Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1948, Blaðsíða 1

Faxi - 01.06.1948, Blaðsíða 1
6. tbl. 8. ár Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík VERTÍÐARLOK /Vð þcssu sinni voru allir ’bátar hér syðra hættir línu og netjaveiðum 20. maí. Ver- tíðin var óvenju veðrasöm, og gæftir mjög slæmar. í marz voru t. d. aðeins farnar 8 eða 9 sjóferðir, en sá mánuður gefur að jafnaði mestan afla, og er þá líka nýting hans bezt. Vegna Hvalfjarðarveiðanna, sem margir héðan að sunnan stunduðu, 'byrjuðu bátar hér mjög misjafnlega snemma vetrarver- tiðina, og síðar en undanfarin ár. I janúar byrjuðu 6 bátar þorskveiðar, í febrúar voru þeir orðnir 16, í marz 25, og alls urðu þeir 26; þar af 18 með línu, 5 með net og 3 með botnvörpu. Afli var góður 'þegar á sjó gaf framan af vertíð, en þegar leið á aprílmánuð, þá tregaðist afli svo, að um tíma leit út fyrir að línuvertíð væri' búin, enda skiptu þá nokkrir bátar um og fóru á togveiðar. I maí glæddist afli aftur, Magnús Bergmann frá Fuglavík, skipstjóri á m.b. Jóni Guðmundssyni. og hélst góður fram í miðjan mánuðinn. Hæstan afla í róðri hér syðra hafði m.b. Mummi frá Garði, skipstjóri Garðar Guð- mundsson, en það voru 26,5 smálestir. Hér í Keflavík var hæsti róður hjá m.b. And- vara, eða 24 smál. í einum róðri. Veiðarfærakostnaður varð nokkru hærri en á síðustu vertíð. Stafar það af hækkuðu verði á veiðarfærum. Útgerðarkostnaður annar mun vera nokkuð svipaður. Línu og togfiskur var seldur í hraðfrysti- húsin, eitthvað lítið var saltað. Aftur var allur netjafiskur saltaður. Munu reglur vera fyrir því að ekki megi vinna hann í hraðfrystihúsum til frystingar. Afli netja- bátanna var góður á þessari vertíð, og hugsa nú ýmsir til þeirrar veiðiaðferðar næst. Hrogn voru söltuð og nokkuð af þeim fryst, þunnildin söltuð og fékkst sæmilegt verð fyrir þau. Aður hefir þeim verið kastað. Fiskiðjan vann öll bein, og Lýsisbræðslan lifur, en hvorugt þessara fyrirtækja hafði nóg hráefni til fullra af- kasta. Hæsta afla af Keflavíkurbátunum hafði m.b. Jón Guðmundsson skipstjóri Magnús Bergmann frá Fuglavík, Aflaði hann 641 smál. í 72 róðrum. Aflahlutur á honum utan lifur og hrogri var kr. 14.124,22. Næstur var m.b. Vonin frá Norðfirði, skip- stjóri Gísli Halldórsson, Keflavík. Var afli hans 600 smál. í 73 róðrum. Þriðji í röð- inni var m.b. Guðfinnur, Keflavík, skip- stjóri Guðm. Guðfinnsson, Keflavík, með 510 smál, í 66 róðrum. Hæsti meðalatli í Keflavík var hjá m.b. Keflvíking, skip- stjóri Valgarð Þorkelsson. Aflaði hann 401 smál. í 41 róðri, eða 9,8 smál. í róðri til jafnaðar. Júní 1948 1 Sandgerði var aflahæstur m.b. Vík- ingur frá Keflavík, skipst. Haraldur Kxist- jánsson. Aflaði hann 651 smál. í 87 róðr- um. Hæsta meðalafla þar hafði m.b. Mummi, um 10 smál. í róðri. Hér að neðan er endanlegt yfirlit yfir lifrarmagn bátanna og róðrafjölda: Kef la víkurbátar: R. L. Guðfinnur, Keflavík, lína ... 66 38431 Voriin II, Norðfirði, lína.... 73 42701 Anna, Njarðvík, net............. 72 35308 Jón Guðm., Keflavík, lína .... 72 46802 Ólafur Magnúss., Keflav., lína 60 35458 Júlíus Björnss., Keflav., lína .. 48 20637 Reykjaröst, Keflavík, lína . 39 22862 Svanur (áður Dux), Keflav. 1. 62 36035 Eiríkur, Eskifirði, lína ....... 50 23537 Bjarni Ólafsson, Keflavík, lína 41 21842 GyJ.fi, Njarðv., net ........... 46 19188 Vísir, Keflavík, lína........... 52 32170 Heimir, Kefiavík, lína 33 20118 Andvari, Þórshöfn, lína....... 55 33479 Nonni, Keflavík, botnv........ 29 13518 Jón Finnsson, Garði, botnv. 28 15547 Haraldur Kristjánsson, skipstjóri á m.b. Víking.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.