Faxi - 01.11.1945, Page 10
10
F A X I
in á það horf, sem henni var ætlað, og
tel ég því að félagið ætti að snúa sér
að öðrum viðfangsefnum.
Hver yrðu þau helzt?
Það yrði nýja íþróttasvæðið, sem bú-
ið er að fá land undir ofan við Hring-
braut. Það er verið að vinna úr mæl-
ingum, sem gerðar voru af svæðinu og
teikna það.
Er verið að leggja núverandi íþrótta-
svæði niður?
Eins og allir vita er verið að byggja
sjúkrahús á hluta af því svæði, sem
notað er sem íþröttavöllur og ákveðið
er að barnaskólinn komi .hinum meg-
in á svæðið, eftir það eru engin tök á
að þar verði íiþróttaiðkanir.
Svo það er þá mjög aðkallandi að
nýja íþróttasvæðið komist upp?
Já, það er lífsspursmál íþróttanna
hér. Nú að undanförnu 'hefur íþrótta-
lífið verið með blóma.
Hvaða íþróttir iðkið þið helzt?
Auk sundsins skarar knattspyrnan
langt framúr. í sumar t. d. hafa þeir
keppt nokkrum sinnum og unnið alltaf,
nema einu sinni, en þá gerðu þeir jafn-
tefli við 1. fl. úr Fram frá Reykjavík.
Utkoma þessi er góð og spáir góðu um
íþróttaþroska okkar og væri því slæmt
að íþróttirnar yrðu að falla niður vegna
skorts á leikvangi.
Hafið þið ekki stimdað leikfimi og
aðrar inni íþróttir?
Félagið hefur að undanförnu haft 2
íþróttanámskeið árlega. Annað hefur
verið leikfimi karla og kvenna, en hitt
knattspyrna, sem að mestu leyti hefur
farið fram inni, og handbolti. Þar hafa
nemendur komizt niður í 5 ára aldur.
Fer þessi kennsla fram í núverandi
húsi ykkar?
Já.
Er það hentugt til þessarar starf-
semi?
Það hefur nú verið erfiðleikum bund
ið, þar sem svo mörg önnur starfræksla
fer fram. Sérstaklega hafa dansleikirn-
ir átt sinn þátt í að gera okkur erfitt
fyrir. Húsið hefur oft verið svo illa út-
leikið af völdum drukkinna manna, að
tekið hefur langan tíma að koma því
í stand. Og einmitt núna er verið að
ljúka við stórviðgerð, sem bæta ætti
möguleika fyrir fþróttastarfi og enn-
fremur hefur stjórn félagsins ákveðið
að leigja ekki húsið undir dansleiki,
sem yrðu með svipuðu sniði og að und-
anförnu.
— Hvað telur þú helzt saknæmt við
dansleikina að undanförnu?
— Fyrst og fremst tel ég alvarlegt
ástand ríkja í áfengismálunum og sér-
staklega þó hvað við kemur nýfermd-
um unglingum. Það hefur sýnt sig á
nokkrum síðustu dansleikjum, að
drengir á aldrinum 15—17 ára hafa hóp
um saman verið næstum ósjálfbjarga
sökum áfengisnautnar. Eins og kunn-
ugt er, veldur ölvun oft áflogum og
öðrum ósæmilegum athöfnum, sem
valda stórtjóni á 'húsi og húsmunum.
En það sem veldur mestum áhyggjum
í sambandi við drykkjuskap ungling-
anna er það, að það útaf fyrir sig upp-
lýsir að leynivínssala muni eiga sér stað
hér, því að eins og öllum er kunnugt,
afgreiðir Áfengisverzlun ríkisins ekki
áfengi til unglinga. Og þar sem það
eru leynivínsalarnir, sem eru raunveru-
lega valdir að þessum hættulega
d'rykkjuskap unglinganna er erfitt að
koma ekki ábyrgð á hendur þeim.
— Hafið þið þá ekki hugsað ykkur
að hafa dansleiki í vetur?
— Jú, við höfum hugsað okkur að
húsið verið notað undir dansleiki í
vetur, og í því m&rkmiði höfum við
ráðizt í að láta „Parket“-gólf í húsið,
sem talin eru beztu dansgólf, sem völ er
á. Einnig er verið að mála og breyta á
ýmsan hátt, m. a. gert ráð fyrir að
breyta veitingafyrirkomulaginu. En við
höfum í 'hyggju að semja við lögregl-
una um aðstoð varðandi það, að allir
þeir, sem framvegis gera óspektir í
húsinu á einn eða annan hátt, fái ekki
að koma þar á skemmtanir um óákveð-
inn tíma. Það er óþolandi að nokkrir
menn geti með óspektum og ruddalegri
framkomu eyðilagt skemmtanir fyrir
friðsömu fólki.
— Hvaða önnur starfsemi fer fram
í húsinu?
— Það er til dæmis íþróttakennzla
barnaskólans, bíórekstur, fundahöld og
ýmis konar skemmtanir og félagsstarf-
semi.
— Fer allt þetta vel saman?
— íþróttakennzla barnaskólans er
örðugasta viðfangsefni, þar sem ýmis
kennzluáhöld vantar þar gjörsamlega,
enda var gert ráð fyrir að 'þetta yrði
aðeins bráðabyrgða húsnæði, og er
mjög nauðsinlegt að komið verði upp
fullkomnum íþróttasal til þessarar
kennslu og iðkunar annarar inniíþrótta.
— Urðu ekki endurbæturnar dýrar?
— Jú, kosnaðurinn við endurbæturn-
ar varð mikill, en við teljum það nauð-
synlegan menningarbrag að geta boðið
fólki upp á vistleg húsakynni og treyst-
um á, að félagar okkar verði duglegir
við fjáraflaplön okkar.
— Starfrækið þið ekki bókasafn?
— Jú. Eitt af fyrstu verkum félags-
ins var að endurreisa það. Bókasafnið
hafði ekki verið starfrækt um nokkurra
ára skeið. Félagið bauð því þáverandi
herppsnefnd að skipuleggja það upp og
sjá um rekstur þess. Það var Olafur
Ingvarsson, sem átti mestan þátt í að
byggja það upp að nýju og gera það
vinsælt. Annars er það útaf fyrir sig
vandamál, sem þarf að leysa fljótt. Það
þarf að veita því betra húsnæði og hafa
það oftar opið, svo að bókamenn geti
haft betri not af því.Lesstofa væri mjög
æskileg í sam'bandi við safnið. Hrepps-
urinn á safnið og leggur því nokkurt fé
og hýsir það í barnaskólanum. Vegna
slæmrar aðbúðar hefur reynzt erfitt að
fá félagana til að gegna bókavarðar
starfinu.
— Hver verða framtíðarverkefni U.
M.F.K.?
— Eins og við höfum þegar rætt um,
tel ég að íþróttasvæðið verði það næsta.
Og eftir að það er fullgert, má vænta
þess, að hér færi fram íþróttamót Suð-
urnesja, sem kunni að marka nýjar
skorur í stiga íþróttaafreka hér á landi.
Þá tel ég að viðfangsefni U.M.F.K.
verði afskipti af væntanlegum skrúð-
garði hér í Keflavík svo og nýtt sam-
komuhús. Þá má minnast á byggðasafn
og ýmis fleiri menningarmál hér í Kefla
vík. Þá gæti ég hugsað mér að félagið
beitti sér fyrir því að fá hingað kunn-
áttumenn í ýmsum listum til að leið-
beina okkur og lýsa svolítið inn á þær
brautir — öllum til gagns og ánægju.
Það hefur meira að segja staðið til að
fá hingað leiðbeinanda í leiklist og fram
sögn, en sama teldi ég að mætti gera
um fleiri listir. Leiklistin hefur verið
og verður sjálfsagt stór liður í vetrar-
starfsemi okkar. T. d. var Skugga-
Sveinn leikin aftur í fyrra og stendur
til að sýna hann enn nokkrum sinnum
í haust. Annars eru máléfni og leiðir
ungmennafélaga ótæmandi.
Það er alkunna að nokkrir áhuga-
og dugnaðarmenn, studdir af félags-
samtökum, geta oft áorkað og leitt til
lykta framkvæmdir, sem heil hrepps-
félög geta ekki af höndum leyst, sökum
pólitísks sundurlyndis og annara kring-
umstæðna. Það er því lán hvers byggð-
lags sem á félagslega þroskaða þegna.
J. T.