Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Blaðsíða 3

Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Blaðsíða 3
ISLENÐINGUR-ÍSAFOLD - FIMMTUDAGUR17. ÁGÚST1972 5 ...... - Kjördæmisþing Sjá/fsfæðismanna á Norðurlandi eystra Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélaganna í Norður- landi eystra boðar til kjördæmisþings í Reynihlíð við Mývatn kl. 2 e. h. laugardaginn 2. september. Þinginu lýkur um hádegi á sunnudag, daginn eftir. Þingfulltrúar eru hér með boðaðir til þings ásamt mök- um sínum. Formenn félaganna og fulltrúaráðanna eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sem allra fyrst og eigi síðar en 25. ágúst til Haraldar Þórðarsonar í Ólafsfirði, sími 62148. Dagskrá hefur verið póstlögð til formanna félaganna og fulltrúaráðanna. STJÓRN KJÖRDÆMISRÁÐS. Fatlaðir vilja jafn- rétti á við aðra Gengið á Fyrir nokkru hitti ég bónda á förnum vegi. Hann færði talið eftir nokkra stund að stjórnarfarinu í landinu. — Hann sagði, að sér litist ekki á útlitið, því nú færist okkur Ísliíndingum eins og þegar bændur lifðu á fyrningum í góðæri. „Þetta er hliðstætt því, sem við gerum, og að ég gengi á heyforða í góðæri eða tæki út mánaðarlega af inni- stæðu í banka til þess að drýgja tekjur mínar,“ sagði þessi glöggi bóndi. Mér fannst þetta vel að orði komizt, og sagði eitthvað á þá leið, að hann gæti vel kennt núver- andi fjármála- og landbúnað- LÁRUS JÓNSSON arráðherra búvísindi! Sann- leikurinn er sá, að þetta er einmitt það sem við gerum. I rúmt ár höfum við íslend- ingar eytt fé úr öllum sjóðum, sem tiltækir voru fyrir. Á þessu ári er búist við að verði halli á viðskiptum okkar við útlönd svo nemi um 4000 milljónum króna, skv. útreikn ingum sérfræðinga rikisstjórn arinnar. Þrátt fyrir stórfelld- ari erlendar lántökur en fyrr er því búist við að verulega gangi á gjaldeyrisforða þjóð- arbúsins á árinu, en hann er nú rúmlega 4.500 milljónir. Við lifum því sem þjóð langt um raunveruleg efni fram í mesta góðæri íslandssögunn- fyrningar ar. Við högum okkur eins og bóndinn sagði, tökurn mánað- arlega út innistæðu úr erlend- um bönkum til þess að drýgja tekjur okkar. Á meðan svo er og eitthvað er eftir, höfum við það gott. Sumir sérfróðir menn órða þetta þannig, að kaupmáttur sé mikill, en hvað kemur þá upp á teningnum, þegar gjaldeyrisforðinn og all ir sjóðir eru þrotnir? FYRIRHYGGJULAUST FLAN Aðstandendur núverandi ríkisstjórnar hafa undanfarin ár og áratugi þrástagast á því, að allan vanda megi leysa í íslenzku efnahagslífi með á- ætlunarbúskap og svonefndri heildarstjórn þjóðarbúskapar- ins. Trúir þessari frumbernsku hugsjón Marxista, hafa allir stjórnarflokkarnir nú samein- ast um að stórauka ríkisbákn- ið, draga vaxandi vald til Reykjavíkur og skattpína al- menning í landinu. Þannig hyggjast þeir geta tekið aukið fjármagn úr höndum borgar- anna og ráðstafað gegnum hið algóða miðstjórnarapparat. Nú mætti ætla, samkvæmt rituali ráðamannanna, að náðst hefði miklu betri heild- arstjórn þjóðarbúskaparins en áður. Sú hefur þó ekki orðið raunin á, eins og m. a. er bent á hér að framan. Niðurstað- an hefur orðið fyrirhyggju- laust flan í efnahagsmálum, sem m. a. lýsir sér í því að lifa langt um efni fram í því mikla metgóðæri, sem nú er. Ofan í kaupið er afleiðingin af þessum stjórnarháttum auð vitað sú, að sjálfsforræði ein- í góðæri staklinga og byggðarlaga minnkar stórum, en það er þróun, sem kemur þyngst nið- ur á landsbyggðinni. HVAÐ ER FRAMUNDAN? Þótt nú ári vel, afli hafi aldrei verið meiri, né hærra verð á útflutningsafurðum, eða hagstæðara árferði í land búnaði, þá er samt sem áður einkennandi, hvað fólk er kvíðið, þegar það ræðist við á förnum vegi. Spurningin, sem brennur á vörunum, er, hvað er framundan? Hvað ger ist um næstu áramót, þegar lýkur því tímabili, sem bráða- birgðaráðstafanir ríkisstjórn- arinnar ná til? Fólk veit, að ekki er hægt að lifa til eilífð- ar á gömlum fyrningum. Þær ganga til þurrðar, og það veit einnig, að endalaust er ekki hægt að ýta undan sér verð- bólguvandanum með frestun og skerðingu kaupgjaldsvísi- tölunnar, jafnvel ekki þótt um sé að ræða ríkisstjórn, sem upphaflega kenndi sig við „vinnandi stéttir.“ Flestir gera þó ráð fyrir því, að núverandi ríkisstjórn sitji að völdum um sinn, hvernig sem allt veltist. Ástæðuna telja menn þá, að Framsóknarmenn finni, að þingrof og nýjar kosningar séu vægast sagt ekki hagstæð- ar nú fyrir sig, og að kommar hafi þau völd í þessari ríkis- stjórn, sem þeir sjálfir telji óhugsandi að ná að lítt breytt um aðstæðum. Menn setja allt af spurningarmerki við Hanni bal, en varla nógu stórt til þess að búast við að hann losi þjóðina við þá óstjórn, sem hann ber sjálfur einna þyngsta ábyrgð á. Mannsæmandi lífeyrir fyr- ir tekjulausa öryrkja, er krafa Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, er sett var fram á 14. þingi samtakanna, er haldið var að Hótel Mælifelli á Sauð árkróki í síðasta mánuði. Fjöldi ályktana voru gerð- ar, og verða nokkrar þeirra nefndar hér á eftir. Þingið skorar á tollayfirvöld að fella niður alla tolla af hráefni til vinnustöðva öryrkja. Elli- og örorkulífeyrir verði aðskilinn, þar sem staðreynd er, að fólk gerir meiri kröfur til lífsins framan af árum. Unnið verði að því að fötluðum húsmæðr- um verði veittur styrkur til lcaupa á nauðsynlegustu heim ilistækjum. Öryrki, sem dvel- ur á sjúkrahúsi eða dvalar- heimili og er algjörlega tekju- laus, fái greidd 50% af lág- marksbótum til persónulegra þarfa. Meðal ályktana farartækja- nefndar: Á næsta ári verði úthlutað 500 bifreiðum til ör- yrkja. öryrkjar fái frjálst val bifreiðategunda. Þungaskatt- ur af bifreiðum lífeyrisþega verði felldur niður. Samtökin láti framleiða SOS-merki fyr- ir fatlaða bifreiðarstjóra, til nota í neyðartilfellum. Ályktanir félagsmálanefnd- ar voru m. a.: Gefið verði út félagsblað, einu sinni til tvisv ar á ári, er flytji fréttir af starfsemi öryrkjasamtaka inn- anlands og utan. Landssaiji- bandið haldi áfram að styrkja fólk til náms í sjúkraþjálfun og öðru því námi, sem snertir endurhæfingu. Unnið verði að því að öryrkjar njóti sérstakra lánakjara til húsbygginga. At- hugaðir verði möguleikar á að eignast landrými undir sum- arbúðir. Þingið fagnar þeim hugmyndum, sem frain hafa komið um íþróttaiðkanir fatl- aðra, og þakkar ÍSÍ fyrir á- huga á því máli. Þingið sóttu 54 fulltrúar frá ellefu af tólf deildum lands- sambandsins. Formaður næsta starfsár var kjörinn Theodór A. Jónsson. — G.S. ... á förnum vegi 81 CTSALA! ATHIJGIÐ! Útsalan er í bakhúsinu Gengið upp sundið að norðan Mýjar vörur á útsöluna teknar fram daglega LEÐURVÖRUR HF. Brekkugötu 3 — Sími 21100

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.