Vísbending - 13.07.2007, Síða 1
Í íþróttum er oft talað um vallarmet þegar nýr besti tími næst á ákveðnum íþrótta-
velli. Hallarmet er af svipuðum toga þar
sem völlurinn er íslenska kauphöllin. Hall-
armetin í veltu, hækkunum og verðmæti
eru svo mörg og tíð að lýsingarorð eins
og „ótrúlegt“, „lygilegt“ og „stórkostlegt“
standa ein eftir til að lýsa sigrunum. Hefð-
bundnar mælistikur og tölfræði eiga vart
við lengur þar sem tölurnar eru orðnar svo
háar að venjulegan mann skortir skilning til
að sjá gildin fyrir núllunum. Ef þetta væri
langstökk þyrfti sennilega að opna íþrótta-
völlinn í annan endann svo að stökkvarinn
fengi ekki höfuðhögg. Kauphöllin varð
enda hluti af hinni norrænu OMX þar sem
völlurinn var einfaldlega ekki nægilega stór.
Úrvalsmet
Í viku 28 eða þann 10. júlí síðastliðinn fór
úrvalsvísitalan yfir 8.700 stig sem segir ef
til vill ekki mikið nema þegar hugsað er
til þess að þessi sama vísitala var 1.500 stig
fyrir fimm árum síðan. Þetta segir kannski
heldur ekki alla söguna en markaðsvirði
þeirra 35 fyrirtækja sem voru í kauphöllinni
(aðallisti og tilboðslisti) fyrir fimm árum
13. júlí 2007
26. tölublað
25. árgangur
ISSN 1021-8483
1 2 4Ný hallarmet eru sett á næstum hverjum degi á
hlutabréfamarkaðinum
um þessar mundir.
Frændur virðast oft vera
frændum verstir og stundum
geta illdeilur nágranna leitt
heilu samfölgin til glötunar.
Einkaaðilar eru betri en
opinberir aðilar til þess
að reka rafmagnsfyrirtæki
samkvæmt rannsóknum.
Lánasjóður íslenskra
námsmanna er dæmi um
dulið styrkjakerfi sem tími er
kominn til að breyta.
3
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
Nýtt hallarmet!
var um 550 milljarðar þegar 27 fyrirtæki
Nordic-listans (samsvarar gamla aðallistan-
um) hafa samanlagt markaðsvirði um
3.650 milljarða í viku 28. Þetta er hátt í
sjöföldun (6,6 földun).
Til frekari skemmtunar má nefna að
verðmæti fyrirtækja í kauphöllinni var
65% af vergri landsframleiðslu árið 2003
en 317% árið 2007. Þetta eru sviptingar
sem verður aðeins lýst með fyrrnefndum
lýsingarorðum. Þetta er heldur ekkert
venjulegt hallarmet í samanburði við
aðrar kauphallir, þetta fer nærri því að
vera hallarheimsmet! Það reyndist hins
vegar ekki mögulegt að prófa þá tilgátu
vegna skorts á tíma og upplýsingum.
Spurningin er svo hver framtíðin verður
í höllinni, hvort ný hallarmet verði sett á
nær hverjum degi eftir sem áður? Grein-
ingardeildir bankanna trúa því að me-
tin eiga eftir að vera fleiri. Glitnismenn
segja að vísitalan eigi eftir að hækka um
12% til viðbótar á árinu, þannig að hún
muni hafa hækkað um 45% á öllu árinu.
Kaupþingsmenn segja að vísitalan muni
fara yfir 9.000 stigin og fara allt að 9.500
stigum, sem er hækkun um 3,5% til 9,2%
frá 8.700 stiga markinu. Bankamenn telja
því að enn séu góðir tímar framundan.
Eitt gott sport
Íslendingar hafa yfirleitt vakið eftirtekt
erlendis fyrir ákveðið sérkenni á hverjum
tíma sem er erfitt að trúa út frá tölfræði-
legum forsendum. Fjöldi fegurðardrott-
ninga sem sigraði í erlendum keppnum
sýndi að þjóðin var lygilega fögur, árangur
í handbolta, og jafnvel fótbolta á tímabili,
að þjóðin var ótrúlega góð í íþróttum og
nú hafa hlutabréfa- og fyrirtækjakaup
þjóðarinnar sýnt að þjóðin er stórkostleg
í viðskiptum. Á sama tíma fer hins vegar
minna fyrir fegurðar- og boltasigrum,
þá sérstaklega fótboltasigrum. Stundum
virðist eins og þjóðin geti einungis ein-
beitt sér að einu í einu, eins og hún væri
karlmennskan uppmáluð, en það er nátt-
úrulega augljóst að fegurð krefst fullrar
einbeitingar. Kannski er það þessi einbeit-
ing þjóðarinnar sem gerir henni kleift að
framkvæma hið ótrúlega, slá vallar- og hall-
armet sem vekja eftirtekt um heim allan!
Heimildir: OMX, Seðlabankinn og mbl.is.
Í milljörðum íslenskra króna. Heim ild: OMX.
Markaðsvirði nokkurra verðmætustu fyrirtækja Íslands í júní 2003 og 2007
V í s b e n d i n g • 2 6 t b l 2 0 0 7 1
V
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
Kaupþing Glitnir Landsbankinn FL Group Straumur-B. Bakkavör
Júní
2007