Vísbending - 11.09.2009, Qupperneq 1
Lánskjaravísitala frá 1989, lánskjaravísitala frá 1995 og launavísitalan. Heimild: Hagstofa Íslands,
útreikningar Vísbendingar.
Á myndinni sést að vísitalan frá 1989 hefði verið skuldurum mun óhagstæðari en núverandi
vísitala. Verst hefði þó launavísitalan farið með skuldara. Jafnvel þó að lánskjaravísitalan
núverandi hækki í lokin gagnstætt hinum er munurinn til lengri tíma sláandi. Skýringin er sú að
launavísitalan hefur hækkað langt umfram almennt verðlag. Hefði gamla vísitalan (eða
launavísitala) gilt þá hefði hluti kjarabótanna horfið sem hækkun á skuldum. Það er því ljóst að
þessi breyting var kjarabót fyrir þá sem skulda, sem hefur gleymst þegar fjallað hefur verið um
bættan hag launþega á undanförnum áratug. Þó að það geti virst heppilegt tímabundið að miða
lánskjaravísitölu við þróun launa er það afar óhagstætt fyrir almenning til lengri tíma litið.
Lánskjaravísitala frá 1989, lánskjaravísitala frá 1995 og launavísitalan. Heimild: Hagstof Íslands,
útreikningar Vísbendingar.
Á myndinni sést að vísitalan frá 1989 hefði verið skuldurum mun óhagstæðari en núverandi
vísitala. Verst hefði þó launavísital n farið með skuldara. Jafnvel þó að lánskjaravísitalan
núverandi hækki í lokin gagnstætt hinum er mu urinn til lengri tíma sláandi. Skýringin er sú að
launavísitalan hefur hækkað langt u fra almennt verðlag. Hefði gamla vísitalan (eða
launavísitala) gilt þá hefði hluti kjarabótanna horfið sem hækkun á skuldum. Það er því ljóst að
þessi breyting var kjarabót fyrir þá sem skulda, sem hefur gleymst þeg r fjallað hefu verið um
bætt n hag launþega á unda förnum áratug. Þó það geti virst heppilegt tímabundið að miða
lánskjaravísitölu við þróun launa er það afar óhagstætt fyrir almenning til lengri tíma litið.
11. september 2009
36. tölublað
27. árgangur
ISSN 1021-8483
1Það er almenningi í óhag ef lánskjara-
vísitalan verður
tengd við laun.
Þróunarlönd voru
ekki á eyðslufylleríi.
Sleppa þau þá við
kreppuna?
Er stjórnendur dæmdir
af hæfileikum eða
tilviljanakenndri
afkomu fyrirtækja?
Stjórnmálamenn eru fljótir
að gleyma sannfæringu
gærdagsins ef annað
hentar betur.
3
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V í s b e n d i n g • 3 6 . t b l . 2 0 0 9 1
2 4
Skjaldborg um skuldirnar
Enn á ný er komin upp umræða um lánskjaravísitöluna og grun d-völl hennar. Vísitalan var tekin
upp árið 1979. Hún var byggð upp á
byggingarvísitölu að tveimur þriðju og
neysluvísitölu að einum þriðja. Verð-
trygging lánsfjár var nýjung hér á landi
en hún var tekin upp þegar ríkisstjórn
Framsóknarmanna, Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags var við völd undir forsæti
Ólafs Jóhannessonar. Á árunum á eftir
var mikil óánægja með verðtrygginguna.
Lítill skilningur var á því hvernig vísitalan
virkaði. Margir áttuðu sig ekki á því að
skuldir héldu „raunvirði“ sínu. Verðlag
hækkaði hins vegar hraðar en laun um
tíma og skuldir jukust hlutfallslega meira
en ráðstöfunartekjur. Árið 1989 var
vísitölunni breytt til þess að koma til móts
víð þessa gagnrýni og hún byggð upp
af þremur jafngildum þáttum: neyslu-,
launa- og byggingarvísitölum. Þetta
varð til þess að laun fengu mjög mikið
vægi í vísitölunni og launþegar áttuðu
sig á því að svo gæti farið að stór hluti
kjarabóta hyrfi við það að lán hækkuðu.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, setti þá kröfu á oddinn að
samsetningu vísitölunnar yrði breytt og öll
verkalýðshreyfingin tók undir þá kröfu. Í
kjölfarið var ákveðið að lánskjaravísitalan
myndi fylgja neysluvísitölunni. Það hefur
verið svo síðan árið 1995. Breytingin olli
ekki miklum deilum.
Enn talað um breytingar
Ekki þarf að efast um að það væri mjög
hagfellt fyrir íslenskt efnahagslíf að hér
á landi væri stöðugur gjaldmiðill og
stöðugt verðlag. Átta ára tilraunastarfsemi
með sjálfstæða peningamálastefnu hefur
brugðist. Við hrunið fyrir tæplega ári síðan
varð breyting af því tagi að þjóðfélaginu var
í raun snúið á haus, eignir þurrkuðust út
á sama tíma og skuldir hækkuðu og tekjur
lækkuðu. Þetta misgengi þarf að leiðrétta
með almennum hætti. Ekki þannig að tjón
manna verði að fullu bætt, heldur með því
að leiðrétta að hluta þetta áfall sem jafna má
við náttúruhamfarir. Stærstu leiðréttinguna
þarf ð gera á gengistrygg um lánum.
Á óvissutímum er mikilvægt að
menn bæti ekki bölið með öðru verra.
Tekjutengingar hafa verið sú lausn sem
ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa bent á.
Má þar nefna bæði viðskiptaráðherra og
félags- og tryggingaráðherra. Þessi aðferð
er afar hættulegt af t eimur ástæð m:
Annars vegar verða miklar tekjur tengingar
til þess að jaðarskattar aukast svo mjög
að hvatinn til þess að fólk vinni sig út úr
vandanum hverfur. Hins vegar er tenging
lánskjaravísitölu við laun mun óhagstæðari
launamönnum en núverandi vísitala,
jafnvel þó að nú hafi orðið misgengi.
Stiglitz slæst í hópinn
Nóbelsverðlaunahafinn Stiglitz er nú
kominn í hóp þeirra sem mælir með því að
lán hækki í takt við laun. Á Íslandi er það
lenska að telja að útlendingar hafi miklu
meira vit á innlendum málum en þeir sem
hér lifa og hrærast. Fljótfærni er þó engu
betri hjá gestum en Íslendingum. Reynslan
sýnir að lánskjaravísitala sem tengist
launum er skuldurum afar óhagstæð.
Á meðfylgjandi mynd eru sýndar þrjár
vísitölur á árunum 1995 til 2009. Gaml
lánskjaravísitalan (sú sem gilti frá 1989 til
1995) núverandi vísitala (sem hefur gilt frá
1995) og launavísitala.
Á myndinni sést að vísitalan frá 1989
hefði verið skuldurum mun óhagstæðari
en núverandi vísitala. Verst hefði þó
launavísitalan farið með skuldara. Jafnvel
þó að lánskjaravísitalan núverandi hækki
í lokin gagnstætt hinum er munurinn
til lengri tíma sláandi. Skýringin er sú
að launavísitalan hefur hækkað langt
umfram almennt verðlag. Hefði gamla
vísitalan (eða launavísitala) gilt þá hefði
hluti kjarabótanna horfið sem hækkun á
skuldum. Það er því ljóst að þessi breyting
var kjarabót fyrir þá sem skulda, sem hefur
gleymst þegar fjallað hefur verið um bættan
hag launþega á undanförnum áratug. Þó
að það geti virst heppilegt tímabundið að
miða lánskjaravísitölu við þróun launa er
það afar óhagstætt fyrir almenning til lengri
tíma litið.
Mynd: Þrjár vísitölur 1995-2009 (síðasta gildi haust 2009)
ánskjaravísitala frá 1989, lánskjaravísitala frá 1995 og laun vísitalan. Heimild: H gstofa Ísl ds,
útreikningar Vísbendingar.
Lau
nav
ísit
ala
Gam
la lán
skjar
avísi
talan
Núver
andi l
ánskja
ravísit
ala