Faxi - 01.10.1956, Page 11
F A X I
99
Skriffinnur:
§) fWn
Sumarið 1956 byrjaði með sumardeginum
fyrsta og öðrum í sumri hjá þeim, sem
höfðu ráð og rænu til þess að rétta sig af.
Svo varð sólskin, samfelld dagskrá. Muna
ennlifandi frummenn ekki, að sól hafi upp-
runnið og staðið jafnlengi kyrr yfir réttlát-
um sem ranglátum skattframtölum, frambjóð-
öndum og ríkisstjórnum. Ó, hefðum vér ekki
burtkallast úr 17. júní-nefndinni eins og
Helgi S., mundum vér fóma skrúðgarðsroll-
unum Sólguði til dýrðar og fjölgunar fjárins
hinumegin.
Kjördeild kaupfélagsins var opnuð með
sítroni hérnamegin við Hringbraut og
hundadaga. Hefur rignt siðan. Og sitronbragð
af regninu.
Málning féll á mörg hús í sumar ánþess svo-
mikiðsem beigla þak eða brjóta rúðu.
Menn máluðu einkum uppúr kjarnorku. Og
kvu ekki þurfa að kynda upp kjarnorkuhúsin.
Svona eldglóandi. Og án þess að brenna íil
ösku.
Heil Heilbrigðisnefnd kvu í S-inu sínu uppá
síðkastið og úrkastið, nebbnilega af-
beitu- og lóðaflækjuhauga á bátasvæðum
Kjebblavígur. Haugalýgi er þetta ekki, þar
sem eigendur hauga hafa fógetabréf uppá
„einn í flækju og tvo í for“ og Súezdeila
eða svoleiðis uppum allan Bás og Vatnsnes-
kletta. Án þess að vilja skyggja á Dag
Hamarskjöld eða leika tveim skjöldum, þá
leggjum vér til að samin verði og undir-
rituð bænaskrá til þorskanna í sjónum, að
endursenda oss hinum aldregi beitu á þurrt.
En lóðarflækjuhaugar skulu óbreyttir
standa, einsog endurkærð útsvör, svoað allir
megi sjá, hvursu snærisþjófar hafa úrkynj-
ast á útskögum.
Kanaútvarpið klósar frá miðnætti til sixó-
klokk. Svá krotar iðnaðarmaður oss með
tréblýanti á sandpappír og heimtar sinn Kana"
á spani 28 tíma, það er þann sólarhringspart,
sem maðurinn er á kaupi. Segir sandpapp-
írskrotari, að axarsköft endist lengi undir
Rokka-rollum Kanans og lausar skrúfur
forskrúfist betur, heldur en undir erindum
Kirkjugarða um Sálfræðinga í hinu útvarp-
inu á Islandi.
Svei oss, ef vér erum ekki samdauna cré-
blýantstálgaranum.
Biókjallari hefur fengið palla og tröppur
ofaní sig, svoað vér og annað stór-
menni, er víseterar staðinn þarf trauðla að
bregða fyrir sig fótskriðu og flikkflakki á
ísingum og glerhálkum komandi vetrar. Hæg
er leið, ef hallar undan fæti, og ekki munu
allir, sem ofan fara palltröppurnar, uppkom-
ast tröppulaust.
Símaskráin eður rifrildi vort af henni, leysti
ekki úr miðnæturvanda mannsins, sem
hnoðaði þessa:
Skráin er til skaða og Ijóns,
skapar manni ergi:
„Trésmiðjur“ og „Trausti Jóns,“
— en „Tjarnarlundur" hvergi.
Rottugangur er í fullum gangi og enginn
seinagangur á þeim heimagangi. Blessa
fáir inngang þann og útgang, einkum inn-
gang. (Uppgangur og niðurgangur innifal-
inn.) Gangur á þeim.
Vestmannaeyjaför Karlakórs Keflavíkur er
liðin hjá.
Rcnnustcinn er risinn úr vötnunum með-
fram Hafnargötu. Vestanverðri, auðvitað, í
anda vestræns löndunarbanns og svoleiðis.
Holt es heima hvat, og vér höfðum lengi
hlakkað til að fara í heimatilbúinn rennu-
stein svona til tilbreytingar frá hinum stein-
inum, sem þó er ekki steinn, heldur ryð og
fúi. Eða kistan! Enginn heilvita myndi láta
alvörulfk oní svoleiðis ílát.
Jæja, en Adam heitinn var ekki lengi í
henni Paradís eftir að Eva sáluga fór að hlaða
utaná sig gervibrjóstum, púðum og öðru fata-
kyns — og vér ekki heldur í rennusteinin-
um.
Maður kom að morgni með kasketi og kúst
og sópaði oss upp og útí gufuhvolfið. Og tók
ekki einu sinni ofan við athöfnina.
+----------------------------------------------------------------------+
I
I
Í
HREINLÆTISTÆKI
Handlaugar 6 stærðir frá kr. 112,00
Klósett, sambyggð, kr. 1261,00
Baðker, tvær stærðir, kr. 1425,00 og 1235,00
Klósettsetur, hvítar kr. 207,00
Klósettsetur, svartar kr. 180,00
Einnig setur fyrir sambyggð klósett
Stálvaskar
Kaupfélag Suðurnesja
Hafnargötu 61