Straumar - 01.01.1927, Qupperneq 16
8
STRAUMAR
ula: „Ekki er svo, að eg hafi þegar náð því eða sé þeg-
ar fullkominn, en eg keppi eftir því, ef eg skyldi geta
höndlað það, með því að eg er höndlaður af Kristi Jesú.
Bræður, ekki tel eg sjálfan mig enn hafa höndlað það;
en eitt gjöri eg: eg gleymi því sem að baki er, en seil-
ist eftir því sem fyrir framan er, og keppi þannig að
markinu, til verðlaunanna, sem himinköllun Guðs fyrir
Krist. Jesú býðuru (Fil. 3, 10.).
Heilbrigð syndavitund trúaðs manns er ávalt samfara
tilfinningunni fyrir því að vera of fjarri hugsjóninni. Hún
er sorg yfir þeim mun á hugsjón og veruleika, sem líf
mannsins ber vott um. —
Þannig má þá einkenna hið heilbrigða trú-
arlíf með 4 orðum, með orðunum: innileiki,
kraftur, kærleikur, þroski.
Sú niðurstaða prófast bezt með því að virða
fyrir sér líf frelsara vors, sem vér, sem viljum
vera lærisveinar hans, erum sannfærðir um, að lifað hafi
heilhrigðustu trúarlífi á jörðu vorri.
Þegar vér virðum fyrir oss mynd hans, sjáum vér
blasa við oss í fegurstu mynd þessi i'jögur einkenni trú-
arlífsins.
Sé því spurt um, hvað vér eigum að gjöra,
til þess að trúarlíf vort megi vera sem heil-
b r i g ð a s t í þessa stefnu, sem eg hefi hér talað um, þá
verður svarið ótvírætt þetta: Gjörum oss sem
mestfar um að eignast huga Krists, eignast
lunderni hans.
Eignast háleitu hugmyndirnar hans og göfugu hugsjón-
irnar, eignast sem mest af þeirri þekkingu á Guði og
hinu góða, sem vér eigum honum að þakka, svo að
skynsemi vor mætti vera uppfrædd og leidd af anda
hans.
Eignast eitthvað af kærleiksþelinu hans, eitthvað
sem er í ætt við hinn djúpa og dýrlega kærleika hans til
Guðs og manna.
Eignast eitthvað af viljafestu hans, viljaþrótti