Faxi

Volume

Faxi - 01.11.1969, Page 1

Faxi - 01.11.1969, Page 1
Það var glatt á hjalla og mikið og gott að borða í Stapa á laugardagskvöldið 25. október. Sér yíir hluta af salnum. Tvö merkisafmæíi í Njarðvíkum Laugardaginn 25. október s. 1. héldu tvö merkisfélög í NjarSvíkurhreppi sameigin- lega uppá aldarfjórðungs afmæli sín, í Félagsheimili hreppsins, Stapa. Þetta voru Kvenfélagið Njarðvík og Ungmennafélag Njarðvíkurhrepps, sem bæði voru stofnuð 1944, á því merkis ári, þegar íslenzka þjóðin endurheimti til fulls sjálfstæði sitt og fólkið hóf að treysta inn- viði sína á hinum ýmsu sviðum þjóðlífs- ins. Nánar til tekið var Ungmennafélagið stofnað 10. apríl það ár og Kvenfélagið þann 17. september. I ekki stærra sveitarfélagi hlýtur 25 ára afmæli eins menningarfélags jafnan að teljast til hinna merkari innansveitar við- burða, hvað þá, þegar tvö slík eru samtím- is á ferðinni, eins og hér átti sér stað, enda má með sanni segja, að þetta afmælishóf hafi verið með þeim glæsibrag, að annað slíkt hafi ekki áöur sést þar í sveit. Veizlustjóri og kynnir var Sigmar Inga- son og setti hann hið geysifjölmenna sam- kvæmi kl. 7, með því að bjóða félagsmenn og gesti velkomna. Var þá sezt að ríkulega framreiddum veizlukosti. En á meðan setið var undir borðum, fór skemmtiskrá hátíðahaldanna fram. Fyrsta dagskráratriðið var afhjúpun fé- lagsfána beggja félaganna. Var það Aki Gráng málarameistari, sem afhjúpaði Kvenfélagsfánann, en fána Ungmennafé- lagsins afhjúpaði Arni Júlíusson. Þá fluttu ávörp formenn beggja félaganna, þau frú Guðlaug Karvelsdóttir og Guðmundur Snorrason. Þessu næst flutti Olafur Sig- urjónsson aðalræðu kvöldsins, þar sem saga beggja þessara félaga er rakin á greinagóðan hátt. Hefir blaðið fengið góð- fúslegt leyfi Olafs til þess að birta ræðuna í næsta tbl. Faxa — jólablaðinu. Þess er og vert að geta hér, að Olafur var einn af stofnendum Ungmennafélags- ins og fyrsti formaður þess. Einn af aðal- hvatamönnum að stofnun félagsins mun hafa verið Karvel Ögmundsson, en ásamt þessum tveimur heiðursmönnum, átti Oddbergur Eiríksson sæti í fyrstu stjórn þess. Er form. íélagsins, Guðmundur Snorrason, flutti ávarp sitt, heiðraði hann sérstaklega þessa menn, enda voru þeir allir meðal heiðursgesta samkvæmisins. A þessu aldarfjórðungsafmæli hafði Ólafur verið formaður Ungmennafélagsins samfleytt í 23 ár og fékk hann af þessu til- efni, sem heiðursgjöf frá félaginu, minn- ispening úr gulli, en hinir tveir, Karvel og Oddbergur, fengu minnispeninga úr silfri. Frú Guðlaug Karvelsdóttir, form. Kven- félagsins, heiðraði frúrnar Sigríði Hafliða- dóttir og Hlíf Tryggvadóttir með því að færa hvorri um sig áletraða silfurskeið og fagra blómakörfu, en þær vuru, ásamt frú

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.