Faxi - 01.10.1956, Side 1
FAXI
1
7. tbl. • XVI. ár
OKTÓBER
1956
U tgefandi:
Málfundafélagið Faxi
Keflavík.
Marta Valger&ur Jónsdóttir:
Minningar frá Keflavík
Sigurfinnur Sigurðs-
son íshússtjóri í Kefla-
vík og kona hans,
Jónína Jónsdóttir og
börn þeirra:
Gunnar, Sigurbjörg,
Asgeir og Sigríður.
Fyrir ofan bæ Guðjóns skipasmiðs var
bær Sigurfinns og Jónínu. Það var torf-
bær og áfastur við bæ Guðjóns. Þennan
bæ böfðu forcltlrur Jónínu átt og búið
þar langa ævi.
Jónína og Sigurfinnur voru bæði einkar
vönduð í dagfari og elskulegir nágrannar,
boðin og búin til þess, að rétta öðrum
hjálparhönd hvenær sem færi gafst.
Sigurfinnur var fæddur á Minniborg
undir Eyjafjöllum 11. des. 1872. Voru for-
cldrar hans Sigurður Natanaelsson og
og kona hans, Asta Jónsdóttir.
Sigurður, faðir Sigurfinns, var skamm-
lífur, hann drukknaði í Króksóssundi í
Garði af skipi frá Útskálum 7. apríl 1877.
Var Sigurður þá vinnumaður á Raufar-
lelli, en sjómaður á Útskálum hjá scra
Sigurði H. Sivertsen er þar var prestur frá
1837 til 1886. Séra Sigurður Sivcrtscn var
fræðimaður og skrifaði meðal annars stutt-
orðar lýsingar um sóknarbörn sín, cr
honum hefur að einhvcrju leyti þótt um-
talsverð. Um Sigurð Natanaelsson segir
hann, um leið t>g hann færir andlát hans
inn í prestsþjónustubókina: „Dugnaðar-
maður, ráðsettur og vel metinn.“ Móðir
Sigurðar og amma Sigurfinns ^ar Dýr-
finna Kolbeinsdóttir, þá húsfreyja í
Hvammi undir Eyjafjöllum, gift Sigurði
Sigurðssyni bónda þar. Þau hjón tóku
Sigurfinn í fóstur og ólst hann þar upp
til fullorðins ára.
Sigurfinnur naut ömmu sinnar skamma
stund, því hún andaðist 1878, en þá tók
við heimilisforráðum dóttir hjónanna,
Katrín Sigurðardóttir, og naut Sigur-
finnur umhyggju hennar í ríkum mæli,
þótt lnin væri þá ung að árum.
Hvammsheimilið hafði verið með
myndarlegustu heimilum þar eystra og
heimilisbragur allur lil fyrirmyndar.
Katrín föðursystir Sigurfinns varð há-
öldruð kona, komst á tíræðisaldur, hún
dvaldi síðustu ár sín hér í Reykjavík
(Morgunbl. 20 marz 1947.) Af kynnum
mínum við hana og dóttur hennar, frú
Dýrfinnu Gunnarsdóttur kennara, sá
að ekki var ofsögum sagt af 'Hvamms-
heimilinu, svo báru þær mæðgur af um
hagleik, dugnað, greind og alla elsku-
semi. Má af þessu sjá að Sigurfinnur
hefur fengið hið ágætasta veganesti frá
þessu heimili, enda mátti segja það sama
um hann og Hvammsfólkið.
Faðir Dýrfinnu í Hvammi var Kolbeinn
Jónsson sem bjó í Suðurkoti við Krísu-
vík og þar var Dýrfinna fædd 1830, en
10 ára gömul var hún tekin í fóstur að
Hrúnum undir Eyjafjöllum. Þar bjó þá
frændi hennar, Kolbeinn Ingimundarson,
en þeir nafnarnir voru bræðrasynir. En
faðir þeirra Jóns og Ingimundar var Kol-
beinn í Krosshjáleigu í Sandeyjum, Ás-
láksson.
Jónína Þórðardóttir, kona Sigurfinns,
var fædd í Keflavík 8. sept. 1871. Voru
foreldrar hennar Þórður Gísli Jónsson og
kona hans, Guðrún Bjarnadóttir, en þau
bjuggu í Keflavík alla sína búskapartíð,
frá 1866. Guðrún kom frá Reykjum í
Þingeyrarsókn í Húnavatnssýslu, en fædd
var hún í Fróðársókn á Snæfellsnesi,
dóttir hjónanna Hjarna Bjarnasonar á
Húsum og konu hans, Ragnheiðar Niku-
lásdóttur á Húsum, Einarssonar.
Guðrún var orðlögð gæðakona og vin-