Faxi - 01.02.1963, Qupperneq 8
/ ' A
Útgefandi: MálfundafélagiS Faxi, Keflavik. — Ritstjóri og afgreiðslumaöur:
1|~yr ir Haligrímur Th. Björnsson. Blaðstjórn: Hallgrímur Th. Bjömsson, Margeir
JL il. Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar
Sveinsson. Verð blaðsins í lausasöiu krónur 10.00. Alþýðuprentsmiðjan h.f.
V__________________________________________________________________________________________________/
hvorki mig né strákana, setti ég trilluna
upp fyrir jólin það ár og seldi hana. Síðan
hef ég ekkert farið á sjó.
— Þú hefur margt fólk í þinni þjónustu ?
— Já, það er oft býsna margt, þegar
starfrækslan er í fullum gangi á vertíð-
inni, — og svo er eins og alltaf sé nóg að
gera. Starfsfólkið gaf mér í sumar, er ég
varð sjötugur, þetta stóra sjónvarp, sem þú
sérð hérna. Það hefur kostað mikið.
— Verkaskipting?
Verkstjóri í frystihúsinu er Sigurbjörn
Jónsson. Verksmiðjustjóri er Hilmar Jóns-
son, skrifstofustjóri Björgvin Kjartansson
og Jónas, sonur minn, er yfirverkstjóri,
eins og ég gat um áðan. Gunnar og Krist-
ján sjá um útveganir fyrir bátana og eru
bílstjórar.
— Eru Rafnkelsstaðir stór jörð?
— Já, Rafnkelsstaðir eru stór jörð og
landmikil. Hún á land út undir Leiru. Hér
er gott að vera. Hér vantar bara höfn, þá
mundi ég gera út mína báta héðan, en það
kostar mikið að gera höfn hérna í Garðin-
um, einar 20—30 milljónir. Sú höfn þyrfti
að rúma a. m. k. 20 báta. Eg er líka á þeirri
skoðun, að ríkið eigi að byggja síldarverk-
smiðju á Suðurnesjum, er unnið geti 10
þúsund mál síldar á sóiarhring. Það mun
ekki af veita, ef síldin heldur áfram að
veiðast hérna í fióanum.
Tíminn hefur liðið fljótt í góðu yfirlæti
hjá Guðmundi. Um leið og við stöndum
upp, tökum við eftir stórri mynd af hon-
um, þar sem hann er með riddarakross
hinnar íslenzku Fálkaorðu í barminum,
er Guðmundur var á síðasta ári sæmdur
fyrir störf að sjávarútvegsmálum. Hann
bendir okkur á mynd af Garðari syni sín-
um, er fórst með mb. Rafnkeli.
Við þökkum Guðmundi fyrir móttök-
urnar. Uti er þreifandi myrkur og hvass-
viðri. Það verður ekkert sjóveður í kvöld.
G. Sveinsson.
Norskur veiðarfæraframleiðandi, P. L. Fiske-
reidskap í Bergen, sem auglýst hefur fram-
leiðsluvörur sínar hér í blaðinu, sendir því nú
og Málfundafélaginu Faxa í annað sinn stórt
og fallegt jólatré. Valdi félagið trénu stað við
höfnina í Keflavík, þar sem það nú eins og í
fyrra setti nokkurn hátíðablæ á þetta mikla
athafnasvæði og lýsti skipum og formönnum,
sem þangað áttu leið um jólin. — Faxi sendir
hinum norska gefanda hugheilar þakkir fyrir
þá hugulsemi, er felst í þessari fallegu gjöf.
Nætur- og helgidagalæknar
í Keflavíkurhéraði í febrúar— marz 1963:
26. febrúar: Kjartan Olafsson.
27. febrúar: Arnbjörn Olafsson.
28. febrúar: Björn Sigurðsson.
1. marz: Guðjón Klemenzson.
2. —3. marz: Jón K. Jóhannsson.
4. marz: Kjartan Ólafsson.
5. marz: Arnbjörn Ólafsson.
6. marz: Björn Sigurðsson.
7 .marz: Guðjón Klemenzson.
8. marz: Jón K. Jóhannsson.
9. —10. marz: Kjartan Ólafsson.
11. marz: Arnbjörn Ólafsson.
12. marz: Björn Sigurðsson.
13. marz: Guðjón Klemenzson.
14. marz: Jón K. Jóhannsson.
15. marz: Kjartan Ólafsson.
16. —17. marz: Arnbjörn Ólafsson .
18. marz: Björn Sigurðsson.
19. marz: Guðjón Klemenzson.
20. marz: Jón K. Jóhannsson.
21. marz: Kjartan Ólafsson.
22. marz: Arnbjörn Ólafsson.
23. •—24. marz: Björn Sigurðsson.
25. marz: Guðjón Klemenzson.
26. marz: Jón K. Jóhannsson.
27. marz: Kjartan Ólafsson.
Héraðsbúar eru beðnir að leggja sér vel á
minni, að næturvaktir hefjast á virkum dög-
um kl. 6 að kvöldi og enda kl. 8 að morgni
næsta dags. Á laugardögum hefjast nætur-
vaktir kl. 1 e. h. og er þá sami læknir venju-
lega á vakti til kl. 8 á mánudagsmorgunn.
Á þriðjudögum kl. 9—10 hefur héraðslækn-
ir sértíma fyrir allar ónæmisaðgerðir. — Sími
hans er 1700.
Kveðja og þakklæti.
Guðmundur Finnbogason hefur beðið Faxa
fyrir innilegar kveðjur og þakklæti til allra,
sem hafa sýnt vinarhug til Innri-Njarðvíkur-
kirkju með mjög góðum undirtektum við
söfnun í orgelsjóð kirkjunnar, sem hefur
gengið mjög vel. Síðar á árinu, þegar söfnun
er lokið, mun verða birt skrá yfir alla, sem
hafa gefið í sjóðinn og verður þá væntanlega
hægt að skýra nánar frá þeim málum.
Heimir Stígsson tók myndirnar í greinina um
Guðmund á Rafnkelsstöðum.
Almcnna bifreiðaleigan.
Eins og mörgum mun kunnugt, er starfrækt
hér í Keflavík fyrirtæki undir nafninu Al-
menna bifreiðaleigan, sem er til húsa á Hring-
braut 106. Fyrirtæki þetta, sem tók til starfa
hér í maí 1962, leigir út Volkswagen-bifreiðir
til almenningsþarfa í styttri og lengri ferðir,
án ökumanns. Aimennu bifreiðaleigunni
veitir forstöðu Gunnar Albertsson. Aðspurður
kveðst hann leggja höfuðáherzlu á góða þjón-
ustu, og til þess að hún sé sem bezt á hverjum
tíma, verða bifreiðirnar endurnýjaðar árlega.
í þessu sambandi vekur Gunnar athygli á því,
að í nýkeyptum bifreiðum fyrirtækisins eru
ágæt útvarpstæki til afnota fyrir þá, sem taka
bílana á leigu. Almenna bifreiðaleigan virðist
vel séð hér í Keflavík og víðar um Suðurnes,
ef marka má af vexti fyrirtækisins og við-
gangi. Sími bifreiðaleigunnar er 1513 og eru
Útskipun á saltsíld hjá Guðmundi á Rafnkelsstöðum.
24 — F A XI