Íslendingur - Ísafold - 11.11.1971, Page 10
jtsaag
10 ÍSLÉNDINGUR-ÍSAFOLD - FIMMTUDAGUR 11. NÖV. 1971.
á^yrrrrT^g|,»1 nj| HHyllHii >11» tiié ItlBMi”, Jig?^j-?^r?TTatragaTe^e5eEi
Haustfnsi
JB -
jnsp f
<ilii >íii-
|M ____/■*
®
1/
W
að starfsfólkið gcti veitt far-
þcgum lélagsias þá fyiíi-
greiðslu og þjó.niitu, senr hug-
Flugáætlanlr
f \
ea tu aó auka teróamamas2
ab aubvelda Islendingum utanfer&ir
Á hinum árlega haustfundi
fulltrúa Flugfélags íslands,
sem haldinn var í Reykjavík
síðustu viku okt., ríkti bjart-
sýni um að hin nýju sérfar-
gjöld, sem Flugfélag íslands
fékk samþvkkt á fargjaldaráð-
stefnu Alþjóðasambands flug-
félaga í Miami fyrir skemmstu,
myndu auðvelda Islendingum
ódýrar utanferðir og auka
fefðamannastraum til lands-
ins. Fargjöldin, sem taka gildi
hinn 1. janúar nk., munu án
efa verða til þess að lengja
ferðamannatímabilið og að
hingað leiti fólk í vaxandi
mæli allan ársins hring. Hvað
afkomu Flugfélagsins áhrærir,
var sú von látin í ljósi, að þótt
fleiri farþegar ferðuðust á Iág-
um sérfargjöldum en áður,
myndi aukning í farþegaflutn-
ingum milli landa bæta það
upp, svo að fjárhagsafkoma fé
lagsins versnaði ekki fyrir vik-
ið.,
Á haustfundum Flugfélags-
manna, þar sem forstjóri fé-
lagsins og deildarstjórar, svo
og fulltrúar frá aðalskrifstöfu
og skrifstofum félagsins inn-
anlands og utan, bera saman
bækur sínar, eru viðhorf fé-
lagsins til aðsteðjandi vanda-
mála rædd. Gerðar eru áætl-
anir um næstu tímabil og yfir-
farið, hvað áunnist hefur á
liðnu ári. Ennfremur íevnt að
grafast fyrir orsakir þess, ef
gerðar áætlanir hafa ekki stað
izt og leitað að ráðum til úr-
bóta.
Landkynningarmál
Flugfélag íslands hefur á
undanförnum árum lagt fram
mikla fjármuni til landkynn-
ingarmála. Þessi starfsemi fé-
lagsins hefur þegar borið sýni-
legan árangur, og sífellt fleiri
ferðamenn koma til ísiands
með flugvélum þess, sérstak-
lega yfir sumartímann. Land-
kynningarmál eru því mjög á
dagskrá á fundum Flugfélags-
manna. I fyrra var tekin upp
sú stefna að auglýsa hreinleika
íslands, og virðast auglýsingar
af þessu tagi hafa gefið góða
raun. Á sl. ári bauð Flugfélag
Islands hingað nokkrum hóp-
Stjórn Varðar FUS.
Mikil starfsemi
hjá Verði FIS
Sem kunnugt er, var aðal-
fundur Varðar FUS á Akur-
eyri, haldinn 14. okt. sl. — I
skýrslu fráfarandi formanns,
Guðmundar Hallgrímssonar,
kom fram, að starfsemi félags
ins var mikil á sl. vetri. Haldn-
ir voru nokkrir almennir fund
ir með forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins, auk kvöld-
verðarfundanna, þar sem ýms-
ir mætir menn höfðu fram-
sögu. Félagsmenn störfuðu
mikið við undirbúning kosn-
inganna á sl. vori og bættust
félaginu margir nýir meðlimir
á árinu.
Núverandi stjórn félagsins
er þannig skipuð: Sveinbjörn
Vigfússon forpiaður, Sigurður
Sigurðsson varaformaður,
Pálmi Geir Jónsson ritari, Har
aldur Hansen gjaldkeri, Daní-
el Dan Snorrason spjaldskrár-
ritari, Ingi H. Sigurðsson
spjaJdskrárritari og Ölafur
Geirsson meðstjórnandi. — I
varastjórn eiga sæti: Hjörtur
Gíslason, Ómar Einarsson og
Gunnlaugur Eiðsson.
Til undirbúnings vetrarstarf
inu hefur stjórn félagsins þeg-
ar haldið tvo fundi. Hefur nú
verið ákveðið að fyrsti kvöld-
verðarfundurinn á vetrinum
verði um miðjan þennan mán-
uð. Verður hann auglýstur síð
ar. Þá eru í athugun möguleik-
ar á því að halda nokkur bingó
kvöld í vetur, en þau hafa nú
um árabil verið fastur liður í
starfsemi Varðar og notið vin-
sælda. Þá mun verða lagt kapp
á að skipuleggja vel féJags-
starfið, jafnframt bví sem á-
herzla verður lögð á fjölgun
félaga. Ýmsar nýjar hugmynd-
ir og tillögur um nýjungar í
starfsemi félagsins eru nú í
athugun hjá stjórn Varðar. —
Væntanlega verður nánar skýrt
frá þeim innan tíðar hér í blað
k B 8 B C H IT* C
III Ih-lunUb
um ferðaskrifstofufólks og
blaðamanna, útvarpsmanna og
sjónvarpsmanna. Það er at-
hyglisvert, að fyrir nokkrum
árum reyndist oft erfitt að fá
menn í blaðaheiminum til ís-
Jandsferða. Nú er betm gjör-
breytt. Fleiri vilja koma en
unnt er að greiða fyrir hvcrju
sinni. Þá hefur Flugfélagið
staðið að Islandskynningum í
útvarpi erlendis með þátttöku
í sérstökum útvarpsdagskrám
og í sjónvarpi. Áframhald verð
ur á slíku og landkynningar-
starfið er í fullum gangi allt
árið. Sú breyting hefur einnig
orðið á í seinni tíð, að Elugfé-
lagið stuðlar nú að íslandsferð
um fleiri sjónvarps-, blaða- og
útvarpsmanna yfir veturinn en
áður. Væntir félagið þess, að
sú starfsemi beri þann árang-
ur, að fleiri ferðamenn leggi
nú leið sína til íslands yfir
vetrartimann, enda þótt vart
verði um teljandi ferðamanna
straum að ræða fyrsta lcastið.
Fargjaldamál
Eins og tekið er frarn í upp-
hafi þessarrar greinar, var það
álit haustfundar Flugfélags-
manna, að hin nýju GIT-hóp-
ferðafargjöld, sem félagið hef-
ur nú fengið samþylckt; muni
verða til þess að auka ferða-
mannastraum til Islands ekki
aðeins yfir sumartímann, held
ur einnig á öðrum árstímum.
Fargjöld þessi eru miðuð við
tíu manna hóp og eru mjög
hagstæð. Hér er áfrainhald ú
þeirri stefnu Flugféiags Is-
lands að bjóða lág sérfargjöld
á hinum ýmsu árstímum, en
umræðu var einuig vaxandi
samkeppni á flugleiöum fé-
lagsins og erfiðleikar, sem nú
steðýa að áætlunarflugfélögum
víða um heim vegnr leiguflug-
félaga, sem koma inn á mark-
aöinn yfir háannatímann og
hirða þar drjúgan gróða.
Þjónusta við farþega
Eitt af þeim málum, sem sí-
fellt taka mikinn tíma á haust-
fundi, er þjónusta við farþega
og aðra viðskintamenn félags-
ins. I heimi hraðvaxandi sam-
keppni og baráttu um hvern
farþega, er það þjónustufyrir-
tæki h'fsnauðsyn, að viðurgern
ingur, svo og önnur fyrir-
greiðsla við viðskiptamenn
þess sé eins góð og bezt verð-
ur á kosið. Þessi mál eru því
sífellt í brennidepli. Kvartan-
ir, sem og vinsamleg þakkar-
briéf, eru rædd og le'ðir til úr-
bóta yfirvegaðar. Allt starf fé-
lagsins, sem að bessu lýtur, er
vandlega gagnrýnt og tillögur
gerðar um það. scm betur má
fara í vherju tilliti. Engum er
það Ijósara en Flugfélagsmönn
um sjálfum. að bezta auglýs-
ingin, sem félaginu hlotnast,
er ánægður farþegí að loknu
ferðalagi. Innan félagsins er
einnig allur vilji til að svo
megi til talcast. Að hver ein-
asti farþegi, sem stígur út úr
flugvél félagsins, svo og þeir,
sem um ferð hans kynnu að
soyrja eða mæta til móttöku,
fái lýtalausa fyrirgreiðslu. Að-
sfaða félagsins t. d. á Reykja-
víkurflugvclli er því mikið á-
hvggjuefni og hinn frumstæði
húsakosfur þar, sem fvrir
lönvu er orðinn alltof lítill, er
beinlínis Þrándur í Götu þess
A tundmum, sem nu er ný
lolcið, var gengið endanlega
frá sumarácetlun 1972. Enn-
freinur rædd drög að vetrar-
áætlun 1972-1973. Slíkar á-
ætlanir eru sanrdar með tilliti
til líklegrar flutningaþarfar á
viðkomandi flugléiðum og til
þess flugvélakosls, sem fyrir
hendi er á hverjum tíma o. s.
frv. Enníremur, hvernig flug-
áætlunum verði haganlegast
fyrir komið frá endastöðvunj,
þar sem t. d. skemmtiferða-
rnenn hefja íslandsferðir sínar
og hvernig ferðir séu hentug-
astar fyrir þá, sem ferðast í
viðskiptaerindum. Flugfélag ís
lands Ieggur mikla áherzlu á,
að áætlunarflug þess þjóni sem
bezt bæði þeim, sem ferðast
innanlands og milli landa.
Dvöl á sveitaheimiluni.
Fyrir nokkru hóf Flugfélag
Islands milligöngu um dvöl
feðramanna á sveitaheimilum,
svo og um leigu á sumarbú-
stöðum. Þótt hér sé um al-
gjöra byrjunarstarfsemi að
ræða, er þó sýnt, að viss áhugi
er fyrir slíku meðal erlendra
feraðmanna, og væntir félag-
ið þess, að í framtíðinni geti
þetta orðið allgóð tekjulind fyr
ir ýmsa hér á landi. Al'mikil
aukning varð á dvöl erlendra
ferðamanna á sveitaheimilunr
og hafa margir bændur sýnt
lofsverðan áhuga um þessi
mál. Ekki er hins vegar til sam
anburður um sumarbústaða-
leigu, þar sem milliganga um
leigu á þeim átti sér stað í
fyrsta sinn nú.
Sjóstangaveiði og silungs-
veiði hefur einnig verið kvnnt
OfT lippja nú fyrir margar fyr-
irspurnir frá veiðiáhugamönn-
um, sem hyggja á íslandsferð-
ir næsta sumar.
Hrafnagilsskóli tekur til starfa
Skólanum berst höfðingleg gjöf
Hafin er kennsla í heima-
vistarbyggingu Hrafnagils-
skóla. Sjálft skólahúsið, þ. e.
kennslustofur o. fl., er enn í
byggingu, nú komið vel á veg
og gert ráð fyrir, að það verði
tekið í notkun fyrir næsta
skólaár.
Nemendur í vetur verða 64,
þ. e. tveir síðustu bekkir
skyldunámsins, en rúm er fyrir
80 í heimavist. Það rými, sem
umfram er, mun í vetur verða
notað fyrir kennslustofur.
Skólastjóri hins nýja skóla
hefur verið ráðinn Sigurður
Aðalgeirsson, áður kennari að
Varmalandi í Borgarfirði. Aðr
ir kennarar eru Angantýr H.
Hjálmarsson, Gunnar Jónsson,
Sigurhanna Salómonsdóttir og
Stefán Aðalsteinsson.
Á fundi skólastjóra cg kenn
ara með foreldrum nemenda
og nokkrum gestum 23. okt.
sl. var mætt frú Ingibjörg
Tryggvadóttir, ekkja Jakobs
Kristinssonar, fyrrverandi
fræðslumálastjóra. Tilkvnnti
hún, að hún gæfi Hrafnagils-
skóla bókasafn þeirra hjóna
til minningar um manu sinn.
Skólastjóri þakkaði þann hlý-
hug og rausn, er stæði að baki
verkum sem þessum.
Formaður skólanefudar
skýrði frá gjöf þessari á fundi
nefndarinnar 26. okt. Segir
svo í bókun m. a.: „Fundar-
menn lýstu þakklæti síru vfir
þessum höfðingsskap, rómuðu
það víðsýni og þann góðvilja,
er lægi á bak við gjöf þessa.
Mundi hún verða hvatning hér
aðsbúum til frekari átaka við
uppbyggingu og útfærslu á
Hrafnagilsskóla.“
Að skólanum standa fjögur
sveitarfélög. Fulltrúar þeirra í
skólanefnd eru: Fyrir Hrafna-
gilshrepp Haraldur Hannesson
Vðíigerði, fyrir Saurbæjar-
hrepp Eiríkur Björnsson Arn-
arfelli, fyrir Svalbarðsstrandar
hrepp Stefán Júlíusson Breiða
bóli, fyrir Öngulsstaðahrepp
séra Bjartmar Kristjánsson.
Formaður skólanefndar er
Jón Heiðar Kristinsson Ytra-
Felli.
Veljið ljúffenga fæðn:
niðursuðuvörur.
ORA hf.
Niðursuðuverksmiðjan
Kársnesbraut 86
Kópavogi — Sími 41995 —6