Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1963, Blaðsíða 2

Faxi - 01.02.1963, Blaðsíða 2
Marta ValgerSur Jónsdóttir: Minningar frá Keflavík Bakaríið var næsta hús við Edinborg, dá- lítinn spöl innar og ofar á Hæðinni. Þess gerist ekki þörf að lýsa því húsi fyrir Kefl- víkingum, því það stendur ennþá á sírium stað, einungis nokkuð stærra nú en um aldamótin, þó var húsið stórt og myndar- legt og fallegt hús. Þar réð húsum Arn- björn Olafsson kaupmaður og kona hans Þórunn Bjarnadóttir. Hafði Arnbjörn lát- ið byggja húsið 1891, sama árið og hann flutti til Keflavíkur. Var það fyrsta húsið, sem reist var á Hæðinni, en þá var ekkert byggt ból fyrir innan Rás. I kjallara húss- ins hafði Arnbjörn látið innrétta brauð- gerðarhús, var byggður þar múraður bak- ar-ofn, en um smíði hans sá Símon Eiríks- son steinsmiður, er síðar hjó lengi í Kefla- vík, en hann var, svo sem kunnugt er, mik- ill völundur í steinsmíði og hleðslu. Arn- björn er ritaður bakari í manntölum eftir að hann settist að í Keflavík, svo að hann hefur án efa verið lærður bakari, en aldrei heyrði ég hann nefndan svo, enda mun hann lítið hafa unnið að þeirri iðn sjálfur. Með honum kom bakarasveinn, er Magnús Erlendsson hét og námssveinn að nafni Eyjólfur Teitsson. Strax á fyrstu árum voru tveir vinnu- mennn og tvær vinnukonur, enda mun Arnbjörn hafa haft mörg járn í eldinum, því hann var mikill athafnamaður alla tíð. Hann gerði strax út skip til fiskjar og tún græddi hann upp af melum umhverfis húsið, náði túnið niður undir sjó og upp í brekkuna að Hæðarendalóðinni, en Hæð- arendi var síðar byggður uppi á brekku- brúninni, sem rís austan við Osinn. Það er upphaf Vatnsneskletta Keflavíkurmegin, 18 — F A X I Þórunn Bjarnadóttir. en öll klettabeltin, inn að Stekkjarhamri, voru einu nafni nefndir Vatnsnesklettar. I kvosinni við Osinn stóð Arnbjarnarpakk- hús, stórt hús með flaggstöng. Heiman frá íbúðarhúsinu, niður að pakkhúsinu, lá stígur meðfram túngarðinum, sem var vel hlaðinn grjótgarður, en umhverfis allt túnið voru grjótgarðar. Var þarna allt mjög snyrtilegt og með myndarbrag. A þessum árum náði Hafnargatan einungis upp að Bakaríinu. Þjóðvegurinn inn á Skagann lá þá á líkum slóðum og Suðurgatan er nú, en síðar, er nýr vegur var lagður frá Hafn- arfirði suður um Suðurnes, var vegarstæð- inu víða breytt og milli Ytri-Njarðvíkur og Keflavíkur varð línan að mestu bein, þá var vegurinn lagður norðan við Bakaríið og gegnum túnið. Síðar var túnið bútað niður í lóðir og standa nú mörg hús á gamla Bakaríistúninu, sem einu sinni var. Arnbjörn Olafsson var fyrsti vitavörður á Reykjanesi. Hann flutti þangað vorið 1878, er byrjað var á byggingu gamla vit- ans. Systir hans, Sesselja Olafsdóttir, flutt- ist með honum suður eftir og var ráðskona á heimilinu. Hefur það verið ærið starf, því að margir menn unnu að byggingu vitans og sá hún að einhverju leyti um matreiðslu handa starfsfólkinu. Hún var forkur dugleg og hin ágætasta kona. Sá Arnbjörn Ólafsson. hún um heimili bróður síns á Reykjanesi þar til hann giftist árið 1879. Hún lærði síðar ljósmóðurfræði og varð ljósmóðir á Vatnsleysuströnd og síðar í Reykjavík. Kona Arnbjarnar var Þórunn Bjarna- dóttir frá Meyjalandi í Skagafirði, dóttir Bjarna hreppstjóra þar Bjarnasonar og konu hans Margrétar Þorkelsdóttur, al- systur Jóns rektors Þorkelssonar. Frú Þór- unn var alsystir séra Þorkels prests á Reynivöllum Bjarnasonar. Þau hjón, Þór- unn og Arnbjörn, bjuggu á Reykjanesi til 1884, en þá fluttu þau til Reykjavíkur og svo aftur til Keflavíkur, eins og áður er sagt, árið 1891. Einkasonur þeirra var Olaf- ur Jón, er var kaupmaður í Keflavík eftir föður sinn, f. í Reykjavík 20. marz 1885, d. 9. sept. 1941 í Keflavík. Ólafur var vel menntaður og ágætlega gefinn. Hann var á verzlunarskólum erlendis og lauk fulln- aðarprófi við þýzkan verzlunarskóla. Nafn sitt ritaði hann þannig: Ólafur J. A. Ólafs- son. Hann kvæntist 1911 Guðrúnu Einars- dóttur frá Sandgerði á Miðnesi, mikilhæfri ágætiskonu, dóttur Einars útvegsbónda í Sandgerði Sveinbjarnarsonar og fyrri konu hans Guðrúnar Bjarnadóttur bónda í Geld- ingaholti í Skagafirði Stefánssonar. Börn þeirra Guðrúnar og Ólafs eru þrjú, öll bú- sett í Keflavík: Einar, fulltrúi, Þórunn, J

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.