Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1963, Blaðsíða 11

Faxi - 01.02.1963, Blaðsíða 11
r- Guðmundur Guðmundsson sjötugur Þann 15. febrúar s. 1. varð Guðmundur Guðmundsson, sparisjóðsstjóri í Keflavík, sjötugur. Guðmundur er Vestfirðingur, fæddur að Kirkjubóli í Dýrafirði 15. febr. 1893, sonur hjónanna Margrétar Guð- mundsdóttur og Guðmundar Nathanaels- sonar. Við alþýðuskólann að Núpi stund- aði Guðmundur nám árin 1909—1911 og próf frá Kennaraskóla Islands tók hann 1915. Auk þess var hann á kennaranám- skeiði í Askov og á teikninámskeiði danska ríkisins í Kaupmannahöfn 1922. Guðmundur var fyrst kennari í Keflavík árið 1915—16, en árin þar á eftir kenndi hann á ýmsum stöðum og fékkst við verzl- unarstörf og fleira til ársins 1921, er hann réðist sem skólastjóri að barnaskóla Kefla- víkur. Því starfi gegndi hann síðan af mikilli prýði um aldarfjórðungsskeið, eða nánar sagt til ársins 1946. A því tímabili veitti hann einnig um skeið forstöðu ungl- ingaskóla í Keflavík. Frá 1939 hefur Guðmundur átt sæti í stjórn Sparisjóðs Keflavíkur og sparisjóðs- stjóri hefur hann verið frá 1944. Um langt skeið var hann framkvæmdastjóri Isfélags Keflavíkur. Guðmundur sat í flestum hreppsnefnd- um Keflavíkur frá 1929 og var oddviti hreppsnefndar um langt árabil. Um þær mundir átti hann sæti í sýslu- og skatta- nefndum. Eftir að Keílavíkurkauptún öðlaðist bæj- arréttindi hefur Guðmundur átt sæti í bæjarstjórnum og yfirskattanefndum og um skeið var hann forseti bæjarstjórnar. Kvæntur var Guðmundur Elínu ]óns- dóttur, trésmiðs úr Keflavík, ágætri konu. Eignuðust þau tvo drengi, Olaf og Jón Pétur. Ólafur var fæddur 1925. Hann gerð- ist ungur sjómaður, en drukknaði, er mb. Geir fórst í ofsaveðri þann 9. febr. 1946. Nokkru áður hafði Guðmundur misst konu sína, er andaðist 24. október 1945. Yngri sonur þeirra, Jón Pétur, er nú bíl- stjóri hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur.' Af framansögðu má ljóst vera, að ýmis- legt hefur á dagana drifið hjá þessu sjö- tuga afmælisbarni. Þar bafa, eins og ann- ars staðar í mannheimum, skipzt á skin og skúrir. Guðmundur hefur frá náttúrunnar hendi verið óvenju vel gefinn maður, sem 1 skyldurækni og samvizkusemi hefur Guðmundur Guðmundsson. verið öðrum til fyrirmyndar hér í bæ. — Hann hefur líka notið verðugs álits sam- borgara sinna, sem hafa falið honum mörg og margvísleg trúnaðarstörf. Eg er einn í hópi þeirra, sem eiga Guðmundi gott að gjalda og á þessum merkistímamótum í lífi hans votta ég honum þakkir fyrir ánægjulegt samstarf frá liðnum árum, um leið og við hjónin árnum honum heilla á sjötugsafmælinu. Hallgrímur Th. Björnsson. Á LÉTTUM NÓTUM Það var á þeim árum, þegar Guð- mundur Pálsson hafði hér með skipa- afgreiðslur að gera, að verið var að skipa út síldartunnum. Unnið var í skipinu eftir kvöldmat og fram á nótt. Mangi átti að byrja eftir kvöldmat en var mannfár. Guð- mundur ætlaði að bæta við mönnum hjá sér í skipið eftir matinn, og var búinn að ná í 4 menn, sem allir voru aðkomumenn og öllu ókunnugir. Er þeir voru á leið í skipið og gengu fram hjá Loftshúsunum, var Mangi þar að bogra yfir tunnunum, kallar til þeirra og segir: — Eruð þið að fara í skipið? Þeir játuðu því. — Allt í lagi, velta velta, segir þá Mangi og bendir á tunnurnar, en skipið lá við gömlu bryggj- una. Mennirnir byrjuðu samstundis að velta tunnunum hans niður á bryggju. Allt gekk nú í fullum gangi hjá honum, og Smíðum handrið úr járni, hliðargrindur, grindverk, úti og inni. Umboðsmaður okkar í Keflavík er: JAKOB ÁRNASON, Miðtúni 2. — Sími 1661. „Vélvirkinn", Reykjavík. Húseigendur! Keflavík! um miðnætti er síðustu tunnurnar voru að rúlla niður á bryggjuna, frétti Guð- mundur, hvað orðið hafi um mennina, og fer þvi til Manga all-gustmikill, í þeim til- gangi að skamma hann fyrir að taka frá sér mennina. Mangi var fljótur að snúa sig út úr því og sagði: — Bara misskilningur, Guðmundur minn, — sko tómur misskilningur. Ég sagði bara: velta, velta, og þeir fóru að velta. —o—- Það var á þeim árum, þegar Keflavík og Njarðvíkur voru einn og sami hreppurinn, að kosningar til alþingis stóðu fyrir dyrum. Var mikið kapp lagt á að þeir, sem ekki yrðu heima á kjördegi, kysu áður en þeir færu. Þá átti hreppstjórinn heima í Innri- Njarðvík og þurfti því að fara þangað til að kjósa. Einn daginn fór heil skipshöfn til hreppstjórans að kjósa. Er einn skipverjinn var farinn inn í herbergið með atkvæðaseðil- inn, kemur hann að vörmu spori út aftur, með seðilinn í hendinni og segir: „Heyrið þið drengir. Hvernig í andskot- anum á að skrifa Thors?“ F A XI — 27

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.