Faxi

Volume

Faxi - 01.11.1969, Page 6

Faxi - 01.11.1969, Page 6
1918 — 1. desember — 1968 Ræða fluff á fullveldisfagnaði í Félagsheimilil Njarðvíkur, Slapa, af Eyþóri Þórðarsyni. Þessa ágastu ræðu flutti Eyþór Þórðar- son á 50 ára fullveldisfagnaði Ungmenna- og Kvenfélags Njarðvíkur 1. desember 1968. Ritstjóra Faxa var kunnugt um ræðuna og óskaði að mega birta hana í blaðinu, en að því sinni var rými jólablaðsins full- ráðstafað og varð því að ráði að prenta hana nú í nóvemberblaðinu með góðfús- legu leyfi höfundar. H. Th. B. í dag minnumst við þess, að hálf öld er liðin frá því, að Island varð sjálfstætt, full- valda ríki. Síðan 1918 hefur 1. des. verið haldinn hátíðlegur til minningar um þann merka atburð, að með sambandslagasamn- ingnum við Danmörk, fékk Island viður- kenningu, sem fullvalda ríki með þeim takmörkunum, sem samningurinn fól í sér. 1. des. er einn mesti merkisdagur í sögu Islendinga. Hann er nú að vísu ekki lengur þjóðhátíðardagur vor, en í huga hvers Islendings, sem man og metur þá atburði, er urðu þann dag fyrir 50 árum, hlýtur dagurinn alltaf að verða helgur dag- ur minninganna og nýrra áforma. I hálfa sjöundu öld háði íslenzka þjóð- in sjálfstæðisbaráttu sína. Hinni löngu bar- áttu lauk með gildistöku sambandslaga- samningsins, en í honum voru ákvæði, sem leiddu til lýðveldisstofnunarinnar 1944. I hálfa öld hefur þjóðin notið ávaxta þess- arar baráttu, en á umræddu tímabili hefur mikill gróandi verið í þjóðlífinu og stór- stfgar framfarir á öllum sviðum. Segja má, að síðastliðin 50 ár hafi byggð Islands ver- ið reist frá grunni, svo sem vegir, brýr, hafnir, atvinnufyrirtæki, orkuver og húsa- kostur. I hálfa öld hafa bændur vorir rækt- að meira og sjómenn aflað meira enn allar kynslóðir á undan. Reynslan hefur sann- að það, að íslenzka þjóðin er fær um að standa á eigin fótum og á því tímabili, sem hún hefur ráðið örlögum sínum sjálf, hefur henni bezt vegnað. Nú í dag er 1. des. haldinn hátíðlegur sem fánadagur íslenzku þjóðarinnar, sem minningardagur þess þjóðernislega tákns, sem við viljum ætíð heyja baráttu okkar fyrir, að þjóðin verði ætíð stjórnarfarslega frjáls, einnig fullveðja á sviðum fjármála, viðskipta, menningarmála og í samstarfi við aðrar þjóðir á alþjóðavettvangi. Fána- dagurinn skal vera tákn þess óbilandi vilja og orku íslenzku þjóðarinnar til að halda því marki. Þegar sambandslögin tóku gildi, fagn- aði þjóðin þeim áfanga. Sá fögnuður náði Eyþór Þórðarson. hámarki, er íslenzki ríkisfáninn var í fyrsta sinn dreginn að hún á stjórnarráðshúsinu og um svipað leyti voru fánar dregnir á stöng víðsvegar um landið. Sjálfstæðisbarátta Islendinga hafði verið löng og hörð. Margir höfðu lagt mikið í sölurnar til þess að hinn rétti íslenzki fáni mætti blakkta með fullum heiðri og sóma. Þar ber hæzt nafn Jóns Sigurðssonar, for- seta. Þeir glæstu atburðir, sem gerðust 1. des. 1918 voru fullkomnaðir 17. júní 1944, en þann dag var á þingfundi að Lögbergi lýst yfir, að þjóðin tæki sér fullt og óskor- að stjórnarfarslegt frelsi og stofnað var lýðveldi í stað konungdæmis. Ekki kom til greina annað en að velja þann dag, fæð- ingardag Jóns Sigurðssonar, forseta, þess manns, sem glæsilegastur hefur verið og hvað mestur ljómi stafaði af í frelsisbar- áttu þjóðarinnar. Þrátt fyrir fögnuð þjóðarinnar yfir fengnu frelsi 1. des. 1918, átti hún þá við mikla erfiðleika og fátækt að etja. Til dæm- is voru þá nokkrir skólar lokaðir vegna eldiviðarleysis, en aðrir höfðu verið tekn- ir í notkun sem sjúkrahús, vegna skæðrar drepsóttar sem þá herjaði (Spanska veik- in) á landið. Frá þeim tíma hefur orðið mikil breyting á högum þjóðar vorrar til hins betra. Reikna má með, að þjóðin sé ekki und- ir það búin í dag að taka upp þá lifnaðar- háttu, sem þá voru. Lengi vel bjó mestur hluti þjóðarinnar í sveit, eða hafði nokk- urn búskap, þó við sjávarsíðuna væri búið. Atvinnuhættir byggðust á því, að hver og einn aflaði sér sjálfur hinna helztu nauð- synja, svo sem fæðis, klæðis og eldiviðar með vinnu sinni og sjálfstæðu starfi og því í flestum tilfellum án gjaldmiðils. A hverjum bæ og býli voru þeir hlutir, sem til þurftu, svo sem baðstofa, smiðja, smíða- hús, tæki til klæðagerðar úr ullinni, tæki til matargerðar úr þeim afurðum, sem afl- að var, tæki til skógerðar, eldiviðartöku og svo mætti lengi telja. A kvöldvökun- um í baðstofu hafði hver verk að vinna eftir hæfileikum sínum og þroska. A kvöld- vökunni var ekki síður sinnt hinni and- legu hlið með lestri og kveðskap. Segja má, að nær helmingur þeirrar vinnu, sem fram- kvæmd var á stóru heimili hafi verið ýmis- konar handiðn og stórsmíði. Bóndinn sinnti ekki síður störfum í þágu fiskveiða. Hann sendi vinnumenn sína í verið og var jafnvel sjálfur formaður á áraskipi, en tím- ar breyttust, áraskipum fækkaði með til- komu þilskipa, vélbáta og togara. Sjávar- þorpin stækka og verða að bæjum. Fólki fækkar ört í sveitum og flyzt á „mölina“ eins og kallað var. Svipaða sögu er að segja af handiðnaðinum. Hann flyzt úr sveitun- um í bæina- Aukin vélanotkun, samfara vandasamari verkefnum krefst menntun- ar þjóðarinnar. Vöxtur iðnaðarins hefur verið sá, að hann er nú fjölmennasti atvinnuvegur þjóðarinnar í dag, því að meir en þriðji hver vinnufær Islendingur starfar nú að iðju og iðnaðarstörfum. Ljóst er, að ef atvinnuvegirnir eiga að geta tekið við hinni öru fólksfjölgun, sem verður á íslenzkum vinnumarkaði á næstu árum, verður iðja og iðnaður að efl- ast stórlega með þjóð vorri. Saga atvinnuveganna á Islandi markast nokkuð af þrennum tímamótum. I fyrsta lagi með landnámi Ingólfs Arn- arsonar árið 874, en þá hófst landbúnaður og fiskveiðar. Arið 1752 hófu störf iðnaðarstofnanir Skúla Magnússonar fógeta. Stofnun inn- réttinga Skúla voru upphaf að íslenzkri iðju og iðnaði, öðru en heimilisiðnaði. 146 — F A X X

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.