Íslendingur - Ísafold - 11.11.1971, Page 12
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - FIMMTUDAGUR 11. NÓV. 1971.
MINNINGARORÐ:
HERVÖR ÁSGRÍMSDÓTTIR
Frú Hervör Ásgrímsdóttir var
borin til grafar 5. nóv., 42 ára
gömul. Hún var fædd 29. júní
1929. ForeMrar hennar voru
María Guðmundsdóttir og Ás-
grímur Pétursson fiskmatsmað
ur.
Það mun hafa verið haustið
1953, að við hjónin komum
fyrst á heimiii hennar og Gísla
Jónssonar, menntaskólakenn-
ara. Þau voru þá búin að vera
gift í rúm tvö ár. Síðan höf-
um við alltaf átt þar vinum
að mæta, og því kærari sem
lengra leið.
Nú er hún dáin, frá Gísla og
börnunum þeirra sjö. Við, vin-
ir þeirra, drúpum höfði, hljóð
og vanmáttug þess að gera
nokkuð til hjálpar.
Ég ætla mér ekki að rekja
hér æviferil hennar, en lengar
aðeins til að greina frá þeim
kynnum, sem ég hafði af
henni.
Ég leit einstaka. sinnum inn
til hennar og við röbbuðum
yfir kaffibolla. Mér finnst
núna, þegar ég á þess ekki
lengur kost, að ég hefði þuvft
að gera Jiað miklu oftar, vegna
þess að ég fór þaðan alltaf
hressari í bragði, með meiri
trú á h'fið.
Fyrir örfáum dögum korn ég
síðast til hennar á sjúkrastof-
una. Þangað var gott að koma,
þar ríkti ekki skelfing dauð-
ans, heldur æðruleysi, friður
og ró. Þó hygg ég, að bæði
henni og öðrum hafi verið
ljóst, hvern endi þessi síðasta
barátta hennar mundi hafa.
Við rúmið hennar sat Gísli og
hélt í höndina á henni. Mér
fannst, sem þar væru tvær hetj
ur, sem óbugaðar lytu sínum
skapadómi. Ég gekk af sjúkra-
húinu, út i önn dagsins og h'f-
ið, og enn hafði hún veitt mér
styrk.
Ég minnist hennar sem móð
ur. Hún sagði eitt sinn, er við
ræddum um erilsamt og erfitt
starf margra barna móður:
„En ég fyllist samt alltaf fögn
uði, þegar ég vakna á morgn-
ana og sé þessi saklausu barns
andlit, sem þarfnast mín.“
Gott er að vera barn slíkrar
móður.
Ég minnist hennar sem hús-
freyju, sem með ótrúlegum
dugnaði og ráðdeild annaðist
sitt stóra, mannmarga og glæsi
lega heimili. Þangað var gott
að koma. Húsfreyjan tók á
móti gestum og veitti þeim af
rausn og með höfðingsbrag.
Ég minnist glæsilegu eigin-
konunnar, sem ávallt stóð við
hlið mannsins síns, hvort held
ur var í erilsömu starfi, féiags-
málum eða á gleðimótum. Eng
inn, sem ég hef kynnzt, kunni
betur að varpa af sér hvers-
dagsáhyggjum og gleðjast með
glöðum. Lífsgleðin var mikil.
Þau hjónin voru helzt alltaf
saman. Á sambúð þeirra virt-
ist aldrei falla skuggi.
Mér er vel ljóst, að hugg-
unar- og' hluttekningarorð
megna Htt til að milda þann
harm, sem nú grúfir yfir heim-
ili hennar, en ég á eina ósk
Gísla og börnunum til handa,
og hún er sú, að þeim auðnist
að halda áfram lífsbaráttunni
í anda hennar, af þreki og
þrótti, trú á lífið, og þótt ein-
hverjum kunni að finnast það
kaldranalega sagt á þessari
stundu, — með lífsgleði.
HóEmfríður Jónsdóttir.
t
Hervör Ásgrímsdóttir var til
moldar borin 5. nóv. Mikill
söknuður er kveðinn að börn-
um og eiginmanni og aldraðri
móður. Missirinn er sár og
þungur. Ættingjar og vinir
hafa hugsað til þeirra á þess-
um dögum. Einn þeirra sagði
við mig á Akureyri um helg-
ina: Mér fannst skuggi líða yf-
ir bæinn, þegar ég heyrði lát
hennar.
Hervör var fædd á Akureyri
hinn 29. júní 1929. Hún var
dóttir hjónanna Ásgríms Pét-
urssonar, yfirfiskmatsmanns,
og Maríu Guðmundsdóttur.
Talsverður aldursmunur var á
þeim hjónum. Ásgrímur var
fæddur að Grund í Svínadal í
Austur-Húnavatnssýslu hinn
16 .febrúar 1868, sonur hjón-
anna Péturs Frímanns Jónsson
ar bónda þar og Guðrúnar
Þorsteinsdóttur, er var skag-
firzkrar ættar. Hann var því
hálfbróðir Péturs, síðast kaup-
manns á Blönduósi, en áður
bónda á Gunnsteinsstöðum,
föður Hafsteins bónda þar og
Magnúsar héraðslæknis í
Reykjavík, ,og séra Hafsteins,
sem um skeið var prestur í
Winnipeg, en síðar fluttist til
Kaupmannahafnar, en albróð-
ir Þorsteins, afa Þorbjörns Sig
urgeirssonar prófessors, og
Sigurbjargar, hún gifitst Birni
Stefánssyni, og búa þrjú börn
þeirra hjóna nú á Móbergi.
Ætt þessi er kjarnmikil og í
henni margt af hæfileika- og
gáfufólki og búmenn góðir. Ás
grímur féll frá í desember
1930, er yngsta dóttir þeirra
Maríu, Ása, var enn ófædd, en
alls áttu þau hjón sex börn
saman. Mér er sagt, að um
skeið hafi María átt við þröng
an kost að búa, en með dugn-
aði og ráðdeild og samheldni
barna sinna tókst henni að
koma þeim öllum vel til
manns, og er myndarskapur
þeirra systkina á orði hafður.
María var fædd á Litla-
Gerði í Grýtubakkahreppi 24.
ágúst 1892. Hún var dóttir
hjónanna Guðmundar bónda
í Pálsgerði Jónassonar í Saur-
brúargerði Stefánssonar og
Margrétar Sigurðardóttur frá
Blómsturvöllum í Glæsibæjar
hreppi Rafnssonar frá Flugu-
mýri. Móðir Margrétar var
Guðrún Árnadóttir frá Björg-
um af Arnarnesætt. Bræður
Maríu eru þeir Aðalsteinn frá
Flögu í Hörgárdal, sem nú
dvelst með lconu sinni, Sigur-
laugu Zóphaníasdóttur, á Elli
heimilinu á Akureyri, og Jósa
vin, sem var um skeið á Syðri-
Völlum, og fluttist síðar að
Auðnum í Hörgárdal, en er nú
látinn, faðir Gunnars í Búðar-
nesi. María dvelst nú á Hrafn-
istu í Reykjavík.
Hervör varð gagnfræðingur
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1946. Eftir það vann
hún hjá Landssímanum, þar
til hún giftist Gísla Jónssyni
menntaskólakennara frá Hofi
í Svarfaðardal hinn 29. júlí
1951. Þá helgaði hún sig hús-
móðurstörfunum, en leysti þó
af í sumarleyfum hjá Lands-
símanum, þegar hún hafði tök
á. Hún bjó alla ævi á Akur-
eyri. Þó voru þau hjón einn
vetur í Reykjavík á öðru hjú-
skaparári, er Gísli lauk kandí
datsprófi í íslenzkum fræðum
við Háskóla íslands vorið
1953. Hervör lézt í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri hinn
29. október síðastliðinn.
Börn þeirra Gísla eru sjö
talsins, á aldrinum 6 til 19
ára, öll mannvænleg og bera
sterkan svip af foreldrum sín-
um. Þau eiga á bak að sjá
sérstæðri og gáfaðri móður,
sem ræktaði með þeim sjálfs-
bjargarhvöt af alúð og skiln-
ingi. Það hjálpar þeim nú á
þessum erfiðu dögum. Og
framvegis mun minning henn-
ar og fordæmi gefa þeim kraft
og styrk, þegar þau þurfa þess
með.
Samband þeirra hjóna var
óvcnju náið. Heimilið var
þungt. En með því að allir
hjálpuðust að, gætti þess ekki.
Þar var því alltaf gestkvæmt,
enda þau hjón bæði félags-
lynd og höfðu gaman af að
blanda geði við vini og frænd-
ur.
Hervör var óvenju næm á
annarra hagi. Hún var ham-
ingjusöm kona og gædd þeim
hæfileika, sem svo sjaldgæfur
er í dag, að hafa alltaf tíma.
Þess nutu þeir, sem um sárt
áttu að binda eða undir höfðu
orðið i Hfsbaráttunni. En um
það var aldrei rætt og vissu
fáir.
Hervör var dul í skapi og
ógjarnt að flíka tilfinningum
sínum. Hún bar sig vel, og þess
gætti elcki í dagfari hennar, að
hún væri haldin þungum sjúk-
dómi tvö síðustu árin. Þó hygg
ég hún hafi vitað, og þau hjón
bæði, að hverju dró. Til hins
síðasta hafði hún sálarþrek og
lét ekki æðruorð falla. Samt
var lífslöngun hennar rík. Hug
rökk og sterk fram til hinztu
stundar kvaddi hún þennan
heim.
„Hvorki með hefð né ráni
hér þetta líf ég fann,
sálin er svo sem að láni
samtengd við likamann.
í Herrans höndum stendur
að heimta sitt af mér.
Dauðinn má segjast sendur
að sækja, hvað Skaparans er.“
Hervör Ásgrímsdóttir hefur
nú goldið þessa skuld „i Kristí
krafti.“ Guð styðji fjölskyldu
hennar og styrki.
Við hjón sendum börnum,
eiginmanni og móður einlæg-
ar samúðarkveðjur.
Halldór Blöndal.
t
5. nóv. sl. var til moldar bor
in á Akureyri frú Hervör Ás-
grímsdóttir. Hún lézt aðfara-
nótt 29. október sl. á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu eftir þung-
bær veikindi, 42 ára að aldri.
Hervör fæddist á Akureyri
hinn 29. júní 1929, dóttir hjón
anna Maríu Guðnnmösdóttur
og Ásgríms Péturssonar, yfir-
fiskmatsmanns á Akureyri.
Hér ólst hún upp í stórum,
myndarlegum og ntorkusömum
systkinahópi. Hervör stundaði
nám í Menntaskólanum á Ak-
ureyri og lauk þaöan gagn-
fræðaprófi vo.ið 1946, hóf síð
an störf hjá Lundssima Is-
lands og vann þar unz hún
giftist Gísla lónssyni, nú yfir-
kennara við Menntaskólann á
Akureyri, hinn 29. júlí árið
1951.
Þau hjón eignuðust 7 börn,
er hið elzta peirra 19 ára, en
þrjú yngstu fcörnin innan ferm
ingaraldurs. Á yndislegu heim
ili þeirra Hervarar og Gísla,
þar sem margur hefur átt
glaða stund og notið ríkulegr-
ar gestrisni og höfðingsskapar,
heimili, senr auðkenndist öðru
frenrur af glaðværð failegra
og fjörmikilla barna, þar ríkir
nú djúp sorg, er móðhin er
burt kvödd, langt um aldur
fram, frá óloknu miklu verk-
efni. Hervör var með afbrigð-
um heilsteypt og hreinskiptin.
Óbilandi kjarkur og dreng-
skapur, sem aldrei brást, voru
aðalsmerki hennar.
Þrátt fyrir annir og eril á
stóru heimili, tók hún öðru
hvoru að sér störf utan þess,
sem öll voru unnin af þeirri
alúð, sem henni var gefin í rík
um mæli, og þrátt fyrir alvar-
leg veikindi og þunga lífs-
reynslu á síðustu árum, leit
hún oft til þeirra, scm stóðu
höllum fæti eða áttu um sárt
að binda og gaf þeim styrk.
Þegar ljóst var í haust að
hverju stefndi og heilsan var
þrotin, heyrðist aldrei æðruorð
frá henni, hún tók þessum
grimmu örlögum með undra-
verðri ró og stillingu. Svo stór-
brotin var hún.
Oft vakti aðdáun fágaður
smekkur, listfengi hennar og
atorka við öll störf. Er heimil-
ið að Ásvegi 23 gleggsta dæmi
þess. Hervör hafði mikið yndi
af blómum, sótti þau gjarnan
um langan veg og flutti heim,
þar sem hún gróðursetti þau
og hlúSi' að þeim milduni hönd
um sínum, svo að mikil prýði
var að, utan húss sem innan.
Nú að leiðarlokum minn-
umst við vinir þeirra hjóna ó-
taldra ánægjustunda með þeim
á heimili þeirra við rausn og
gleði. — Þær minningar eru
okkur kærar og þær imínum
við lengi geyma.
Vini mínum Gísla Jónssyni,
börnum hans og öllum aöstand
endum sendi ég innilegar sam-
úðarkveðjur mínar og fjöl-
skyldu minnar. Megi minning-
in um góða móður, merka og
glæsilega konu, niilda sárasta
söknuðinn.
Að lokum skal hinzta kveðja
okkar verða sú hin sama:
Vertu blessuð og þakka þér
allt, ævinlega.
FriSrik Þorvaldsson.
t
Aðfaranótt föstudagsins 29.
október lézt á Fjórðungssjúkra
húsinu á Akureyri ein glæsi-
legasta kona þessa bæjar, Her-
vör Ásgrímsdóttir, til heimilis
rö Ásveni 23. l.engi bjó hún
ásamt eftirlifandi eipinmanni
sínum Gísla Jónssyni, og börn
um þeirra í Þórunnarstræti
104. Þar var é<; samvistum við
hennar fjplskvtdu í tvö sumur,
og gæfti tvegpia dætra hennar,
Guðrúnar og Tnmbjargar.
Ekki var hæst að kjósa sér
behi hú,'móður en Hevvu,
sem revndist mér í al'a staöi
mjög góð. Hún var með frá-
munum pestrisin. enda vinsæl
kona og vinamörg.
Mér mun ætíð vera minnis-
stæður bessi tími. er ég var á
he;mili henrmr. Atti ég margar
ánænjusÞind'r þar, bæði í leik
p" starfk innan ves°ja heimil-
isms og úti með börnunum
hennar. Við sem þekktum
Hevvu, munum sakna hennar
úr vinahónnum, og votta ég
eir,’nm"nn' fcér'nnr o" börnum
('ínico"" srmúð p" bið Gnð að
b'essn m’nninpu hennar.
Gunnhildur Baldvinsdóttir.
t
Alúðarkveðju og þakkir sendum við ykkur öllum, sem
studduð okkur og HERVÖRU í veikindum hennar og
hafið við andlát hennar og útför m:nnzt hennar fagur-
lega og veiít okkur þá hjálp, sem aldrei verður full-
þökkuð.
Guð blessi ykkur.
Gísli Jónsson, Hjörtur Gíslason,
Arnfríður Gísladóttir, María Gísladóttir,
Soffía Gísladóttir, Guðrún Gísladóttir,
Ingibjörg Gísladóttir, Jón Gíslason.