Faxi - 01.02.1958, Qupperneq 3
F A X I
19
Hafnarfirði, faðir Mettu Kristínar, móður
séra Olafs Olafssonar í Hjarðarholti í
Dölum, föður Kristínar læknis í Reykja-
vík.
Systkini Mettu Olafsdóttur voru:
jónas Ólafsson, bjó á Hvaleyri við
Hafnarfjörð.
Níels Ólafsson, bcykir í Hafnarfirði.
Jens Ólafsson, bjó í Einarshöfn og víðar
þar eystra.
Margrét Ólafsdóttir, átti Tómas Sveins-
son í Litlabæ í Reykjavík.
Valgerður Ólafsdóttir, átti James Robb,
enskan kaupmann í Rvík, og Jón Ólafs-
son, fór utan.
Dóttir Jens Ölafssonar var Ingibjörg,
kona Jóhannesar Magnússonar múrara í
Kasthúsum í Reykjavík, sonur þeirra var
Jens, faðir Jóhannesar skósmiðs í Reykja-
vík, föður Brynjólfs leikara og Jens sál.
læknis, cn dóttir Ingibjargar og Jóhann-
esar var Guðbjörg, móðir frú Rósu, konu
Helga Hjörvars.
Guðrún Egilsdóttir var myndarkona, er
bar í svipmóti auðsæ merki um geð og
gerð, hún var forkur dugleg og hrein-
leg að sama skapi, hún var ágæt mat-
reiðslukona, enda tók hún oft menn í
fæði um lengri eða skemmri tíma. Var
allt hreint og fágað á heimili hcnnar, utan
húss sem innan. Man ég hve þvottur
hennar var drifhvítur og fallegur og vcl
licngdur upp á snúrurnar.
Kæmi það fyrir að ég væri send í hús
hennar, tók hún ævinlega á móti mér
með hýru brosi, sem leið svo fallega yfir
andlitið og gerði svip liennar móðurlega
mildan.
Börn þcirra Guðrúnar og Eyjólfs voru:
1. Þórarinn, trésmiður í Keflavík, kona
lians er Elinrós Benediktsdóttir, ljós-
móðir frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd.
2. Guðrún, átli Benedikt Bencdiktsson,
hún andaðist í Keflavík .51. júlí 1957.
3. Jón, útgerðarmaður í Keflavík, kona
hans er Guðfinna Bcnediktsdóttir, systir
Elinrósar ljósmóður, ein dóttir þeirra,
Sesselja, vann hetjulegt sund- og björg-
unarafrek austur á Seyðisfirði fvrir
nokkrum árum.
•4. Karl, verkstjóri í Keflavík, kona ltans
cr Hólmfríður Einarsdóttir.
5. Halldóra, kona Einars Guðmundssonar
skipstjóra frá Nesi. Þau búa í Bolla-
görðum á Seltjarnarnesi.
ó. Eyjólfur, vélstjóri í Kcflavík, kona
hans cr Sigurbjörg Davíðsdóttir frá
Hvammi á Akranesi.
Sigríður Jónsdóttir frá Vatnsnesi.
7. Egill, múrarameistari í Keflavík, kona
hans er Hclga Þórarinsdóttir.
Eitt barn þeirra hjóna dó á unga aldri.
En niðjar þeirra beggja Garðshorns-
hjónanna eru nú orðnir fjölmargir og frá
þeim komnir í 3. og 4. lið.
Eyjólfur Þórarinsson andaðist 51. des.
1931, cn Guðrún Egilsdóttir, kona hans,
9. jan. 1941.
1 bcinni línu, spölkorn fyrir austan
Garðshorn, var Bjarnahús, stundum nefnt
Borgfjörðshús cða Bjarna Borgfjörðshús.
Þetta hús stendur enn og var lengi cign
Gamalíels Jónssonar, sem lézt á Kefla-
víkurspítala á síðasta ári. Húsið var byggt
1S89, byggði það borgfirskur maður,
Bjarni Bjarnason, er nefndi sig Borgfjörð.
Kona hans var Guðrún Þorsteinsdóttir, f.
í Langholti í Borgarfirði 23. sept. 1853.
Var móðir hennar Eyrnv Björnsdóttir
bónda á Eyri í Flókadal Þorleifssonar
bónda í Tungufelli í Lundarreykjadal,
Snorrasonar, er margt merkra manna frá
Þorleifi. Guðrún var góð kona og hjarta-
lilý. Þau Guðrún og Bjarni áttu fjórar
dætur er þau settust að í húsi sínu og
tvö bættust í hópinn á næstu árum. Elzta
dóttir þeirra var Gróa, seinni konar Þor-
varðar prestsmiðjustjóra í Reykjavík, Þor-
varðarsonar, önnur var Eyrný, hún var
uppeldisdóttir séra Janusar Jónssonar, er
lengi var kennari við Flensborgarskólann
og konu hans, Sigríðar Halldórsdóttur.
Eyrný er kona Einars Þórðarsonar úrsmiðs
í Hafnarfirði, bróðir þeirra systra var
Bjarni, verkam. í Rvík, Fálkagötu 15.
Arið 1890 flutti Jón Bjarnason, bróðir
Bjarna cinnig í húsið og gerðist þá eig-
andi að hálfu húsinu. Kona hans hét
Hallbera Jónsdóttir, var hún 15 árum
eldri en bóndi hennar. Á vist með þeim
var dóttir Jóns er Kristín hét. Þau bjuggu
niðri í húsinu en Bjarni og hans fjöl-
skylda uppi á loftinu. Þeir bræður stund-
uðu sjó og unnu við landvinnu þess á
milli. Jón Bjarnason var báseti hjá Guð-
jóni Þorkelssyni formanni, var hann einn
þeirra manna er drukknuðu með Guðjóni
í Hvalfjarðarferðinni 4. des. 1897 (Faxi
XV. ár, 9.—10. tbl.)
Þau hjón höfðu eignast dóttur, er Guð-
laug hét, hún lézt á öðru ári. og syrgði
Hallbera hana mikið. En Kristínu litlu
dóttur Jóns sendi Hallbera frá sér eftir
drukknun föðurins, var sagt að hún hefði
ekki „átt sjö dagana sæla“ hjá stjúpu sinni.
Bjarni bróður Jóns hvarf einnig úr Kefla-
vík um líkt leyti, og var þetta fólk allt
horfið er foreldrar mínir fluttust á loftið
í húsi þessu vorið 1899, en þar bjuggu þau
í tvö ár. Hallbera bjó ein í sinni íbúð,
hún var Arncsingur að ætt, fædd i Ölvaðs-
holti 29. maí 1850. Voru foreldrar hennar
Jón Sigurðsson bóndi þar og kona hans,
Guðlaug Þórðardóttir, bónda á Mýrum
í Flóa, Oddssonar bónda á Gafli, Sturlu-
sonar. Jón, faðir Hallberu, var sonur Sig-
urðar Erlendssonar er bjó í Hjálmholti
(dr. G. J. Bólstaðir og búendur í Stokks-
eyrarhreppi, bls. 91). Hallbera var þokka-
leg kona í sjón, hreinleg og dugieg til
allra verka og búkona, hún mun hafa
verið allvcl efnuð. Það þótti ekki vanda-
laust að búa í námunda við hana og cnga
vini mun hún hafa eignast meðal ná-
granna sinna og hefur hún þó án efa
þráð að eiga vini, til þess bendir sá háttur
hennar, að hún tók nærri daglega á móti
gestum, sem engir voru, bauð þeim inn,
ræddi við þá, gæddi þeim á kaffi og fylgdi
þeim að síðustu til dyra, kvaddi þá með
blíðu og þakkaði komuna, en þess gætti
bún vandlcga, að enginn sæi er hún tók
á móti gestum sínum cða fylgdi þeim til
dyra. Sætti ég því stundum lagi, er við
bjuggum í Bjarnahúsi, að koma henni í
opna skjöldu, er hún var að kveðja gest-
inn, en ekki máttu forcldrar mínir vita
um þessi óknytti, því þau lögðu ríkt á
við mig að koma vel fram við Hallberu.
Hallbera andaðist 15. ágúst 1905 eftir
stutta legu.
Vorið 1901, er við fluttum úr Bjarna-
húsi, fluttu þangað hjónin Sigríður Jóns-
dóttir og Grímtir Herónymusson. Sigríð-
ur var fæclcl 19. marz 1865 á Vatnsnesi
við Keflavík, dóttir Jóns ríka Nikulás-
sonar og konu hans, Kristínar Magnús-