Faxi - 01.01.1980, Blaðsíða 8
Jóhantt G. Ellerup,
lyfsali. - Minning
Norðurlöndum, og fórst þau
störf sem önnur með prýði.
Hann var í Frímúrarareglunni,
gekk í Rotaryklúbb Keflavíkur
1955, var forseti klúbbsins
1965-66. Hann var leiðandi
maður og leysti þar störf af
hendi svo vel sem best varð á
kosið. Jóhann var heiðraður
með því að gera hann heiðursfé-
laga þeirra samtaka.
Jóhann var glæsimenni að
vallarsýn, hógvær, ákaflega
kurteis og prúður í allri fram-
komu. Hvert vandamál leysti
hann með festu, sanngirni og
lipurð. Margir munu hafa til
hans leitað er voru í vanda
staddir. Sumum leiðbeindi hann
með hollum ráðum en studdi
aðra.
Ég er einn þeirra er þurfti til
hans að leita vegna vinar míns,
og gleymi ég ei hve fljótt og með
ljúfu geði hann leysti þann
vanda. Það var eitthvað í
persónuleika og framkomu Jó-
hanns Ellerup sem ósjálfrátt
laðaði menn að honum.
Hógværð hans og prúðmennska
var svo traustvekjandi.
Eftir fjörutíu og tveggja ára
ástúðlega sambúð með sinni
glæsilegu konu, dró sorgarský
fyrir hamingjusól Jóhanns.
Astri andaðist í marz 1974, eftir
langvarandi veikindi. Það var
mikið áfall fyrir þennan heima-
kæra rólynda mann. Eftir þetta
bjó hann einn í húsi sínu.
Fjórum árum síðar hætti hann
störfum. Þá setti hann oft sinn
svip á Keflavíkurbæ er hann
morgunn hvern hóf göngu sína
um götur bæjarins. Beinn og
höfðinglegur með jöfnum
ákveðnum skrefum sér til heilsu
bótar, svo lengi sem orkan
leyfði, því þá hafði hann tekið
þann sjúkdóm er leiddi hann til
dauða tveim árum síðar.
Þótt Jóhann Ellerup sé horf-
inn okkur yfir á svið ljóss og lífs,
fylgja honum kærleiksríkir yl-
geislar Rotaryfélaga hans og
annarra samferðarmanna.
Þess sálræna yls hefur hann
unnið sér með hógværð, rétt-
lætiskennd og mildi sem sannur
drengskaparmaður.
Ég votta börnum hans og
öðrum ástvinum innilega
samúð.
Karvel Ögmundssor.
Kaupfélag Suðurnesja
ÚTGERÐARMENN
LÍNUBELGIR OG BAUJUBELGIR
BAMBUS OG BAUJULUKTIR
ÁBÓT OG LÍNUSTEINAR
FÆRAEFNI OG BRYGGJUBÖND
DRÁTTARTÓG
BJARGBELTI OG BJARGHRINGIR
SKIPARAGETTUR OG HANDBLYS
FALLHLÍFARBLYS
HAKAR OG FISKIGOGGAR
FLATNINGSHNÍFAR, STÁLBRÝNI
Járn & Skip, Víkurbraut
Símar 2616 - 1505
r
Ibúar Vatnsleysustrandarhrepps
Fasteignagjöld 1980
Gjalddagi fyrri hluta fasteignagjalda er 15. jan.
Dráttarvextir 4Vi% falla á þessa greiðslu hafí
hún ekki verið innt af hendi 15. febrúar.
Gjalddagi síðari hluta er 15. marz. Dráttarvextir
á þá greiðslu reiknast 15. maí.
Greiðið á gjalddögum. Forðist dráttarvexti og
annan innheimtukostnað.
Sveitarstjórí
GRINDAVÍK
Fasteignagjöld
Gjalddagar fasteignagjalda 1980 eru 15.janúar
og 15. maí. Greiðslurverðuraðinnaafhendi eigi
síðar en mánuði frá gjalddaga.
Greiðið á gjalddögum og forðist dráttarvexti og
annan innheimtukostnað.
Bæjarsjóður - Innheimta
Fxddur 8. janúar 1904.
Dáinn 23. janúar 1980.
Oll lútum við því lögmáli að
berast með elfu tímans frá
vöggu til grafar. Sumra leið er
löng, annarra stutt, en allra
lokatakmark eru landamerki
lífs og dauða. Þar sem við vænt-
um hins æðra og fullkomnara
framhaldslífs.
í dag kveðjum við einn af
okkar bestu samferðarmönn-
um, Jóhann G. Ellerup, lyfsala í
Keflavik.
Hann var fæddur í Gern á
Jótlandi, 8. janúar 1904.
Fluttist til íslands 1929, að
loknu námi í lyfjafræði. Hann
vann fyrst í lyfjabúðinni Iðunni,
en fékk lyfsöluleyfi á Seyðisfirði
1932 og rak þar lyfjabúð ásamt
efnagerð til ársins 1950, er hann
fluttist til Keflavíkur eftir að
hafa fengið lyfsöluleyfi hér.
Hann rak hér lyfjabúð frá 1950
til 1978, er hann seldi lyfjabúð-
ina ásamt öðrum eignum.
Árið 1932 kvæntist hann
Astri Forberg. Þau eignuðust
fjögur mannvænleg börn:
Olav, sem starfar hjá Loft-
leiðum í New York, giftur Önnu
Lárusdóttur.
Fróði, vélvirki hjá norsku
fyrirtæki í New York, giftur Jó-
hönnu Sigurjónsdóttur.
Gísli, kennari á Seltjarnar-
nesi, giftur Sigrúnu Reynars-
dóttur.
Lisbet, búsett í Hafnarfirði.
Þau Astri og Jóhann nutu al-
mennrar virðingar í okkar
byggðarlögum, bæði starfsfólks
og viðskiptavina.
Jóhann starfaði um áratugi í
heilbrigðisnefnd Keflavíkur.
Hann skipulagði vinabæjamót
milli Keflavíkur og vinabæja á
Faxi - 8