
hér hafa verið talin. Samtök-
in eru óbundin og óháð öllum
öðrum sjónarmiðum en þeim,
sem á hverjum tíma teljast
aðalinntak náttúruverndar.
2. Samtökin eru byggð upp af
áhugafólki um allt Norður-
land, og eru öllum opin, sem
vilja vinna með þeim að nátt
úruvernd í þeim anda er að
ofan greinir. Félög og fyrir-
tæki geta gerzt styrktaraðil-
ar samtakanna.
3. Samkvæmt lagauppkasti, sem
lagt verður fyrir næsta aðal-
fund, kjósa félagar í hverju
Lausn á verðlaunakrossgátunni
Krossgátan í síðasta blaði fyrir jól hlaut góðar viðtökur
Iesenda, eins og jafnan áður, og var þátttaka mikil víðs veg-
ar að af landinu. Fyrir stuttu var dregið úr réttum lausnum
um verðlaunin og birtast nöfn þeirra, er þau hlutu, hér að
neðan, ásamt lausninni.
Þannig var krossgátan rétt ráðin:
r™ • R - ET -
_____________ - s /n /3 /? o T
6 8 N P I N U ■ 8 L 'O íYl n /v G /
- 5 /£ R Ð fí ■ m fí U R F> N fí fí F
■ K R '/ fí - 5 B K R / - fí - L fí
■ fí £> F Ö R /< L. fí K ■ 8 K R 'n Þ
f) 5 / fí ■ GPUR‘~RÖR/NU
‘fí L S * 5 fí L mfí U fí & / fí ■ R
■ £ T fí fí L L ■ RONUNGfí/Z
■ / • & U £ fí H ■ F fí N & fíÐ /
■ K fí N N fí Ð / R - R U L. Ðfí -
• / £>H fí ■ / fí U R ■ fí ■ / J
fíR /<fí * GRfíMfíR ■ N'fí N fí
- • / LL fí - R U N fí N ■ 55 5
GÖ N VU L L - R / T fí R / ■ 5
O F N ■ FL £T ■ N fí K / N N ■
* L • 5 5 / / • / N N L 'fí n / N
3 U N l< fí - K'fí L ■ N £ T-S7
■ G O R - "5 / L L U ■ / ■ S T U
M fl T fí ST N ■ U rn s K R 'fí / R
- R fí F T / N N ■ R'O J ■ L - 7
Þ / B-J L - 'fí BÖT ■ ÖCr U R
- J ÖL fí K Ö TT UR/ NN
* Ö R fí T Ö R 7 U m - RG fí
Þ R fí 5 fí • /< N fí L L - fíR
Vísan, sem myndaðist í krossgátunni, er rétt þannig:
Þá mun geyma gömul þjóð,
gullkorn sinnar tungu.
Þegar öldungs lista ljóð
læra bömin ungu.
Og þá koma nöfn þeirra, er verðlaun hlutu: 1. verðlaun,
500 kr., hlaut Sigurpáll Helgason, Ráðhústorgi 1, Akureyri.
2. verðlaun, 300 kr., hlaut Auðbjörg Guðmundsdóttir, Búð-
um, Fáskrúðsfirði. 3. verðlaun, 200 kr., hlaut Hrefna Jó-
hannesdóttir, Laugum, Reykjadal. — Verðlaunin verða póst
lögð. — Blaðið þakkar öllum þeim, sem þátt tóku í þessari
keppni.
héraði þrjá menn úr sínum
hópi í fulltrúaráð. Aðalfund
skal halda árlega, til skiptis
í héruðunum, og er öUum fé-
lögum heimilt að sækja hann
með fullum réttindum. Aðnl-
fundur kýs fimm manna
stjórn, eftir tillögum fulltrúa-
ráðs. Heimilt er að stofna
deildir innan samtakanna.
4. Næsti aðalfundur og fram-
haldsstofnfundur samtak-
anna verður haldinn á Akur-
eyri næsta vor. Auk aðal-
fundarstarfa verður þar fjöl-
breytt kynningardagskrá með
erindum, myndasýningum og
skoðunarferðum.
5. Náttúrugripasafnið á Akur-
eyri hefur látið gera vegg-
myndasýningu um náttúru-
vernd á Norðurlandi, og hef-
ur hún þegar verið sýnd á
Akureyri við góða aðsókn. —
Næsta vor og sumar verður
hún væntanlega sett upp á
ýmsum öðrum stöðum á Norð
urlandi.
vm.
1. Samtök náttúruverndar-
manna á Norðurlandi eru enn
of fámenn og fátæk af fjár-
hlut. Styrkur þeirra er undir
því kominn, að sem allra flest
ir, sem hlynntir eru þessum
málum, sameinist þeim og
sem víðast í fjórðungnum.
2. Ekki verður til þess ætlast,
að allir félagsmenn hafi jafn
mikinn áhuga á öllum þeim
málaflokkum, sem náttúru-
verndin hefur á stefnuskrá
sinni. Minna má þar duga.
Þrátt fyrir það ættu þeir að
geta sameinast okkur og unn
ið þannig að framgangi á-
hugamála sinna.
3. Náttúruvernd kostar einnig
fé. Þrátt fyrir það, að allir
trúnaðarmenn samtakanna
vinni störf sín ó'aunuð, er þó
jafnan einhver kostnaður í
sambandi við ferðir, sam-
skipti við önnur félög, kynn-
ingu, eftirlit o. s. frv.
4. Þess er fastlega vænzt, að
margir verði til að ganga í
samtökin á þessu ári, og að
ýmis félög, félagasambönd,
fyrirtæki og stofnanir, telji
sér málefni samtakanna svo
skyld, að þau vilji gerast
styrkjendur þeirra.
5. Heimilisfang samtakanna er
fyrst um sinn Náttúrugripa-
safnið á Akureyri, pósthólf
580, Akureyri.
Gleðilegt náttúruverndarár.
Tjörn í Svarfaðardal, 7. janúar
1970.
Hjörtur Eldjárn Þórarinsson,
Tjörn.
Árni Sigurðsson, Blönduósi.
Helgi Hallgrímsson,
Vikurbakka.
EgiU Bjarnason, Sauðárkróki.
Jóhann Skaptason, Húsavík.