Íslendingur - Ísafold

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - Ísafold - 24.01.1970, Qupperneq 9

Íslendingur - Ísafold - 24.01.1970, Qupperneq 9
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 24. JAN. 1970. 9 SHELLEY WINTERS BURT LANCASTER kórónar langan og athyglisverðan leik feril sinn með aðal-kvenhlutverkinu í þessari kvikmynd. Frumraun sína þreytti hún í kvikmyndinni „Níu stúlk ur“ 1944, eftir átakamikið en slcammt leiktímabil að Broadway. Hún hefur leikið í hinum merkilegustu kvik- myndum, eins og ,,A Place in the Sun“, „Night of the Hunter“ og „The Big Knife“. Hún hefur hvað eftir ann að verið tilnefnd í sambandi við út- hlutun Oscars-verðlaunanna, og hlot- ið þau tvívegis. leikur hér í sinni 40. kvikmynd, og allar hafa þær hlotið frábærar viðtök- ur. Þegar hann kom til Hollywood fyrir tuttugu og tveinr árum, mælti það eitt með honum, að hann hafði starfað sein fjölleikamaður, en auk þess hafði hann eitthvað það við sig, senr kvikmyndahúsagestum í öllum löndum féll vel í geð, og þessi fyrsta kvikmynd hans gerði hann frægan þegar í stað og hefur síðan verið mjög sótzt eftir honum í hin ólíkustu hlut- verk. OSSIE DAVIS TELLY SAVALLAS kom frá Broadway-leikhúsunum í kvikmyndirnar, en þar hafði hann leikið í „Anna Lucasta", „No Time for Sergent’s“, „Jamaica" og „Raisin in the Sun.“ Auk þess lék hann hlut- verk þar í sínu eigin leikriti, „Purlie Victorious", en það varð orsökin til þess að hann fékk tilboð um að leika í kvikmynd. Kom hann fyrst fram í kvikmyndinni „No Way out“, en þar lék hann með Sidney Poitier. Síðan hefur hann leikið í aragrúa kvik- mynda. leikur aftur með Burt Lancaster í þessari kvikmynd, en þeir léku einnig saman í kviknryndunum „Maðurinn frá Alcatras“ og „The Young Savag- es“, sem hlotið hafa ýmiss verðlaun og viðurkenningu. Savalas hafði starf að við útvarp og sjónvarp áður en hann hóf leik sinn í kvikmyndum. Var hann upphaflega þulur, en hlaut brátt stöðu sem aðstoðarleiðbeinandi hjá sjónvarpsfyrirtækinu ABC, og þar fékk hann líka fyrsta hlutverk sitt í kvikmynd. Bréf sent blaðinu: Skoðanakönnun Lárus Jónsson — Skoðanakannanir eru mjög í tízku um þessar mundir, þaer eru taldar lýðræðislegar og einn ig gefa góða mynd af hugsana- gangi fólks varðandi menn og málefni. En þær eru því aðeins góðar, að til þeirra sé stofnað af fyllsta hlutleysi og samvizku semi. Sé það ekki gert, gefa þær ranga mynd og eru ósann- gjarnar. Það er þvi vandi að framkvæma þær svo vel sé. Það er t.d. ekki sama hverjir eru spurðir álits á því máli, sem skoðanakönnunin fjallar um hverju sinni. Til þess þarf að velja fólk eftir fyrirfram á- kveðnum reglum undanbragða- laust, og ætti aldrei að fara fram skoðanakönnun, án þess að við hana væru eftirlits- og trúnaðarmenn skipaðir af jvið- komandi aðila. Þessum mönn- um ætti að gera skylt að fylgj- ast með því, að unnið væri eftir settum reglum í einu og öllu. Mitt álit er, að skoðanakönnun- um eigi að beita meira en pert hefur verið til þessa og taka til- lit til þeirra við ákvörðun ým- issa mála, t.d. á vegum ríkis og bæja. En forsenda þess, aö þær komi að gagni, er að málið sé a'menns eðlis, en ekki tækni- legt eða alltof fræðilegt, þann- ig, að sérfræðiþekkingu þurfi til að vita hvað rétt er eða rangt á því sviði. Gott efni til skoðanakann- ana er t.d. hvort banná eigi sölu áfengis á Islandi, hvort rik ið eigi að styrkja útgáfu biað- anna meira en gert er, eða ekki neitt, hverjir eigi að vera í efstu sætunum á framboðslist- unum til Alþingis og bæjar- stjórna, og síðast en ekki sízt, um efnisval og fleira í útvarpi og sjónvarpi, og gegnir raunar furðu, að ekki skuli vera leitað meira álits notenda þessara fjölmiðlunartækja en gert hef- ur verið, um það atriði. En það er eins og allt slíkt virðist vera einhver þyrnir í augum ráða- mannanna og þeir telji sig eina eiga að segja til um, hvað er á borð borið fyrir almenning í því efni hverju sinni, og hvern- ig það er matreitt. Þetta mætti vel breytast. Aftur á móti er ekki gott að hafa skoðanakönn- un um málefni eins og hvort fella eigi gengi íslenzku krón- unnar eða hækka það, eða iáta það standa í stað, hvort ísland eigi að gerast aðili að EFTA, hve mikið steypustyrktarjárn þurfi í eina brú til að hún standi undir allt að 80 tonna þunga í einu o. s. frv. Um þessi mál eiga sérfræðingar okkar að fjalla. Skoðanakannanir geta verið góðar og gagnlegar, en til þess að þær nái tilgangi sínum, þarf að vanda til þeirra bæði hvað efni og framkvæmd snert- ir. Fyrir nokkru var skýrt frá því i sjónvarpinu, að bókaútlán hefðu aukizt úr atmennings- bókasöfnum síðan sjónvarpið tók til starfa. Þetta var mjög eftirtektarverð frétt, ekki sízt vegna þess, að ýmsir töldu, þeg ar sjónvarpið var að komast á, að það yrði til þess að bóklest- ur minnkaði að miklum mun. Bókaverðirnir töldu, að útlána- aukningin stafaði af því m.a., að fólk sæi margt forvitnilegt efni í sjónvarpinu og leitaði svo í söfnin til að afla sér frekari fróðleiks um það. Þetta er eins og það á að vera og stefnir í rétta átt, því sjónvarpið er án efa langbezta fræðslutækið, sem við eigum völ á. Og nú nær sjónvarpið til alls þorra lands- manna. Þess vegna vaknar þessi spurning: Hvers vegna eru ekki fluttir fleiri kennslu og fræðslu þættir í sjónvarpinu heldur en nú er gert? Það væri ekki van- þörf á, að hafa þar t.d. umferð- arþátt og til eru ágætar mynd- ir og uppdrættir þar að lútandi sem mundu koma að góðum not um á þeim vettvangi. Umferð- arþátturinn í útvarpinu hefur oft verið góður, en hann kæmi án efa að miklu betri notum í sjónvarpinu með viðeigandi myndum úr umferðinni. Það get ur varla verið mikið átak að koma því í kring .Sömu sögu er að segja um mörg önnur mál efni, sem brýnt erindi eiga til almennings. Það er staðreynd, að mikið er horft á sjónvarpið, svo sem vera ber, og eyða börn og unglingar til þess miklum tíma frá námi og störfum. Það væri því til hins mesta hagræð- is, að þar væru sýndir stuttir og vel undirbúnir þættir í léttu og skemmtilegu formi til margs- konar fræðslu. Það gæti að nokkru komið á móti töpuðum tima frá námi og verið til gagns og gleði, menntunar og fróð- leiks fyrir unga og aldna, og þá er vel. Fróðlegt væri að heyra álit ráðamanna sjón- varpsins á þessu, og þá ekki sið ur álit sjónvarpsnotenda. — X. Framliald af bls. 2. uppbygging flugvallarins væru einnig atriði, sem bæjaryfirvöld kæmu til með að sinna og síðast en ekki sízt þyrfti að taka til endurskoðunar rekstrarform vetraríþróttamannvirkjanna, sem nú hvíla öll á herðum bæj- arfélagsins. Á hinn bóginn er ekki eðlilegt, — og að mörgu leyti óæskilegt, — að bæjarfé- lagið sem slíkt tæki að sér hlut- verk þessa frumkvæðisfélags í ferðamálunum. Um það þarf ekki að fjölyrða. Bæjaryfirvöid hafa nægilega mörgum hnöpp- um að hneppa á öðrum sviðum. Þótt ekki sé æskilegt eða hag kvæmt, að bæjarfélagið sjálft sé sá frumkvæðisaðili í upp- byggingu ferðamála, sem hér hefur verið rætt um, er þó jafn ljóst, að bæjarfélagið hefur mikilla hagsmuna að gæta, ef unnt væri að auka hér verulega ferðamannastraum og ferða- mannaþjónustu. Þess vegna gæti bæjarfélagið frekar stctt slíka starfsemi, sem hér er stungið upp á, heldur en fram- kvæma hana sjálft. Til þess að gera okkur einhverja hugmynd um þýðingu ferðamála fyrir Ak ureyri, skulum við íhuga, að lenging ferðamannatímans frá marz og fram í maílok gæti var lega áætlað haft í för með' sér meðaltalsaukningu um 100 ferðamenn á dag þetta tímabil. Ef þessir ferðamenn eyða 1500 krónum á dag, þá yrði eyðsla þeirra um 12 millj. kr. Senni- legt er, að ferðamenn yfir sum- artímann skilji meira en helm- ingi hærri upphæð eftir, a.m.k. eftir að aukning yrði í hótel- kosti og auglýsingar meiri, eins og gert er ráð fyrir í fyrsta á- fanga uppbyggingarinnar. Gera mætti því ráð fyrir, að tekju- straumar vegna ferðafólks næmu 50—60 millj. kr. árlega eftir þennan fyrsta áfanga í aukningu ferðamannaþjónust- unnar, auk fargjalda. Þetta fé er svo notað af þeim, sem fá tekjurnar, til þess að kaupa vörur og þjónustu, sem framleitt er hér á Akureyri og við það eflast þær atvinnugrein ar. Aukning tekna í ferðamanna þjónustunni hefur því keðjuá- hrif á aðrar atvinnugreinar og margfaldast því ávinningurinn, sem þessi tekjuauki hefur fyr- ir bæjarfélagið i heild. Af þess- um sökum er óhætt að fullyrða, að hér á Akureyri eru mikil ó- notuð tækifæri til þess að hag- nýta ferðamennsku til eflingar atvinnu- og efnahagslífi stað- arins. Til þess þarf þó að koma fram frumkvæði og framtak heimamanna sjálfra, einkum þeirra, sem beinna hagsmuna hafa að gæta í þessu efni. Ég vil í lok þessarra inngangsorða ítreka þá hugmynd, að þessir aðilar bindist samtökum í hlula félagsformi til þess að sam- ræma og skipuleggja starf sitt og taka nauðsynlegt frum- kvæði í því að framkvæmdir verði á réttan hátt og í réttri röð þeir hlutir, sem stórefla Akureyri sem ferðamannabæ á næstu árum.

x

Íslendingur - Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.