Faxi - 01.01.1980, Qupperneq 10
Sigurþór Þorleifsson,
rennismiður. - Minning
Fæddur 2. desember 1894.
Dáinn 23. desember 1979.
Sigurþór Þorleifsson lést hér
á Sjúkrahúsi Keflavíkur 23. des.
sl., eftir nokkuð langa sjúk-
dómslegu.
Hann varfæddurað Arbæjar-
hjáleigu í Holtahreppi, 2. des-
ember 1894, sonur Þorleifs
Guðmundssonar bónda þar og
konu hans, Guðlaugar Magnús-
dóttur, og var hann yngstur 11
systkina. Hann ólst upp í for-
eldrahúsum og strax og hann
hafði þroska til fór hann að
hjálpa föður sínum við smíðar
auk annarra starfa, er tilheyrðu
búskap, en faðir hans Þorleifur
var handverksmaður samhliða
búskap og smíðaði mikið af
spunarokkum, sem þá voru
margir á hverju heimili í sveit-
um. Aðeins 12 ára gamall smíð-
aði Sigurþórsinnfyrsta rokk,en
æ síðan, allt til ársins 1970,
smíðaði hann rokka sem dreifð-
ust vítt um landið. Síðari árin
þegar tóvinna var að mestu hætt
þá smækkaði hann gerð þeirra
og smíðaði þá sem minjagripi.
Árið 1924, þann 14. júní gift-
ist Sigurþór Júlíönu Guð-
mundsdóttur, ættaðri úr hafn-
arfirði, og hófu þau búskap að
Hallstúni í Holtahreppi sama
ár. Þaðan fluttu þau árið 1925
að Lambhaga á Rangárvöllum
og bjuggu þar til ársins 1934, en
þá hafði Sigurþór byggt sér hús
við þjóðveginn í landi Strandar í
sömu sveit, og nefndi hann hús
sitt Litlu-Strönd. Þá hætti hann
búrekstri í hefðbundnum skiln-
ingi og sneri sér nú alfarið að
smíðum, bæði smíði spuna-
rokka eins og fyrr sagði og svo
Jóhann
annarri smíði, er leysa þurfti af
hendi fyrir bændur í nágranna-
byggðunum. Var það bæði við
byggingar og viðhald á hinum
ýmsu heimilistækjum. Þau hjón
eignuðust tvo syni, en ólu auk
þess upp einn fósturson.
Árið 1944 missti Sigurþór
konu sína en heldur þó heimili
að Litlu-Strönd allt til ársins
1948, að hann flyst til Reykja-
víkur, á heimili sonar síns, Þor-
leifs, og konu hans, Margrétar
Karlsdóttur. Hjá þeim dvelst
hann æ síðan, fyrst í Reykjavík
og síðan 1954 er þau flytja
hingað til Keflavíkur og bjuggu
að Skólavegi 9.
Það sem hér hefur verið ritað
er stutt lýsing á lífshlaupi Sigur-
þórs Þorleifssonar, en hér má
við bæta, að hann var maður
hreinskiptinn, hann var einkar
fljótur að eignast vini hvar sem
vegir hans lágu. Lífsviðhorf
hans var: „Hvar get ég orðið að
liði“, án þess að hugsa um laun
að liðnum starfsdegi. Þegar
heilsan og kraftarnir þrutu,
beindist hugurinn æ meir heim
Sölukóngur
jólablaðs
Faxa
Jóhann Júlíusson, Hátúni
14, Keflavík, bar sigur af
öðrum sölubörnum í desem-
ber. Hann seldi 110jóla-Faxa
og fékk í sölulaun kr. 16.500.
Það voru góð laun fyrir4tíma
vinnu barns. Kannski hefur
Högni, litli bróðir, hjálpað
honum?
til æskustöðvanna. Hann óskaði
eftir að verða jarðsettur við hlið
konu sinnar að Odda á Rangár-
völlum, og var útför hans gerð
þaðan að aflokinni minningar-
athöfn í Keflavíkurkirkju, laug-
ardaginn 5. janúar sl.
t
Liðinn er langur dagur
lúnum er hvíldin fengur,
frá þrautum og líkams lúa
leysast til vista skipta.
Nú hefur þú haldið jólin
á hærra tilveru sviði
ástvinum með þar einnig
árinu nýju fagnar.
Dáðríkt var dagsverk unnið
dagur á meðan leyfði
og þrekið án þrauta varði
og þróttur í högum höndum.
Ljúfur og hógvær lifðir,
lífið því marga gaf þér
ágæta æfi vini
allir þig jafnan virtu.
í upphafi keppninnar í I. deild
var Ármannsliöiö álitið mjög sig-
urstranglegt og önnur liö voru
helst ekki nefnd í sömu andrá.
En þegar á keppnina leið þá kom
í Ijós, aö geta Ármanns byggö-
ist aöeins á einum leikmanni,
Danny Shous, og enginn einn
maður getur skilað liöi sínu til
sigurs. Hin liðin hafa því skoöaö
vel leikaöferöir Ármanns og lið
Gnndavíkur reið siðan á vaðið
og sigraði í mjög spennandi leik
liðanna. Eftir venjulegan leik-
tíma var staðan jöfn 103:103.
Danny var „dekkaður vel allan
leikinn og síöari hluta hans voru
Góða minning ég geymi
um góðvininn minn og frænda
er ættrækinn ætíð reyndist
eins þótt fjarlægðir skildu.
Nú kveð ég þig, kæri frændi,
kvöldar nú hjá mér líka
þróttur með árum þrýtur
þetta er lífsins saga.
Gott er að leggja lúinn
líkama að foldar skauti.
Andinn, sem áfram lifir
aftur fær störf við hæfi.
Ástvini aftur finna
áður en héðan fluttu
umvafinn ást og birtu
æskuna fá að nýju.
Farðu svo Guðs í friði
til fegri og betri heima
endurnýjast þar aftur
ástvinum með og vinum.
Frelsarinn faðm þér breiði
á fögru tilveru sviði
leiði þig ljóssins á vegum
að lífsins eilífu borgum.
Guðmundur Jónsson
tveir menn settir honum til höf-
uðs. Þaö dugöi og Ármann hafði
tapað sínum fyrsta leik. Nú eiga
þeir fyrir höndum að sækja Þór
heim á Akureyri og (BK í
Keflavík. Mín spá er sú, að báðir
þeir leikir verði mjög spennandi
en endi báðir með tapi Ármanns.
Liði ÍBK var ekki spáð miklum
frama í vetur, enda er liðið byggt
upp á mjög ungum leikmönnum,
sem flestir voru aðeins 16-17
ára. En í Ijós hefur komið, að
þessir leikmenn eru í mikilli
framför og sýna stöðugt betri
leiki eftir því sem á veturinn líö-
ur. Nú hefur liöið leikiö sjö leiki,
unniö fimm og tapað tveimur.
Báðir leikirnir við Grindavík
unnust, einnig báðir leikirnir við
Tindastól og fyrri leikurinn við
Borgarnes vannst með 114 stig-
um gegn 57. Við töpuöum fyrir
Ármanni í Reykjavík í fyrsta leik
mótsins með 100:91. Einnig töp-
uðum við gegn Þór á Akureyri í
hörkuleik 75:72. Liðið á nú eftir
þrjá leiki. Fyrst leikum við gegn
Ármanni 9. febrúar. Það er
heimaleikur og með góðri hjálp
áhorfenda vonumst við til að sá
leikur vinnist. Þá heimsækjum
við Borgarnes og þrátt fyrir
þeirra leikmann, Wetaster (2.11
cm) þá reikna ég meö aö ÍBK sé
Framh. á 9. slðu
1. deildin í körfuboltanum
er orðinn spennandi
FAXI - 10
Högni