Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.02.1958, Qupperneq 6

Faxi - 01.02.1958, Qupperneq 6
22 F A X I Séra Björn Jónsson: Þœttir úr Þýzkalandsdvöl Eins og mönnum er í fersku minni, dvaldi sr. Björn Jónsson við nám í Þýzkalandi um eins árs skeið, og kom hann heim úr þessari dvöl sinni á s.l. sumri. Skömmu eftir heimkomuna var hann fenginn til þess að flytja erindi á héraðsfundi Kjalarnesprófastdæmis, sem haldinn var í Vestmannaeyjum dagana 14. og 15. september. Erindið fjallar um dvöl sr. Björns í Þýzka- landi, kirkjulíf þar og margvíslegar félagslegar hreyfingar hinnar þrótt- miklu og hart leiknu þýzku þjóðar, sem með undraverðum dugnaði og eftirbreytnisverðum hefir tekizt að endurreisa land sitt úr rústum síðustu heimsstyrjaldar. Þótti erindið hið fróð- legasta og hefir Faxi því fengið leyfi til þess að birta það lesendum sínum. En sökum rúmleysis í blaðinu verður erindinu skipt niður á tvö til þrjú tölublöð. Kitstj. Heiðruðu kirkjugestir! Mér hefir verið falið að flytja erindi hér í kvöld. Og þar eð ég er nú ný- kominn heim frá eins árs námsdvöl í Þýzkalandi, þá datt mér í hug að segja ykkur frá nokkru af því, sem har fyrir augu mín og eyru, bæði hvað snertir kirkjulíf almennt — og þau vandamál, sem þýzka kirkjan í dag horfist í augu við og á við að stríða. — Eitt langar mig til þegar í upphafi að taka fram, til þess að geti eigi valdið misskilningi. Að það sem ég kann að koma inn á liina stjórn- málalegu hlið málanna, ber á engan hátt að skilja sem pólitískan áróður, heldur er þar sagt frá sjónarmiði hins algjör- lega hlutlausa áhorfanda. Ég bið ykkur að hafa það hugfast, er ég siðar drep á þetta viðkvæma og umdeilda atriði. Námsstyrk fékk ég frá „lútherska heimssambandinu“, „Lutheran World Federation", og skyldi ég stunda námið í Tiibingen í Suðvestur-Þýzkalandi. Það er lítil , fornfræg háskólaborg, — frábær- lega fögur. Ibúatala þar er um 30 þús- undir, — en stúdentafjöldinn, sem þar stundar nám, er á 8. þúsund, — þar af 400 guðfræðingar eða rúmlega það. Eins og e. t. v. einhverjum ykkar mun kunnugt vera, þá er Þýzkalandi (þ. e. a. s. Dómkirkjan í Ulm í Wiirttemberg. Hæsti kirkjuturn veraldar, ca. 150 m hár. V.-Þýzkalandi, en þegar ég hér eftir tala um Þýzkaland án athugasemda, þá á ég við Vestur-Þýzkaland) í dag skipt í all- mörg, nánar tiltekið 22 lönd, sem hafa í mörgum málum sína eigin stjórn, — t. d. stjórn kirkjumála. Þannig hefir t. d. hvert land sinn sérstaka biskup (þ. e. a. s. hin evangelisk lútherska kirkja), — og hann aftur kirkjustjórn sér við hlið. — Þýzka kirkjan er að verulegu leyti fri- kirkja, en nýtur þó nokkurs stuðnings frá ríkinu. Það land, sem ég dvaldist í, heitir Wiirttemberg. Segja má, að kirkjulíf þar væri með miklum blóma, — og hefir það verið svo um langt skeið, — sennilega allt frá tímum siðaskiptanna. Stærsta borgin í Wúrttemberg, — og um leið höfuð- borgin þar, heitir Stuttgart, og er luin talin kirkjulegast sinnuð af stórborgum Þýzkalands. Annars mun það vera þannig þar, eins og svo víða annars staðar, að í stóru borgunum er kirkju- og kristnilíf í mestum molum .Það er gamla sagan, að þar sem gleðilíf er fjölbreyttast, glysið mest og glaumurinn hæstur, þar er svo hætt við, að menn gleymi Guði sínum og glati trúnni. 1 Túbingen, þar sem ég dvaldi mest af tímanum, vrtru fimm lútherskar kirkjur. Sú stærsta rúmaði um 2000 manns í sæti, en hinar eitthvað í kringum 500 manns. Við árdegisguðsþjónustur, sem ávallt fóru fram frá kl. 10—11 fyrir há- degi, voru allar þessar kirkjur vel sóttar, — að vísu ekki hvert sæti skipað, en naumast mun það hafa komið fyrir, að þær væru minna en hálfar. Og ein kirkjan, þar sem stúdentarnir höfðu sínar guðsþjónustur, var oftast nær fullsetin. Form guðsþjónustunnar var mjög ein- lalt, — eiginlega alltof einfalt, fannst mér. Gætti í því mjög mikilla áhrifa frá hinni „reformertu" kirkju, þ. e. a. s. þeirri kirkj udeild, sem kennir sig við svissneska siðbótarmanninn Kalvín. En eins og kunn- ugt er, þá lagði hann ríka áherzlu á, að hafa guðsþjónustuformið sem allra ein- faldast og fábreyttast. Þungamiðjan var prédikunin, —'■ allt annað skipti sáralitlu máli. Guðsþjónustan í Wurttemberg fer, í stuttu máli, þannig fram: Þegar kirkju- gestur kemur og gengur til sætis síns, þá sezt hann ekki niður fyrr en hann helir spennt greipar og lotið höfði örstutta s'.und til hljóðrar bænar. Guðsþjónustan hefst svo með því, að leikið er „Preludium", eins og við eigum að venjast. Því næst syngur kirkjukórinn eitthvað kirkjulegt verk. Við allar stærri kirkjur eru starf- andi a. m. k. tveir kórar, unglingakór og fullorðinna kór. Og virtust mér þeir, sem ég heyrði í, vera mjög vel þjálfaðir. Þjóðverjar eru söngmenn miklir og góðir, og í flestum skólum fer fram söng- og tónlistarkennsla. I barna- t;g unglinga- skólum er söngurinn kennslugrein, sem er jafnmikið í hávegum höfð og aðrar kennslugreinir. Að inngangssöngnum loknum, var svo fyrsti sálmurinn sunginn. Þá söng kórinn einraddað r>g söfnuðurinn söng með. Safnaðarsöngurinn fannst mér vera hríf- andi almennur. Mér komu oft í lnig orðin, sem við syngjum svo oft við okkar guðs- þjónustur:

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.