Íslendingur - Ísafold


Íslendingur - Ísafold - 11.11.1971, Síða 1

Íslendingur - Ísafold - 11.11.1971, Síða 1
47. löIublaS. Fimmtudagur 11. nóvember 1971. 56. og 96. árgangur. Það hefur nú berlega komið í Ijós að plagg það sem vinstri flokkarnir sendu frá sér við myndun jíkisstjórnarinnar, og nefnd ist stjórnarsáttmáli, hafði ekki inni að halda al!t það, er samið var um á lóngum og dularfullum fundiun flokkanna. Þar á meðal, og það sem hvað bezt hefur komið í ljós, er hin svokall- aða ráðherranefnd, sem sett var á laggirnar til höf- uðs Einari Águstssyni. — Hvernig stóð á því að al- menningi var ekki birlur þessi þáttur stjórnarsáttmál ans? Svona myrkraverk eru ekki til að efla traust al- mennings á stjórnvöldunum og það er því ekki nema von að menn spyrji: HVAÐ KEMUR NÆST? Heimild fil verk- fallsboð' unar Á almennum fundi í Félagi verzlunar- og skrifstofufólks á Akureyri hinn 4. nóv. sl. var stjórn og fulltrúaráði veitt heinrild til verkfallsboðunar. Félagssvæðið er Akureyri, Dalvík, Hauganes og Greni- vík. Vinnubrögd ríkisstjórnarinnar í raforkumálum Nor dlendinga átalin Á fundi með stjórn Fjórð- ungssambands Norðlendinga og þingmönnum Norðurlands- kjördæmis vestra sl. laugardag lýsti Ólafur Jóhannesson for- sætisráðherra m. a. fyrirætlun- um ríkisstjórnarinnar í raf- orkumálum Norðlendinga, og lýsti yfir stuðningi sínum við ráðgaerðir Magnúsar Kjartans sonar orkumálaráðherra. Sagði forsætisráðherra, að þrátt fyrir mótmæli heimamanna myndi ríkisstjórnin leggja áherzlu á að háspennulína yrði strax lögð norður. Á fundinum flutti Bjarni Einarsson bæjarstjóri greinar- gerð, þar sem fram komu rök, er hnigu ákveðið að því að raforka að sunnan væri mun dýrari en raforka framleidd í fjórðungnum. Sagði m. a. í greinargerðinni, að iðnaður á Akureyri hefði dafnað fyrst og fremst í skjóli ódýrrar *af- orku, og lagði Bjarni fram töfl ur til að sýna að orkuve.'ðið gæti orðið lægra á Norðuriandi öllu en nemur landsmeðaltali, og eins og mál horfa í dag, lægra en á orkuveitusvæði Landsvikjuna. Stjón fjóðungssambandsins átaldi ríkisstjórnina fyrir vinnubrögð í sambandi við orkumálin. Gagnstætt aðferð- um síðustu ríkisstjórnar, þá hafa ferðalög núverandi vald- hafa í fjórðunginn einungis verið til að skýra heimamönn- um frá ákvörðunum, í stað þess að áður hefðu þeir þó verið hafðir með í ráðum. Fór stjórn fjóvðungssam- bandsins fram á það við ráð- herra að skipuð yrði samstarfs nefnd santbandsins og rikis- stjórnarinnar um orkumál. A vegum nefndarinnar yrðí svo gerður hlutlaus samanburður og hagkvæmisathugun á vinnslu rafmagns á Norður- landi og aðfluttri orku. Engin endanleg ákvörðun í raforku- málum Horðlendinga yrði lek in án samþvkkis nefndarinnar. Er nánar fjallað um þessi mál í leiðara. Morðlenzk trygqing hf., nýstofnað alm.hlutafélag Fimmtudaginn 4. nóvember sl. var gengið frá stofnun al- menningshlutafélags á Akur- eyri, til að annast vátryggingar starfsemi. Félagið hlaut nafn- ið Norðlenzk trygging hf. — Stofnendur eru á annað hundr að og er hlutafé ákveðið krón- ur fimm milljónir, en stefnt er að því að hlutafjársöfnun verði lokið fyrir áramót. Kom þetta frani í viðtali, sem blaðið átti við Bjarna Arthursson framkvæmdastjóra þessa nýja tryggingafélags. — Sagði Bjarni aðalástæðuna fyr ir stofnun félagsins vera þá, að fyllilega tímabært hefði þótt að flytja heim í héruðin þenn- an þátt viðskiptalífsins, sem hingað til hefur verið í Reykja vík, og að byx<jgðarlögin fengju sjálf ráðstöfunarrétt á þeint fjármunum, sem þau hefðu þannig skapað. Norðlenzk trygging hf. er mjög opið hlutafélag, og geta allir eignast hlutabréf í fé- laginu. Hljóða lög félagsins m. a. upp á það, að enginn hluthafi geti haft ráðstöfunar- rétt á meira en 10% hluta- fjár, og eru það strangari regl- ur um það efni en hjá öðrum tryggingafélögum. Félagið mun innan skamms opna skrifstofu í BP-húsinu við Tryggvabraut á Akureyri og hefja þá þegar starfsemi. Von er á tryggingafulltrúa hingað norður til aðstoðar við að koma fyrirtækinu af stað og leiðbeina fyrirtækjum með tryggingar. Er það Trygging hf. í Reykjavík, sem lánar þennan mann hingað norður, en mikið samstarf hefur verið á milli þessarra fyrirtækja, og hefur Trygging hf. t. d. komið þessu nýja tryggingafélagi í samband við Lloyd, ög hafa tekizt þar mjög hagstæðir samningar um endurtrygging- ar. Bindindisdagurinn ákveðinn 21. nóv. Landssambandið gegn áfeng isbölinu hefur ákveðið að hinn árlegi bindindisdagur á þess vegum verði sunnudagurinn 21. nóvember nk. Kemur þetta fram í fréttalilkvnningu, sem blaðinu hefur borizt frá lands- sambandinu, og segir þar enn- fremur, að aðildarfélög sam- bandsins hafi fengið tilmæli um að minnast dagsins á þann hátt, er þau telja bezt henta á hverjum stað. Ennfremur munu fjölmiðlar minnast dagsins á ýmsan hátt, en eins og segir að lokum í fréttatilkynningunni, þá er á- fengisvandamálið orðið mjög alvarlegt og snertir beint tug- þúsundir manna, auk þess sem hættan eykst enn með tilkomu annarra fíkni- og skynvillu- fyfja- Slipp- stöðin Enn hafa ekki verið tekn ar ákvarðanir um framtíð Slippstöðvarinnar, en hér er nú staddur enn einn sér- fræðingurinn á vegum rik- isstjórnarinnar ti! að athuga málin.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.