Íslendingur - Ísafold - 28.07.1971, Blaðsíða 4
£■
ISLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1971.
•msa»
KARLMANINiASKÖR 8KÓKAUP
Verð kr. 795,oo-877,o» SKIPAGÖTU 6 - SlMI 21889.
ódVrir kvenskör 8KÓKAUP
Verð kr. 630,oo-099,oo SKIPAGÖTU 6 - SÍMI 21889.
8KÓKAUP
SKIPAGÖTU 6 - SÍMI 21889.
TREKLOSSAR
INiÝKOIVIINilR
LOÐTÖFFLUR - TÁTILJUR 8KÓKAUP
Barna- og fullorðinsstærðir skipagötuö
SlMI 21889.
Bifreiða-
eigendur
Bifreiða-
verksfæði
NIKE-BIFREIÐALYFTUR í úrvali.
IV2 — 3 — 5 — 8 — 10 — 12 tonna.
Einnig IV2 tonna fyrir verkstæði.
VÉLADEILD
SÍMAR 2-14-00 og 1-29-97
Á dagskrá að þessu sinni
er fréttaflutningur erlendra
blaða út af afstöðu vinstri
stjórnar, nauösyn á samstöðu
allra pólitískra flokka í land-
helgismálinu og samstaða lýð
ræðissinna í varnarmálum.—
Um þetta er rætt í Reykjavík-
urbréfi Morgunblaðsins sl.
sunnudag og fer það orörétt
hér á eftir:
• HVAÐ HÉLDU
MENNIRNIR?
Mikið fjaðrafok hefur ver
ið í stjórnarblöðunum, Þjóð-
viljanum og Tímanum, und-
anfarna daga út af fréttaflutn
ingi erlendra blaða frá ís-
landi. Hefur jafnvel verið Iát
ið að því Iiggja, að Morgun-
blaðið stjórni því, hvað um
íslenzku ríkisstjórnina er
sagt erlendis, eða a. m. k.
talin hin mesta ósvinna að
skýra íslen/.kum lesendum
frá því, hvað erlendir menn
hafa um stefnu stjórnarinn-
ar að segja. Ekki skal hér eytt
rúmi í að ræða um þau fá-
ránlegu sjónarmið, að þegja
eigi um það, sem sagt er um
ísland erlendis, ef það er að
einhverju leyti óþægilegt. Um
þá hlið málsins hefur verið
rætt hér í blaðinu áður. En
ekki er úr vegi að varpa fram
þeirri spurningu, hvort stjórn
arherrarnir hafi virkilega
haldið ,að það vekti enga at-
hygli erlendis, þegar komm-
únistum er lyft upp í valda-
stóla og samhliða boðaður
brottrekstur varnarliðsins. —
Héldu menn, að vestrænar
þjóðir niundu engar áhyggj-
ur af þessu hafa, og héldu
menn, að Rússar mundu ekki
gleðjast?
Bréfritari trúir því ekki, að
hinir nýju valdhafar á ís-
landi séu svo einfaldir, að
þeir hafi enga grein gert sér
fyrir því, hvaða athygli slíkt
mundi vekja á erlendri grund.
A
DAG-
SKRÁ
Þótt utanríkisráðherra
hlypi á sig fyrsta daginn, sein
hann sat í stjórnarráðinu, hef
ur hann síðan tekið sig á og
rætt málin mun skynsamleg-
ar. Hann bendir nú á, að ekk
ert bráðræði verði látið ríkja
í umræðum um endurskoðun
varnarsamningsins. Þetta
hefðu raunar átt að verða
hans fyrstu orð í ráðherra-
stóli og þá hefði miklu tjóni
verið forðað, því að þau orð
hefðu verið birl víða um
heim. Þau hefðu dregið úr á-
hyggjum vestrænna þjóða, en
raunar líka skyggt á gleði
Rússa. E11 betra er seint en
aldrei.
• SAMSTAÐA í LAND-
HELGISMÁLINU
Fyrrverandi ríkisstjórn
markaði þá stefnu að leitast
við að ná algerri einingu í
landhelgismálinu. Hún skip-
aði nefnd í það mál frá öll-
um þingflokkum og átti sá
minnsti einn fulltrúa eins og
sá stærsti. Þannig urðu þá-
verandi stjórnarflokkar í
minnihluta í nefndinni, en
það olli stjórninni ekki á-
hyggjum, því að hún vildi um
fram allt ná samstöðu um
þetta þýðingarmikla mál.
Ekki leikur á tveim tung-
um, að málefnasamningur
vinstri stjórnarinnar og
klaufaleg framkoma ráðherr
anna hefur stórskaðað mál-
stað okkar í landhclgismál-
inu, en það er búið og gert.
Og nú þarf að reyna að bæta
um og hafa um það sem nán-
ast samstarf. Báðir stjórnar-
andstöðuflokkarnir, Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur, hafa lýst yfir, að
þeir séu reiðubúnir til slíks
samstarfs.
Á undirbúningsfundinuin
undir hafréttarráðstefnuna,
sem nú stendur, munu sjón-
armið mjög skýrast. Þar geta
fulltrúar okkar betur áttað
sig á því en hingað til, hvern
ig staða okkar sé, hve marg-
ar þjóðir styðji þau sjónar-
mið, sem við höfum sett
frain um a. m. k. 50 sjó-
mílna landhelgi, og hve öflug
ir andstæðingarnir séu. Full-
trúar okkar munu auðvitað
leitast við að túlka málstað
okkar, ekki sízt í einkavið-
ræöum bak við tjöldin og
afla sambanda við aðrar þær
þjóðir, sem svipuð áhugamál
hafa og við, en þær eru
vissulega margar. Þegar þess
um fundi lýkur og eftir því
sein öðruni undirbúnings-
fundum miðar áfram, getum
við betur vegið og mctið all-
ar aðstæður. Þá og þá fyrst
kann að reynast unnt að taka
um það ákvörðun, hvenær
við hefjumst handa í land-
helgismálinu og með hvaða
hætti. Tímasetningin 1. sept-
ember 1972 var auðvitað á-
róðursbragð og ekkert ann-
að, en cinnig það er liðin
tíð og skal ekki rætt frekar.
• SAMSTAÐA
LÝDRÆÐISSINNA
Ljóst er, að Einar Ágústs-
son, utanríkísráðherra, gerir
sér þess nú ekki glögga grein
að þjösnaskapur í varnarinál
um hlýtur að stórskaða mál-
stað okkar í landhclgismál-
inu. Hefur það komið Ijðst
fram af ummælum hans bæði
í Tímanum og ríkisútvarpinu
eftir að hann tók að átta sig
á ábyrgð þeirri, sem á lierð-
um hans hvílir. Er elcki úr
vegi að bcuda ráöhcrranum
á, að hann gæti injög bætt
úr því tjóni, sem orðið er,
með því að viðhafa svipuð
vinnubrögð í varnarmálunum
og fyrrverandi ríkisstjórn tók
upp varðandi landhelgismál-
ið. Hann gæti óskað samráðs
við stjórnarandstöðuna um
þá endurskoðun, sem boöuö
hefur verið á varnarsamn-
ingnum. Viðmælendur okkar
í Atiantshafsbandalaginu
mundu að sjálfsögðu fagna
því, ef fulltrúar allra lýðræð-
isfiokkanna ættu aðild að
þeim viðræðum, enda hafa
þeir allir verið þeirrar skoð-
unar, að varnir verði að
tryggja með einum eða öðr-
um hætti. Bandamenn okkar
í NATO vita sem er, að Sjálf
stæðisflokkurinn átti megin-
þátt í því að marka þá utan-
ríkismálastefnu, sem íslenzka
þjóðin hefur fylgt allt frá lýð
veldisstofnun. Og þeir vita
Hka, að ætíð hefur verið leit-
azt við að hafa sem víðtæk-
asl samstarf lýðræðisflokk-
anna í utanríkimálum, hvað
sem ágreiningi um innan-
landsmál hefur liðið.
Ef fulltrúar allra lýðræðis-
flokkanna tækju þátt í við-
ræðuin um endurskoðun
varnarsamningsins, er enginn
efi á því, aö gott sanikomulag
gæti náðst við Atlantshafs-
bandalags ríkin um fyrir-
komulag nauðsynlegra varna
hér á landi, enda má vcra að
einhverjar breytingar megi
gera á'því fyrirkomulagi, sem
nú er. Raunar hafa Siálfstæð
ismenn margsinnis vakið á
því athygli, að ætíð burfi að
hafa augun opin í varnarmál
unum, og m. a. gat Biarni
Benediktsson, þáverandi for-
sætisráðherra, þess í lands-
fundarræðu 1967, að stöð-
ugt þyrfti að fvlgjast með
breytingum í þessu efni, og
fyrrverandi ríkisstjórn féklc
kanadískan sérfræðing til
þcss að athuga stöðu okkar í
vörnum Atlantshafsbanda-
lagsins.
Fyrir verzlunar-
mannahelgina
PEYSUR, JAKKAR, VESTI
BOLIR og BUXUR (stutt-
ar) — Fjölbr. úrval.
Verzl. Drífa
Sími 11521 . Akureyri.
Danskar
DÖMUPEYSUR og VESTI
— margir litir og gerðir.
Verzl. DRÍFA
Sími 11521.
Ferðajakkar
— síðir.
SUMARBUXUR,
— stærðir 38 — 50.
JERSEYPEYSUR, -
PRJÓNAJAKKAR - síðir.
MarkaHnriim
Hafnarstræti 106,
Akureyri. Sími 11261.
Hárgreiðslu
siofan Fjóla
er lokuð vegna sumarleyfa
lil 3. ágÚSt.