Faxi

Årgang

Faxi - 01.11.1945, Side 5

Faxi - 01.11.1945, Side 5
F A X I 5 Viðtal við safnaðarfulltrúa GÍSLA GUÐMUNDSSON: Hátíðamessa í Hvalsneskirkiu Þann 11. 'ágúst í sumar var lokið við allverulega viðgerð á Hvalsneskirkju og var í því tilefni ’flutt hátíðam'essa í kirkjunni sunnudaginn 21. okt, s. 1. Ég hitti að máli safnaðarfulltrúann, Gísla Guðmundsson og bað hann að láta Faxa í té nokkra vitneskju um gang þessara mála, en Gísli hefur ver- ið, eftir því sem kunnugir herma, Kfið og sálin í þessum framkvæm'dum, þó hann sjálfur vilji lítið úr því gera. Varð Gísli góðfúslega við þessum tilmælum og fer hér á eftir samtal okk- ar eða öllu heldur ræða Gísla, því ef satt skal segja, þurfti ég lítils að spyrja, án þess gerði hann málinu góð skil, en þá sjaldan ég spurði einhvers fékk ég greið og glögg svör og var á öllu auðheyrt að hjá Gísla fer saman óvenjulegur áhugi og mikill kunnug- leiki á málefnum kirkjunnar. — Hvað vilt þú segja mér um að- draganda og framkvæmdir þessara mála, — spyr ég Gísla og hef þannig máls á þessu viðtali okkar, eftir að við höfðum heilsast og tekið okkur sæti. — Laust fyrir árið 1937 vaknaði nokkur áhugi fyrir endurbótum Og fegrun á kirkjunni, en þá varð hún 50 ára. Var guðþjónusta 'haldin í tilefni þessa merka afmælis. Á þeim árum var kirkjan bændaeign, en á því strönduðu allar framkvæmdir þá. — Hvernig ber að skilja það? — Til þess að hægt væri á þeim tím um að gera nokkuð sem um munaði fyrir kirkjuna, þurfti 'hún að fá hag- stæð lán, en þau fengust þá í hinum al- menna kirkjusjóði, en einungis til þeirra kirkna sem voru í eign safnað- aðanna sjálfra, en þessi lán voru veitt til langs tíma og voru vaxtarlág. Ketill Ketilsson frá Kotvogi faðir Ólafs Ketilssonar, byggði kirkjuna ár- ið 1884, en vígð var hún 1887. Átti Ketill þá alla Hvalsnestorfuna og mun hann áður hafa byggt á Hvalsnesi aðra minni kirkju og hermir miér gamall maður, Bjö.rn að nafni, sem lengi bjó að Hvalsnesi, að ástæðan fyrir því að Ketil'l lét byggja kirkju þá sem nú stendur þar, hafi verið sú, að eitt sinn er hann var við fermingar ó Hvíta sunnu á Hvalsnesi, hafi verið svo fjöl- m'ennt á staðnum að aðeins helming- ur hafi komist í kirkju, hafi Ketill þá ákveðið að byggja þar nýja kirkju og efnt það dyggilega. Og til marks um það, hve vel og traustlega hin nýje kirkja var byggð, er sögð sú saga, ac kirkjuhaldarinn, sem þá var Hákon Tómasson í Nýlendu og sem sá um að- drætti á byggingarefninu, bæði frá Duus í Keflavík og frá Hafnarfirði, haf: þegar hann skilaði reikningunum í hendur Katli heitnum og hann sá m. a í þeim 2ja tommu saum, þá 'hafi hanr sagt: „Hvar gátu þéir nú notað svona saum í þetta hús?“ Sr. Kristinn Daníelsson tjáði mér að Katli heitnum hafi verið það sér- stakt metnaðarmál að eiga sjálfur kirkjuna og halda henni skörulega við á sinn eigin kostnað. Eitt sinn hafi sö'fnuðurinn farið þess á leit við hann að hann afhenti 'honum kirkjuna, en við það var þá ekki komandi. Börn Ketils eignuðust Hvalsnestorfuna við fráfall föður síns og seldu þau ábú- endum jarðanna hverjum sína jörð og fylgdi kirkjan þá með í kaupunum í réttu hlutfalli miðað við jarðarmat, þannig, að allar jarðir í Hvalsnestorf- unni áttu part í kirkjunni í hlutfalli við stærð og hélzt sú skipan ó þess- um mólum, allt fram til ársins 1942, að það varð að sam'komulagi, að söfn- uðurinn tæki við kirkjunni. Þá í fyrsta sinn öðlaðist hún aðgang að hinum al- menna kirkjusjóði, en við það opnað- ist sæmilega aðgengilegur möguleiki á lántöku til framkvæmda. Árið 1943 var hafin fjársöfnun handa Hvalsnes- kirkju og safnaðist þá allveruleg fjár- fúlga, þó ekkert væri aðhafst frekara fyrr en eftir áramót 1943—44, en þá var ákveðið að ráðast í að gera við kirkjuna á því ári, vegna þess, að það ár var þriggja alda minningarár prests- víxlu sr. Hallgríms Péturssonar til Hvalsnesþinga. En þangað vígðist hann, með búsetau að Hvalsnesi, árið 1647. Var nú í þessu augnamiði sótt um f járstyrk til Alþingis með þeim árangri, að á fjárlögum það ár 1944 voru veitt- ar kr. 15000.00 til kirkjunnar og mátti kalla það góðan stuðning. — Byrjuðu þá endurbæturnar á kirkjunni það ár? Hvalsneskirkja — Ónei. Reyndar var þá strax fest kaup á efni til viðgerðanna, en sjálft verkið strandaði á því, að þá fékkst enginn maður til að vinna það. Þannig stóðu málin fram um áramótin 1944— 45, en þá tókst formanni sóknarnefnd- ar að fá Torfa Guðbrandsson til að taka verkið að sér, en hann réð til sín Jón bróðir sinn og má segja, að þessir 2 menn hafi mest unnið að viðgerð kirkj- unnar. Auk þeirra Guðna Magirússon- ar, má'larameistara, sem tók að sér að mála kirkjuna og Kristjáns Sig- mundssonar. Langar mig sérstaklega að láta þess hér getið, að allir þessir menn unnu verk sitt með hinni mestu sæmd og prýði, og fylgdu nákvæmlega fyrirmælum húsameistara ríkisins. — Viltu nú ekki segja mér í hverju þessi viðgerð var aðallega fólgin? — Fyrst var allur múr brotinn inn- an úr kirkjunni, en hún er hlaðin úr grásteini og hafði verið múrsléttuð að innan. Þessu næst var grásteininn slétt- aður að innan og svo lfmd' á hann vik- ureinangrun og múrhúðað yfir vikur- inn. Þá voru állir bekkir teknir og endursmíðaðir, og að lokum var kirkj- an svo máluð. Ég vil geta þess, að okk- ur hafði langað til að fó settar gylltar stjörnur í hvelfingu kirkjunnar, en þær kostuðu svo mikið fé í Reykjavík, að ráðamenn kirkjunnar töldu frógangs- sök að leggja út í slík kaup, og hefði kirkjan því orðið án þessarar akreyt- ingar, ef henni hefði ekki boðist óvænt hjálp. Það voru þeir Torfi og Guðni sem hjálpina veittu, Torfi skar stjörnu-

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.