Faxi - 01.01.1980, Qupperneq 18
Síöasta heilastarfsár Fiskiöjunnar hf., 1978, greiddi hún langsamlega hæstu
meöallaun yfir allt landiö, kr. 6.7 milljónir. Hér er mynd af 5 starfsmönnum
Fiskiöjunnar sem óttuöust að tapa góðri vinnu ef færi sem horföi um endan-
lega stöövun verksmiöjunnar. Þeir eru: Guöjón Jónsson, (sleifur Björnsson,
Stefán Torfason, Guömundur Hólmgeirsson og Þórarinn Haraldsson.
starfa. Við munum flytja skrif-
stofu fyrirtækisins til Keflavík-
ur strax og nauðsynlegum und-
irbúningi er lokið, svo sem að fá
húsnæði og starfskrafta. Eg lít
þannig á að á eins stórum út-
gerðarstað og hér er, sé lífsnauð-
synlegt að rekinn sé góð fiski-
mjölsverksmiðja, og ég held að
flestir hafi gert sér það ljóst.
Einnig held ég að mönnum sé að
verða það sífellt ljósara, að dýr-
asta aðgerð til að losna við
mengun er hlýst af reyk og lykt
er að loka verksmiðjunum, og
þetta á ekki aðeins við hér,
heldur hvar sem er á landinu.
Þróunin á þessu sviði er mjög ör
og ég vona það besta í góðu
samstarfi við alla aðila.
Faxi býður Hilmar velkom-
inn til starfa hér á Suðurnesjum
og vonar að störf hans gangi vel
og giftusamlega. Einnig vonum
við að verksmiðjunni verði ekki
lokað aftur í bráð, þó svo lyktin
verði nokkuð meiri en af venju-
legri soðningu, því við búum nú
einu sinni í fiskiplássi.
Gunnar Sveinsson
InnRömmun
SuBunnesjn
Vatnsnesvegi 12
Keflavík - Sími 3598
Alhliða innrömmun
Opið 1-6 virka daga
Mikið úrval af
HOLLENSKUM MYNDARÖMMUM,
HRINGLAGA OG SPORÖSKJU-
LAGA RÖMMUM.
Vönduð vara.
Einnig mikið úrval af KERTUM.
Munið hinar vinsælu
ROSENTHAL-gjafavöru.
«
Skemmtikraftar af Suðurnesjum
(Hollur er heimafenginn baggi)
í hæfileikakeppni skemmti-
krafta sem Hótel Saga og Dag-
blaðið stóðu fyrir sl. vor og fram
fór á Hótel Sögu, komu tvær
grindvískar frúr fram í sviðsljós-
ið, eins og Faxi sagði frá á sínum
tíma. Þær eru Evelyn Adólfs-
dóttir og Kolbrún Sveinbjörns-
dóttir.
Þegar Sögu- og Dagblaðs-
keppnin kom til, höfðu þær
nokkrum sinnum komið fram
með skemmtiatriði á skemmti-
kvöldum heima í Grindavík og
þótti takast vel. Það var því lagt
að þeim að reyna getu sína í um-
ræddri keppni. Þátttakendur
urðu alls 36. Þær komust í úr-
slitakeppnina og höfnuðu að
lokum í 2. sæti. Síðan hafa þær
haft mikið að gera í skemmtana-
iðnaðinum. Þær hafa margoft
komið fram í Festi og Stapa,
einnig í Vogum, Garði, Hafnar-
firði, Reykjavík og víðar, m.a.
hafa þær skemmt í Aratungu
austur í Arnessýslu. Alls staðar
hefur verið gerður góður rómur
að skemmtiatriðum þeirra.
Þær syngja gamanvísur, flytja
gamanmál og jafnvel eftirherm-
ur. Þær hafa báðar góðar raddir
til slíks efnisflutnings og undir-
leik annast Kolbrún á harmo-
nikku. Textahöfundar að efni
sem þær flytja eru Birgir Marin-
ósson frá Engihlíð í Arskógs-
hreppi, Skarphéðinn Jónsson,
maður Evelynar, Guðveig Sig-
urðardóttir og gamantexti eftir
Lúðvík Jóelsson, öll úr
Grindavík.
Evelyn syngur og Kolbrún spilar á harmonikkuna. Ljósm : Ester Gísiadóttir
Unga fólkið í
Grindavík lxtur heldur
ekki eftir sinn hlut í þessum efn-
um. Kornung stúlka, Inga Björk
Runólfsdóttir, er farin að leika á
píanó á skemmtunum við góðar
undirtektir. Hún er nú 14 ára og
hefur stundað píanónám frá 7 ára
aldri í Tónlistarskóla Grinda-
víkur, hjá Eyjólfi Ólafssyni,
skólastjóra Tónlistarskólans.
J.T.
Faxi - 18