Faxi - 01.02.1963, Side 1
GARÐSKAGAVITI
Sér inn yfir Garðinn, — æskustöðvar Guðmundar á Rafnkelsstöðum. — Úthafsaldan fellur enn hvíttyppt
upp að Garðskagaflösinni og leikur sér þar við kuðung og skel á hvítum sandi, eins og hún löngum gerði á
uppvaxtardögum Guðmundar. Þarna nam hann ungur sjómannafræði af föður sínum og þarna drakk hann
í sig kjarkinn, áræðið og seigluna, sem hefur dugað honum til mikilla átaka á löngum og giftudrjúgum
starfsdegi og gert hann að einum stórvirkasta athafnamanni þessa héraðs. — Myndin er tekin á ,,flösinni“,
rétt framan við Garðskagavita. Má þar vel greina byggingar allt inn fyrir Útskála og svo blasir ströndin
við auganu og siglingaleið Keflavíkurbátanna. Grein um Guðmund á Rafnkelsstöðum er inni í blaðinu.