Faxi - 01.01.1980, Qupperneq 20
Snjall skákmaður
Fyrir tæpu ári varð Björgvin
Jónsson, Hlíðarvegi 19 í Njarð-
vík, sigurvegari í skákmóti Tafl-
félags Keflavíkur og hlaut titil-
inn Skákmeistari Keflavíkur.
Þetta vakti töluverða athygli
áhugamanna um skák, einkum
vegna þess að Björgvin var þá að-
eins 14 ára, fæddur 17/3 1964.
Síðan hefur hann bætt við hróður
sinn í skáklistinni, vann allar
skákirnar er hann tefldi á heims-
meistaramóti unglinga innan 16
ára, sem fram fór í Viborg í Dan-
mörku sl. haust. Slíkum árangri
náði enginn annar hinna 80 þátt-
takenda í mótinu, - afrek sem
Faxa langaði að fá á síður sínar
og nánar kemur fram í örstuttu
samtali við Björgvin.
Þú ert fæddur Reykvíkingur.
Hvenær fluttir þú hingað suður í
Njarðvík?
- Já, ég er fæddur í Reykja-
vík en flutti hingað 1976 með
foreldrum mínum.
Þá varstu orðinn grimmur
skákmaður?
- Ekki er nú hægt að segja
það. En ég var þó byrjaður í
skákinni.
Hvenær byrjaðir þú að tefla?
- Eg geri mér varla fyllilega
grein fyrir því. I minningunni
eru ekki glögg skil milli leiks
með taflmenn og skipulegrar
skákiðkunar. Sennilega var það
þó áður en ég varð læs. Fjöl-
skyldan var með skákáhuga.
Taflmenn stóðu jafnan á skák-
borðinu hjá afa og vöktu strax
áhuga minn þegar ég kom til
hans. Einnig teflir pabbi tölu-
vert.
Hvenær tókst þú svo fyrst þátt
i skákmóti?
- Ég var 10 ára þegar ég
tefldi fyrst á unglingamóti hjá
Taflfélagi Reykjavíkur, en þeir
eru með 3-4 slík mót á hverjum
vetri, sem gefa nafnbætur í sig-
urlaun, auk margra æfinga-
móta.
Þú hefur haldið áfram þátt-
töku í mótum eftir að þú komst
suður?
- Já, ég byrjaði á því að fara í
unglingamót hér. Fyrsta full-
orðinsmótið sem ég tók þátt í
var Haustmót Taflfélags Kefla-
víkur, þegar ég var 13 ára. Þátt-
Þegar Björgvin var 10 ára tók hann þátt í sterku útimóti, sem fram fór á Lækj-
artorgi í Reykjavík. Þá var þessi mynd tekin.
takendur voru 9. Ég fékk 5 vinn-
inga af 8 mögulegum og varð
þriðji. Haukur Bergmann vann
mótið. Eftir áramót sama vetur
tefldi ég úrslitaskák við Gísla
Sigurkarlsson í Suðurnesjamót-
inu og tapaði, en það þýddi að
ég hafnaði í 3. sæti.
Hvað bar næst til tíðinda?
- Á Haustmóti Taflfélags
Keflavíkur 1978 varð ég ásamt
Pálmari Breiðfjörð í 2.-3. sæti,
og enn sigraði Haukur. Þar næst
kom Skákmót Keflavíkur í febr-
úar í fyrra, sem ég vann með 6 af
7 mögulegum. En á Suðurnesja-
mótinu sem þar kom í kjölfarið
fékk ég einnig 6 af 7 mögulegum
og hreppti annað sætið. Haukur
Bergmann varð í 1. sæti. Á sama
tíma tók ég einnig þátt í Skák-
þingi Taflfélags Reykjavíkur, í
næst sterkasta riðli, og náði þar
5. sæti en þátttakendur voru 12.
I apríl sl. tefldi ég svo í
áskorendaflokki áSkákþingi Is-
lands. Frammistaða mín á
Suðurnesjasvæðinu gaf mér rétt
til þeirrar þátttöku. Þar varð ég í
4.-5. sæti af 12 þátttakendum.
Það var ágæt útkoma.
Var svo Norðurlandamótið
næst?
- Já, það fór fram í Svíþjóð í
júíi-ágúst sl. sumar. Á það mót
fóru 16 íslendingar, þar af 3
héðan að sunnan , auk mín þeir
Haukur Bergmann og Sigurður
H. Jónsson. Mótið vann Svíinn
Cristian Niklason, en Jón L.
Árnason varð í öðru sæti.
En hvernig gekk ykkur sunnan-
mönnum?
- Ja, svona. Þátttakendur í
meistaraflokki voru með litlum
undantekningum afar jafnir. Ég
fékk Vh vinning, en þeir
Haukur og Sigurður 3 vinninga
hvor.
En það sem vakið hefur sér-
staka athygli á þér sem skák-
manni, er frammistaða þín í
Heimsmeistaramóti unglinga 16
ára og yngri, sem fram fór í Dan-
mörku í haust. Hvað getur þú
sagt okkur frá því móti?
- Þetta var sveitakeppni. Við
höfnuðum í 4. sæti af 16 þátt-
tökusveitum, og var það heldur
lakara en við höfðum vænst.
Hins vegar gekk mér vel. Ég
tefldi 3 skákir, sem fyrsti vara-
maður íslensku sveitarinnar, og
vann þær allar.
Ég heyrði sagt, að af 80 þátt-
takendum í mótinu hefðir þú
verið sá eini sem varst með 100%
vinningshlutfall - var það rétt?
- Já, ég held að það sé rétt.
Ég tefldi við pilta frá Belgíu,
Finnlandi og Vestur-Þýska-
landi. Annars unnu Englend-
ingar mótið.
Hvernig líkaði þér að tefla
þarna?
- Það var teflt í skólahúsi við
frekar lélegar aðstæður. Aðsókn
áhorfenda var allgóð - m.a.
komu þangað nokkrir Islend-
ingar.
Hefur þú farið í fleiri skák-
ferðir til útlanda?
- Um áramótin 1978-79
komu hingað drengir úr Skák-
klúbb New York borgar og
tefldu við íslenska drengi. Þessi
heimsókn var endurgoldin með
því að við fórum vestur til þeirra
í viku heimsókn og tefldum
þrisvar við þá og unnum alltaf.
Hvað voruð þið margir sem
tókuð þátt í þeirri ferð?
- Við vorum um 20 drengir
innan við 15 ára og svo nokkrir
fullorðnir fararstjórar.
Leggurðu hart að þér í mótum?
- Ég undirbý mig dálítið,
riíja upp byrjanir og skoða at-
hyglisverðar skákir. Ég var þó
nokkuð spenntu í mótum, en er
nú að komast yfir það og tek því
með jafnaðargeði sem að
höndum ber.
Teflir þú mikið?
- Það má kannski segja það.
Ég reyni að taka þátt í sem
flestum mótum - þar fær maður
besta þjálfun.
Ætlar þú að leggja skák fyrir
þig - gera hana að æfistarfl?
- Ég efast um það. Til þess
þyrfti ég að ná verulegum
árangri - nú, en málin skipast á
næstu árum. Ég hef ekki enn
gert mér grein fyrir hvaða störf
henta mér og er því alls óráðinn.
Að lokum - hver er uppáhalds
skákmaður þinn?
- Hann heitir Velimirovic,
stórmeistari frá Júgóslavíu.
Hann teflir hvasst, en það þykir
mér skemmtilegur skákstíll.
Nú standa yfir tvö mót, sem
Björgvin tekur þátt í, það er
Skákþing Reykjavíkur ogSkák-
þing Suðurnesja. Það er mikið
álag til viðbótar öðrum venju-
legum viðfangsefnum unglinga
á hans aldri. Suðurnesjamenn
og væntanlega allir landsmenn
eiga eftir að fylgjast með skák-
ferli Björgvins og fagna með
honum, þegar vel gengur á
skákbrautinni.
Faxi - 20