Faxi - 01.02.1982, Page 24
Hagst3eð'rr ÚTSÝNAB
somn”bér
Pantið réttu ferðina tímanlega
Sumaráætlun
Útsýnar 1982 vekur
SPANN
Costa del Sol
Costa del Sol er heillandi heimur sólskins og glaðværðar, sögu og náttúrufeg-
uðar og þaðan snýr farþeginn heim endumærður og hvíldur með efldan
lífsþrótt.
Torremolinos eða Marbella, frábærir dvalarstaðir og það er segin saga að
hingað leitar ferðamaðurinn aftur og aftur, eftir að hafa reynt alla hina staðina
og komist að þeirri niðurstöðu að Costa del Sol tók þeim öllum fram.
Fyrsta brotttör 7. apríl. Verð frá kr. 6.450.-
HEIMSMEIST AR AKEPPNIN í KNATTSPYRNU1982
Af íþróttaviðburðum heimsins er enginn sem vekur aðra eins athygli, eftir-
væntingu og aðskókn og heimsmeirstarakeppnin I knattspymu. Því ber vel I
veiði fyrir farþega Útsýnar á Costa del Sol að geta orðið vitni að þessum
heimsviðburði I sumarleyfi sínu jafnframt því að njóta lifsins viðsól- og sjóböð
og hvers kyns skemmtun. Útsýn fer með umboð á Islandi fyrir heimsmeistara-
keppnina og hefur tryggt sér takmarkaðan fjölda aðgöngumiða að leikjunum,
sem fram fara I Malaga og Sevilla, en þar eigast við hin heimsfrægu lið
Brasilíu, Sovétríkjanna, Skotlands og Nýja-Sjálands.
SPÁNN
Mallorca
Palma Nova og Magaluf eru vinsælustu og bestu baðstrandarbæirnir á
Mallorca, um 15-20 km frá höfuðborginni Palma á vesturströnd Palma-fló-
ans. Hér ríkir hinn rétti andi til hvíldar. Útsýn hefur tryggt farþegum sínum
fjölbreyttasta úrval bestu gististaðanna og munu allir finna gististað við sitt
hæfi fyrir ótrúlega hagstætt verð.
Fyrsta brottför 5. maí. Verð frá kr. 6.900.-
ÍTALÍA
Lignano
Lignano Sabbiadoro - Gullna ströndin.
Að flestra dómi er Lignano Sabbiadoro framúrskarandi sumarleyfisdvalar-
staður, enda hefur Útsýn aldrei getað annað eftirspurn, síðan ferðir hófust
þangað. Frjálslegt, glaðvært andrúmsloft, ítölsk matargerðarlist, frábær bað-
strönd og ferðamöguleikar til fornfrægra borga gefa Lignano ómótstæðilegt
aðdráttarafl fyrir þá sem vilja vikka sjóndeildarhringinn um leið og þeir sækja
sér hvild og nýjan þrótt i sumarleyfinu.
Brottför 28. maí. Verð frá kr. 6.950,-
SIKILEY
Fjöldi annarra ferðamöguleika, s.s.
gríska eyjan Krít, sex landa sýn.
Sumarhús í Danmörku og víðar, í eig-
in bíl til meginlands Evrópu, Brasilía,
Mexico, Florida og síðast en ekki síst
fyrsta flokks þjónusta fagfólks við
skipulagningu ferða ,,á eigin vegum”
um allan heim.
Stærsta og glæsilegasta ferðaáætlun, sem komið hefur út hérlendis
Taormina - Naxos
Ef þig dreymir um kristalstæran sjó undir fagurbláum himni við sífellt sólskin
og náttúrufegurð I litum og línum, í landslagi og gróðri, sem vart á sinn líka i
veröldinni, suðrænt andrúmsloft og rómantik - þá er Sikiley staður fyrir þig.
Stærsta, fegursta og sögufrægasta eyja Miðjarðarhafsins verður í ár hið nýja
takmark og landnám i ferðum Islendinga. Veðursældin frá páskum fram i
nóvember, ilmandi litskrúð blöma og ávaxta, fegurðin sem hvarvetna blasir
við augum og óteljandi minjar um sögu og glæsta menningu liðinna alda, allt
frá því að Sikiley var voldugri en sjálf Aþena - mótar ramma hins ákjósanlega
og ógleymanlega sumarleyfis og mun höfða sterkt til íslenzkra ferðamanna,
sem næmir eru á fegurð umhverfis jafnframt þvi að vera þyrstir í sól og
ævintýr.
Fyrsta brottför 8. apríl. Verð frá kr. 7.300.-
JÚGÓSLAVÍA
Portoroz
Blómum skrýdd Portoroz - höfn rósanna - stendur í skjóli hæðanna við
Piran-flóann á vesturströnd Istria-skagans, frægur heilsubaðstaður meö röð
nýtískuhótela og veitingahúsa við strandgötuna og skógi vöxnum hæðum og
vínekrum í kring. Frá flugvellinum Ronchi, handan viðlandamæri ítalíu, er
aðeins klukkustundar akstur. Útsýn hefur náð samningum við bestu gististað-
ina, Hotel Slovenja og Grand Hotel Metropol, sem tryggja farþegum fyllstu
•þægindi og frábæra aðstöðu.
Fyrsta brottför 28. maí. Verð frá kr. 7.950,- m/hálfu fæði.
með 300 brottförum til valinna dvalarstaða um allan heim.
Umboð á Suðurnesjum, Hafnargötu 79 - Keflavík - Sími 1560