Faxi - 01.02.1982, Blaðsíða 17
Þorsteinn farsæll skipstjóri. Það
mun aldrei hafa slasast hjá honum
maður. Hann var góður aflamað-
ur, fiskaði vertiðina 1932 900 skip-
pund í 50 róörum, sem var þá
mjög góður afli. Hann var einstakt
prúðmenni í öllu sínu starfi og allir
sem þekktu hann elskuðu hann og
jvirtu. Ef að miður gekk skeytti hann
ekki skapi á þeim sem með honum
voru, þegar ég týndi fyrir honum
baujunni einu sinni sagði hann
ekki við mig eitt styggðaryrði. Ef
vel gekk mátti sjá gleðibros á vör-
um hans.
Eiginköna Þorsteins var Mar-
grét Guðnadóttir fædd í Keflavík.
Hún ereinnig látin.
Þau áttu fágað og hreinlegt
heimili ílitlu húsi, semsíðarhétvið
lAðalgötu 18 í Keflavík. Þau undu
þar vel hag sínum með sonunum
sínum tveimur, sem voru fjögra og
sex ára gamlir, þegar sá atburður
gerðist með björgunina sem að
framan er sagt frá.
Margrét var einstök húsmóðir
og lét sér annt um að halda heimil-
ið þannig að vel færi um fjölskyld-
una og að fyrir gestkomandi væri
gaman að koma þangað. En hjón-
in voru samhent um að taka vel á
móti gestum. Ég og aðrirsem voru
með Þorsteini en voru aðkomu-
menn, áttu oft leið þangað heim og
við áttum þar ógleymanlegar
stundir.
Synir þeirra Þorsteins og Mar-
grétar eru Eggert fyrrv. ráðherra,
og Guðbjörn þekktur skipstjóri í
Reykjavík. Mér hefur alltaf verið
n'kt í huga þetta björgunarstarf
Þorsteins og hef nú með þessum
fáu línum látið þess að litlu getið.
Ég bið Guð að blessa minningu
þessara gömlu vina minna.
Um myrkviðinn læðist maður
með blikandi kross á brjósti
en hríðskotabyssu i hendi,
klæddur flekróttum fötum.
Styrktur afstjórnvöldum nágrannaþjóðar.
í dögun rennur dreyri í svörðinn,
maður liggur myrtur við stiginn,
skotinn með byssu í bakið.
En Kain brosiri kampinn og segir:
Ber mér að gæta bróður míns.
Jóhann Jónsson:
Bræðravig
Kemur blóð hans yfit konur og börn
mannsins sem myrti, eða
stjórnvöld erstyrktu til verksins?
Geturþú svarið afþérglæpinn,
ersmíðaðir váleg vopnin
og seldirí hendur misyndismanni?
Ef til vill þværðu hendur þínar og segir:
Ég er fylgjandi frjálsum markaði.
Getur þú keyptþá glaður ég sel.
Og síðan leggurþú silfrið
á svissneskan banka.
STEINDÓR SIGURÐSSON
Sérleyfis og hópferðabílar
MJARDVlK-PÓSTHÓLF 108-SfM 2840-3550
Sandgerðingar
Miðnesingar
Útsvör - Aðstöðug jöld
Annar gjalddagi fyrirframgreiðslu
útsvara og aðstöðugjalda var
1. mars s.l.
Gerið skil á gjalddögum og forðist
þannig dráttarvexti og önnur
óþægindi.
Sveitarstjóri.
FRA ALMANNA-
TRYGGINGUM
í Keflavík, Njarðvík,
Grindavík og
Gullbringusýslu
Vegna tölvuvinnslu skal bótaþegum bent áað
tilkynna umboðinu strax um breytingu á
heimilisfangi, til að komast hjá erfiðleikum í
útsendingu bótamiða.
Sími okkar er 3290
Bæjarfógetinn f Keflavfk, Njaróvík og Grindavfk
Sýslumaöurlnn í Gullbringusýslu
FAXI-41