Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Blaðsíða 5

Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Blaðsíða 5
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - FIMMTUDAGUR 17. AGÚST 1972 5 Á laugardaginn var, 12. ág- úst, átti Steindór Steindórs- «on skólameistari sjötugsaf- mæli, og svo sem kunnugt er lætur hann nú fyrir aldurs sakir af stjórn skóla síns, Menntaskólans á Akureyri, en þeirri stofnun hefur hann þjónað sleitulaust nokkru meira en 40 ár. Þáð var einmitt á þeim vettvangi, sem fundum okkar bar fyrst saman og kynni okk ar hófust. Ég var þá að taka utanskólapróf upp úr öðrum bekk og kunnáttan allavega, ekki sízt í grasafræði, sem Steindór prófaði mig í. Ég fann fljótt, að þar var góðu að mæta. í stað þess að láta sem mest bera á vankunnáttu minni, þar sem hana var helzt að finna. var ég látinn njóta mín í því, er ég helzt gat gert grein fyrir, og við það lengst staldrað. Slík upphafskynni valda oft miklu um það, sem á eftir fer. En því rifja ég þetta líka upp, að það er að mínu viti táknrænt fyrir Stein dór Steindórsson. Hann var afskaplega raungóður nem- endum Qg velviljaður. Og ein- mitt á prófum leitaðist hann alltaf við að láta þá með ein- hverjum hætti njóta sín, og eru til skemmtilegar sögur af því, hversu langt hann gekk i tilraunum sínum að fá þá til að segja eitthvað jákvætt, þá er minnst kunnu. Mér verður reyndar oft hugsað til þess, hvílíkt úrval kennara ég fékk í öllum helztu greinum, þegar ég sett- ist í 3. bekk b. haustið 1942. Brynjólf Sveinsson í stærð- fræði, Halldór Halldórsson í íslenzku, Jón Jóhannesson í sögu, Sigurð Pálsson í ensku og Steindór Steindórsson í náttúrufræði. Kennsla Steindórs fannst mér alla tíð full af lífi, rösk- leika og gamansemi, en laus við steingerð hátíðlegheit eða óþarfa smámunasemi. Og of- prófun hefur alltaf verið eit- ur í beinum Steindórs Stein- Afmæliskveðja til Steindórs skólameistara dórssonar. Hann var sjálfkjör- inn ferðafélagi nemenda sinna árum saman, þegar til slíks var stofnað, bæði vegna þekk ingar sinnar á landinu og þess, að nemendum var ákaflega ljúft að hlíta skemmtilegri og skörulegri fararstjórn hans. Frá vísindastörfum Stein- dórs Steindórssonar er ekki á mínu færi að greina. Það hafa aðrir gert og þó engir betur, svo ég viti, en Hákon Bjarna- son skógræktarstjóri, sem bæði í ræðu og riti hefur sýnt fram á mikilvægi þeirra og nú síðast í bók þeirri með sýnishornum af verkum Stein- dórs, sem vinir hans hafa átt þátt í að koma út nú á sjö- tugsafmæli hans. Hitt veit ég og undrast, hve yfirgripsmik- ill fróðleikur Steindórs er og fjarri því að vera bundinn eða skorðaður við sérgrein hans, náttúrufræðina, og þó í víð- ustu merkingu hennar. Kunn- átta hans í sögu íslands t. d. og íslenzkum bókmenntum er með ólíkindum og allt það, sem maðurinn kann af kvæð- um eldri sem yngri. Næmið hel'ur verið frábært og minnið sterkt. Afköst og vinnugeta Stein- dórs Steindórssonar hafa mér líka verið aðdáunar- og undr- unarefni, og veit ég, að hann verður ekki í vandræðum með að fylla líf sitt miklu starfi og nytsamlegu, þó hann láti nú af embætti eftir langa og dygga þjónustu. Starfsorka hans sannaðist enn, er hann tók við starfi skólameistara, en engir vita, nema þeir sem eitthvað koma þar nærri, hversu óhemjumikla vinnu slíkt starf útheimtir í smáu og stóru. Allt það hefur Stein dór Steindórsson innt af hendi og ekki leyft sér að slá neinu á frest, og umfram öll hin dag legu skyldustörf við linnulaus an eril hefur hann staðið í endurbótum og nýjungum, sem lengi munu halda nafni hans á lofti í sögu skólans. Skal hér aðeins nefnt tvennt hið helzta, en það er stofnun náttúrufræðideildar við skól- ann og bygging hússins Möðru valla, þar sem kennsla í svo- kölluðum raungreinum fer fram við beztu aðstæður, og raunar sitthvað fleira. Um stofnun náttúrufræðideildar var hann brautryðjandi í ís- lenzkri skólasögu og hefur þar áhugi hans orðið sam- ferða straumi tímans, sem svo mjög liggur til þeirrar áttar. Og í framhaldi af þessu komu svo Möðruvellir, sem leystu húsnæðisvanda skólans svo vel, að þar hefur aldrei þurft að tvísetja, og má nú kallast vel rúmt um kennsluna. Félagsmálastarfs Steindórs og ritstarfa reyni ég ekki að geta í þessari litlu afmælis- kveðju. Hvort tveggja er fá- dæma mikið og í samræmi við afköst hans öll og starfs- hæfni. En ég vil að lokum þakka honum persónuleg kynni sem nemandi, samstarfsmaður og undirmaður. Þau hafa ætíð verið ánægjuleg fráþvíégfyrst kom upp hjá honum í rósar ættinni og kannaðist þó a. m. k. við mýrarós. Og ekki síður vil ég þakka margar ógleym- anlegar stundir, sem ég hef átt með honum á ferðalögum og þó allra helzt á heimili hans, því að þangað var jafn- an góðs fagnaðar að vitja, og þau hjónin samhent í bezta máta um rausn og alla skemmtan. Grimm örlög hafa nú svipt frú Kristbjörgu heilsu sinni og lífsfjöri, og bið ég henni blessunar og líknar. Steindóri Steindórssyni óska ég af alhug, að honum endist lenvi enn lífsþróttur sá hinn mikli. sem honum var gefinn til þeirra verka, sem áhugi hans og starfslöngun stendur til. Gísli Jónsson. Jóri Höskuldsson SÍMAVERKSTJÓRI, VOPNAFIRÐI Fæddur 2. sept. 1893. — Dáinn 22. júlí 1972. Jón Höskuldsson, símaverk stjóri á Vopnafirði, er látinn. Þegar ég heyrði dánartilkynn- inguna í útvarpinu, rann upp fyrir mér að áform mitt var úr sögunni, að hitta hann a. m. k. einu sinni á hinu við- felldna heimili hans, Sólgarði. Ég kom ekki svo til Vopna- fjarðar undanfarin ár, að ég hitti ekki þennan geðþekka og trausta mann, ef hann var heima. Ég kynntist honum fyrst við síinaverkstjórn í Fljóts- dal um 1950. Veitti honum at hygli fyrir mikla reglusemi og einbeittni í starfi. Og svo var hann sérstakur maður morg- unsins, gekk snemma til náða og reis árla úr rekkju. Slíkt var mér mjög að skapi. Mað- urinn var allur fastmótaður, fastmæltur, og einbeittnin blasti við í fasi hans og máli. Það var mér því mjög ljúft að endurnýja kunningsskapinn, er ég tók að eiga margar ferð- ir um Vopnafjörð, og kynnt- ist ég manninum þá enn bet- ur. Það var þægileg tilfinn- ing, sem bærðist í brjósti mínu, þegar Jón birtist bros- andi í dyrum eða á tröppun- um í Sólgarði, er ég heimsótti hann, og hlýjuna frá handtak- inu lagði Iangt inn. Tón Höskuldsson var einn m&mm® ..............—....... þeirra manna, sem ég er þakk látur fyrir að hafa kynnst á lífsveginum. Viðmótið, hlýjan og einurðin voru hrein lífs- næring, brugðu birtu á um- hverfið og þar með viðhorf til lífsins. Fyrir þessi ágætu á- hrif og ánægjulegu kynni vil ég í lokin þakka Jóni af alhug. Nú er hann fluttur til konu sinnar, sem látin er fyrir fá- um árum, og bið ég þeim bless unar guðs. Ég sendi börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum samúðarkveðju. Jónas Pétursson. VIÐTAL VIKIJINilMAR Rætt v/ð Trausta Gestsson Trausti Gestsson, skipstjóri, er flestum Akureyringum kunn ur sem farsæll og fengsæll skipstjóri, en Trausti hefur ekki sést á Akureyri í nær þrjú ár, svo blaðið greip tæki færið, þegar Trausti kom aft- ur til Akureyrar fyrir stuttu, og rabbaði við hann um störf hans síðastliðin þrjúí;fir. Trausti hefur nefnilega ver ið skipstjóri og ráðunautur á fiskileitarbátum FAO, mat- vælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hyggst halda því starfi áfram um hríð. Ég fór til FAO haustið 1969, því bæði voru góð laun í boði og svo voru verkefnin forvitnileg, og loks gat ég haft fjölskyldu mína með mér. Fvrst var ég sendur niður til Mið-Ameríku, en þar hafði FAO stöðvar í Salvador. Þar var mér fenginn fiskileitarbát- ur til stjórnar, og með mér vann íslenzkur fiskifræðingur, Jakob Magnússon. Verkefni okkar var sprottið af því að vciðar á grunnsævi höfðu dregizt verulega saman, en ekki voru til bátar sem gátu sótt á fjarlægari mið. Áttum við því að kanna, hvort fisk- ur væri það verulegur á djúp- miðum, að það svaraði kostn- aði að byggja upp veiðar þar. Við rannsökuðum alla Kyrrahafsströnd Mið-Ameríku og var útkoman neikvæð. — Hins vegar unnum við jafn- framt að margþættum, gagn- legum rannsóknum jafnhliða, og m. a. fundum við talsvert magn af síldartegund við Gu- etamala, sem Htið eða ekkert hafði verið vitað um hingað til. Mér er þó ekki kunnugt um að veiðar séu enn hafnar á þessum stofni. Þessar rann- sóknir tóku 15 mánuði. Hvernig gekk að samlagtst þessum fjarskyldu þjóðum og vinna jöfnum höndum fyrir Mið-Ameríkuríkin um leið og þau eiga í erjum sín á milli? Trausti brosir rólegu brosi. — Ég hafði alltaf sex þjóð- fána um borð og dró upp heppilegasta fánann eftir því sem við átti, auk þess sem bát urinn var rækilega merktur Sameinuðu þjóðunum, svo að ég slapp að mestu við á- rekstra. Þó vorum við eitt sinn kyrrsettir með valdi af yfir- völdum Pananra, þegar við vorum þó að vinna verk fyrir stjórnina, en það má leystist þó sem betur fer farsællega. Það virðist sem lítil samvinna sé þar innan stjórnarinnar, því ein höndin vissi ekki hvað hin var að gera. Þá hafði ég rétt siglt fram hjá 14 fiskibátum frá Salva- dor, þegar orrustuþotur frá Framhald á bls. 10.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.