Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1958, Side 13

Faxi - 01.02.1958, Side 13
F A X I 29 Fró Kvennadeild Slysavarna- félagsins í Keflavík Slysavarnadeild kvenna í Keflavík hélt aðalfund sinn 22. janúar s.l. Starfið á árinu liefur gengið með ágæt- um vel, eins og tekjurnar svna, en þær voru yfir 61 þúsund krónur. Þar af hefur Slysavarnafélagi lslands verið afhentar kr. 46.000,00, og er það mesta fé, sem deildin hefur aflað á einu ári. Fjáröflunin hefur farið fram á sama liátt og undanfarin ár. Basar var haldinn á pálmasunnudag. Þar mátti sjá marga fagra og góða flík með urvalshandbragði okkar ágætu félags- kvenna, enda gekk salan greitt, því meiri hlutinn seldist upp á þrem stundarfjórð- u nguirt. Merkjasala var um vertiðarlokin og gekk hún sæmilega. A sjómannasunnudaginn var kaffisala, cins og nú hefur tíðkast nokkur undan- farin ár. Að þessu sinni var kaffið selt í húsi Aðalstöðvarinnar. Formenn fyrir kaffisölunefndinni voru þær frúrnar Ciuðrún Bjarnadóttir og Vilborg Guðna- dóttir og unnu þær og aðrar nefndarkon- ur þarna frábært starf, þar sem allar að- stæður voru mjög erfiðar. En það var eins og allar hendur væru réttar þeim til hjálpar. Eigendur hússins lánuðu það endurgjaldslaust og kunnum við hr. Hauki Magnússyni forstjóra og meðeigendum hans innilegar þakkir fyrir þá rausn. Þá fengu þær lagðar raflagnir og skolpleiðsl- tir og allan flutning til og frá án þess að þurfa að greiða eyri fyrir. Sannarlega væri þess vert að nefna nöfn allra þeirra er þarna lögðu okkur lið, en rúmið leyfir það ekki. Eg votta öllu þessu fólki inni- lcgustu þakkir fyrir ágæta aðstoð og skiln- ing á starfi okkar. 20. nóvember var svo hlutaveltan. Frú Ásdís Ágústsdóttir var formaður hluta- veltunefndar, eins og hún hefur verið fjölmörg undanfarin ár. Það er ekkert smáræðis starf sem lnin og hennar sam- starfskonur hafa unnið félaginu, enda var árangurinn ágætur og þakka ég Kcfl- víkingum ágætar tillögur til hlutavelt- unnar. Fyrir minningaspjöld fáum við árlega drjúgan skilding. Þá eru ótaldar gjafir og áheit, er okkur hafa borizt. Kvenfélag Njarðvíkur hefur mörg undanfarin ár fært deildinni 1000 kr. gjöf, og er okkur ómetanleg vinátta þeirra góðu kvenna. Margar aðrar góðar gjafir hafa okkur borizt, en hér verður aðeins að stikla á stóru, þó að við sannarlega met- um ekki minna smærri gjafirnar. Frá eftirtöldum vélbátum hafa okkur borizt kr. 650,00 frá hverjum: Hilmi, Heimi, Reykjaröst, Olafi Magnússyni, Báru, Kóp, Guðfinni og Voninni. Hjartanlega þökk- um við þessar góðu gjafir og biðjum guð að blessa alla sjómenn og aðstandendur þeirra. Um framkvæmdir hér heima fyrir er ckki mikið að segja. Við létum setja björgunarhringi og stjaka á allar bryggjur í Ytri-Njarðvíkum. Áður höfum við látið setja slík tæki á bryggjurnar hér. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Jónína Guðjónsdóttir formað- ur, Sesselja Magnúsdóttir ritari og Helga Þorsteinsdóttir gjaldkeri. Varastjórn í sömu röð: Guðný Asberg, Elín Ólafs- dóttir og Kristín Guðmundsdóttir. A 9. landsþing Slysavarnafélag Islands voru kjörnar: Jónína Guðjónsdóttir, Sesselja Magnúsdóttir og Hclga Þorsteins- dóttir og til vara Elín Olafsdóttir, Jóna Einarsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir. Félagskonur eru nú 438, þar af 70 telpur innan fermingar. Konur og stúlkur, gangið í Slysavarna- félagið og vinnið því vel. Munið það, að hver lítill skerfur getur hjálpað til þess að bjarga mannslífi og öllum er okkur það vissulega ljóst, hve dásamlegt það er að vera þannig þátttakandi í slíku starfi og eiga ofurlítinn þátt í fögnuðinum, sem heimkoma ástvinanna vekur, hvort þeir eru innlendir eða erlendir. Að lokum þetta: Munið allar basarinn á pálmasunnudag 30. marz. Komið allar með ykkar skerf, hann þarf ekki að vera stór frá hverri, því kornið fyllir mælirinn. J. G. Frá danssýningu í Ungmennafélagshúsi Kefla- vikur 15. des. s.l., er dansskóli Hermanns Ragnars stóð fyrir. £<><X><><><><><><><><><><><><><><^C><><><><><><><><><><><><><><><^^ KEFLÁVÍ K Allskonar smávara, svo scm: tölur og hnappar í úrvali, tvinni, tcyja, saumnálar, smellur, ör- yggisnælur, krókar, bandprjónar, málbönd. Kaupfélag Suðurnesja x>00<3>0<

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.