Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1958, Side 9

Faxi - 01.02.1958, Side 9
F A X I 25 Nætur- og hclgidaKuIæknar í Keflavikurhcr- afti í febrúar 1958. 1. til 12. febr. Guðjón Klemenzson. 3. til 7. febr. Björn Sigurðsson. 8. til 9. febr. Kjartan Ólafsson. 10. til 14. febr. Guðjón Klemenzson. 15. til 16. febr. Bjarni Sigurðsson. 17. til 21. febr. Kjartan Ólafsson. 22. til 23. febr. Björn Sigurðsson. 24. til 28. febr Bjarni Sigurðsson. A'hugið: Vitjunarbeiðnir óskast komnar fyrir kl. 24, nema um slys eða alvarleg skyndi- veikindi sé að ræða, því að læknir hefur full- an starfsdag að morgni. Ef vitjunarbeiðni er ekki komin til heimilislæknis fyrir kl. 4, skal bíða næturlæknis, nema um slys sé að ræða. Næturvarzlan er frá kl. 9 að kvöldi, nema laugardaga frá kl. 2. e.h. Leiðbeiningar um aðgang að ónæmisaðgci öum. 1. Ónæmisaðgerðir, sem almenningi er lrySgður aðgangur að með lögum, eru bólu- setning gegn 1) bólusótt (kúabólusetning), 2) barnaveiki, 3) taugaveiki, 4) kikhósta, 5) berklaveiki, 6) öðrum sóttum, þegar sérstak- lega stendur á, einkum í sambandi við ferðir wanna úr landi. — 2. Þar sem er heilsu- verndarstöð, sem rækir almennt ungbarna- eftirlit, skal hún í sambandi við framkvæmd eftirlitsins kúabólusetja (frumbólusetja) hvert barn í umsjá stöðvarinnar, eftir að það er orðið misserisgamalt og áður en það er árs- gamalt. — 3. Þar sem ekki er um að ræða almennt ungbarnaeftirlit, ber foreldrum og öðrum forsjármönnum ungbarna að gera ráð- stafanir til að fá þau kúabólusett (frumbólu- sett), eftir að þau eru orðin misserisgömul °g áður en þau eru tveggja ára. Aðgang að þeirri kúabólusetningu eiga menn hjá heilsu- verndarstöð, þar sem hún er, en ella hjá héraðslækni. — 4. Börn skal kúabólusetja á (endurbólusetja), eftir að þau eru fullra 10 ára, en áður en þau eru 13 ára. Endur- bólusetning fer fram á vegum barnaskóla í sambandi við skólaeftirlit. — 5. Nú ferst kúa- bólusetning fyrir samkvæmt framansögðu, og leita menn hennar þá sjálfir, svo og hverra annarra ónæmisaðgerða samkvæmt 1. tölu- bð hjá heilsuverndarstöð, þar sem hún er, en ella hjá héraðslækni. — (!. Kúabólusetning samkvæmt lögum er ókeypis, svo og bólu- setning gegn barnaveiki og berklaveiki á vegum heilsuverndarstöðva eða opinberra berklavarna, enn fremur livers konar bólu- setningar, sem sérstaklega eru fyrirskipaðar í sóttvarnarskyni. Að öðru leyti fer um greiðslu fyrir ónæmisaðgerðir eins og um aðra læknishjálp. Æskulýðssamkomn i Kcflavíkurkirkju. Laugardaginn 1. febrúar gekkst stúkan Vík fyrir æskulýðssamkomu í Keflavíkurkirkju, en sá dagur hefir fyrir nokkru verið helg- aður bindindisfræðslu á vegum skólaæsku landsins. Samkomunni í kirkjunni stjórnaði Rögnvaldur Sæmundsson, skólastjóri gagn- fræðaskólans í Keflavík, en ræður fluttu: Valgeir Gestsson, formaður skólafélags Kennaraskólans og Eyjólfur Þór Jónsson kennari. Ræddu þeir um skaðsemi tóbaks og áfengra drykkja og brýndu fyrir æsku- lýðnum að varast slíkar nautnavörur, sem aðeins skapa fólki fjármunatap og leiða ógæfu og heilsutjón yfir neytendur. Þótti ræðumönnum segjast vel, enda var gerður góður rómur að máli þeirra. Að lokum tók til máls sóknarpresturinn, sr. Björn Jónsson, er hvatti æskufólkið eindregið til þess að helga líf sitt háleitum hugsjónum og reglu- semi. Þakkir færðar. Unnur Sturlaugsdóttir og börn hafa beðið Faxa að koma á framfæri innilegu þakk- læti til allra, er sýndu samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför Björns heitins Guð- brandssonar á s. 1.1 sumri. Sérstakar þakkir vilja þau færa Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og stjórn Kaup- félags Suðurnesja fyrir þann sóma, er félögin sýndu minningu hans með því að stofna um hann minningarsjóð, er á að gegna því hlut- verki, að rækta og fegra umhverfi Kefla- víkurkirkju. Þorrablót, Garði, 25. janúar. Víst mun auka vinahót veizluborð alsetið. Við þetta mikla Þorrablót þraut allt hangiketið. ÞORRADAGUR. Ennþá vetur yfir skall, æfir veðra skvaldur. Þá er kominn Þorri karl, þróttmikill og kaldur. Sig. Magnússon. Valbraut. Framboðsfundur. Föstudaginn 24. janúar héldu frambjóð- endur stjórnmálaflokkanna í Keflavík fram- boðsfund í Ungmennafélagshúsinu í Keflavik. Þótti fundurinn takazt vel og var mikið fjöl- menni í samkomuhúsinu. Umræðunum var útvarpað og hlustaði fjöldi manns á þær heima hjá sér, enda rúmar Ungmennafélags- húsið orðið tiltölulega fáa af keflvískum kjós- endum. Umræðurnar munu einnig hafa verið teknar upp á segulband af Helga S. Jónssyni til varðveizlu fyrir seinni tímann. Gúinbjörgunarbátar. Sunnudaginn 9. febr. voru hér í sundhöll Keflavíkur sýndir gúmbjörgunarbátar af nýjustu gerð, og hvernig farið er að nota þá. Horfði fjöldi manns á sýningu þessa, sem þótti hin merkilegasta. Leiðrétting. I skýrslu sjúkrahússlæknis, Bjarna Sig- urðssonar, þar sem hann þakkar öllum þeim, er á s.l. ári og þó sérstaklega á jólunum, sýndu sjúkrahúsinu velvild með því að gleðja sjúklingana á einhvern hátt, stóð eftirfar- andi: .....og ekki vil ég gleyma að nefna hið fallega jólatré, sem ameríski herinn setti upp hjá sjúkrahúsinu.“ Atti að vera: „setti upp í sjúkrahúsinu.“ Þetta leiðréttist hér með og eru hlutaðeigendur beðnir afsökunar á þessari prentvillu í blaðinu. En til viðbótar þessu, vill læknirinn einnig koma á fram- færi þakklæti til bæjaryfirvaldanna, er létu setja upp hið fagra jólatré utan sjúkrahúss- ins, og til skátanna í Keflavík, er nú sem fyrr hjálpuðu til við að skreyta sjúkrahúsið að innan. Einnig þakkar hann blaðstjórn Faxa, er ávallt sendir nokkur ókeypis eintök af blaði sínu til afnota fyrir sjúklingana. Góðir gestir. Miðvikudaginn 19. febrúar (öskudag) kom hingað frá Ameríku sr. Ólafur Skúlason, ásamt konu sinni og dóttur. Munu þau dvelja hér á landi um tveggja mánaða skeið. I jólablaði Faxa birtist mynd af Sveinsínu Þórunni Jóns- dóttur ásamt kveðju í ljóðum frá Hreini Líndal Haraldssyni. Við þetta tækifæri láðist að geta dánardægurs hinnar látnu sæmdar- konu, en hún andaðist 14. nóvember 1957. Æviatriði hennar er að finna í jólablaðinu 1956, en þar birtist afmælisgrein um hana eftir Jónínu Guðjónsdóttur. Hlutu verðlaun. A Keflavíkurflugvelli hlutu nú fyrir skömmu 3 íslendingar verðlaun fyrir björg- unarstörf. Karl Þorsteinsson og Jón Þor- steinsson hlutu viðurkenningarskjöl og kr 2429,00 hvor, sem viðurkenning fyrir að hafa bjargað lífi undirforingja nokkurs í banda- ríska flughernum, er kviknað hafði í fötum hans. Þriðji Islendingurinn, sem verðlaun hlaut, var Magnús Kristjánsson í Keflavík. Kviknnr í luisi í Kcflavík. Þann 9. febr. kviknaði í húsinu nr. 6 við Túngötu. Húsið er timburhús, ein hæð með risi. Slökkviliði og lögreglu var þegar gert aðvart, en þó var talsverður eldur kominn innan veggja, er að var komið. Engu tókst að bjarga af innanstokksmunum, en hins- vegar tókst að verja að eldurinn breiddist út. Hjónin, sem í húsinu bjuggu, Eysteinn Jóhannesson, kona hans og 3 börn ásamt aldraðri móður konunnar, urðu fyrir til- finnanlegu tjóni, er íbúð þeirra brann, en þau höfðu verið fjarverandi þegar kviknaði í. Málið er í rannsókn.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.