Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1958, Side 15

Faxi - 01.02.1958, Side 15
F A X I 31 y x I t H.F. EIMSKIPAFELAG ISLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands, verður lialdinn í íundarsalnum i húsi félagsins í Reykjavík, laugadaginn 7. júní 1958 og hefst kl. 1.30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæð- um fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1957 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og til- lögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu árs- arðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra scm úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem upp kunna i að verða borin. Þcir einir geta sótt fundinn, sem hafa aögöngumiöa. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs- mönnum liluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, daganna 3.—5. júní næstk. Menn geta fcngið cyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Oskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unt er, 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. eigi síðar en 28. maí 1958. Rcyl{javíl{, 10. janúar 1958. STJÓRNIN Úrslit bæjarstjórnar- kosninganna í kaup- túnum ó Suðurnesjum Grindavík. A kjörskrá voru 394, en 315 kusti eða 80%. 11 seðlar voru ógildir og 1 auður. Urslit urðu sem hér segir: A-listi, Alþýðuflokkur 210 atkv. og 4 menn kjörna og D-listi, Sjálfstæðismenn, 93 atkv. og 1 mann kjörinn. Sandgerði. Á kjörskrá voru 446, en 405 kusu. 18 seðlar vorti auðir og 2 ógildir. Urslit urðu sem hér segir: A-listi, Alþýðuflokkur, 176 atkv. og 2 menn kjörna, B-listi, Sjálfstæðisflokkur, 132 atkv. og 2 menn kjörna og F-listi, Frjálslyndir, 77 atkv. og 1 mann kjörinn. Njarðvíkurhrcppur. A kjörskrá voru 544, en 460 kusu eða 84,6%. Auðir seðlar voru 17 og 1 ógildur. Urslit urðu sem hér segir: A-listi, frjálslyndir kjósendur ,136 atkv. og 2 menn kjörna, C-listi, Alþýðubanda- lag, 58 atkv. og engan mann kjörinn og D-listi, Sjálfstæðisflokkur, 284 atkv. og 3 inenn kjörna. Nýr bátur á sjó í Sandgerói. Þann 22. október kom til Sandgerðis nýtt stálskip, Rafnkell KG 510, sem smíðaður hefir verið í Austur-Þýzkalandi. Ferðin til Islands frá Kaupmannahöfn gekk mjög vel, tók aðeins 5% sólarhring og hreppti skipið þó storma og brælur á leiðinni. Ganghrað- rnn á leiðinni var að jafnaði 9 sjómílur. Skipstjóri var Garðar Guðmundsson, sonur eigandans, Guðmundar Jónssonar útgerðar- manns á Rafnkelsstöðum. 1 reynsluför sigldi báturinn 10 sjómílur, en hann er með 280 hestafla Mannheimvél. Er Rafnkell KG 510 talinn vera eitt hið vandaðasta skip. Steinunn gainla. Þá hefir orðið eigendaskipti á mótorbátn- um Steinunni gömlu, sem að undanförnu hefir verið í eign Steingríms Árnasonar. Hefir hann nú selt bátinn Miðnes h.f., Sand- gerði, og verður hann gerður út þaðan. 80.544 farþegar uni Kcflavíkurflugvöll 1957. S.l. ár var mikil umferð um Keflavíkur- flugvöll. í skýrslu frá flugvallartsjóranum segir, að alls hafi 80.544 farþegar haft við- dvöl á vellinum úr 1832 farþegaflugvélum. Þá nam vörumagn það er um völlinn fór 1.659.201 kílói, og póstur 323.892 kg. Flestar lendingar höfðu þessi félög: Pan American World Airways 422 vélar, British Overseas Airways Corp. 178, K.L.M. Royal Dutch Airlines 175, Trans World Airlines 161, Flying Tiger Line Inc. 131, Maritime Central Airways Ltd. 122, Slick Airways 82 og EL- AL: Israel Airlines 77. Nýi vegurinn við Hafnarfjörð opnaður Tekinn hefir verið í notkun nýr vegar- kafli á Reykjanesbraut ofan við Hafnarfjörð. Vegur þessi byrjar við Hafnarfjarðarveg hjá Setbergi og Jófríðarstöðum og kemur að Reykjanesbraut syðst á Hvaleyrarholti, skammt norðan við vegamót hennar og Krísuvíkurvegar. Vegur þessi er 10 m breið- ur og tæpir 5 km á lengd. Vegur þessi er fyrst og fremst ætlaður til þess að létta hinni miklu umferð milli Reykjavíkur og Suður- nesja, sem er um og yfir 1000 bílar á dag, af Strandgötunni í Hafnarfirði. Hann kemur einnig að miklum notum sem hluti af hring- vegi um Hafnarfjörð. (Frá vegamálastjóra).

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.