Straumar - 01.01.1927, Qupperneq 20
12
S T R A U M A R
Grnðshugmynd Jesú.
Á 1. sunnudag eftir þrettánda flutti próf.
Har. Nielsson ræðu um það i Fríkirkjunni:
Getum vór öðlast þekking' A Guði ? — út
frá orðum Páls (í Post. 17,23) um altarið i
Aþenu, er á var ritað „Ókunnum guði“, og
þessum orðum í guðspjalli dagsins: „Vissuð
þið ekki, að mér ber að vera i þvi, sem
mins föður er?“ - I niðurlagi ræðunnar
fórust honum svo orð:
„Vér byrjum að koma guðshugmyndinni inn lijá börn-
unum þegar á bernskuárum þeirra. Jesús var ekki nema
12 ára, þá er harin sat mitt á meðal lærit'eðranna og gerði
hvorttveggja, að lilýða á þá og spyrja þá. — Vér byrj-
um á því að segja barninu frá Gruði og reyna að koma
inn hjá því trú á Guð. En þá er eg kominn að hugsun-
inni, sem greip mig hér í kirkjunni á nýjársdag, og eg
gat um áðan, að orðið hefði tilefnið til þessarrar ræðu.
Hugsum vér nægilega um það, að koma föðurhugmynd
Jesú hreinni og óflekkaðri inn hjá börnunum? Er oss það
nægilegt áhugamál, að henni sé ekki blandað saman við
aðrar guðshugmyndir, sem lýta hana og rýra í augum
barnsins, þegar það er komið á fullorðins ár og tekur að
hugsa af alvöru um þessi efni? Vér megum ekki gleyma
því, að í biblíunni er sagt frá mjög mismunandi stigum
guðshugmyndarinnar. A lægstu stigunum, sem þar er skýrt
frá, er hún mjög ófullkomin. Já, ef þú lest sálmabók vora
vandlega, þá muntu sannfærast um, að sálmarnir flytja
oss guðshugmynd Jesú engan veginn allir jafnhreina.
Margir þeirra bera mjög merki af trúarkerfum síðari tíma,
sem eiga í raun og veru lítið skylt við kenning Jesú
sjálfs.
Þegar eg hlustaði á sálminn „Hvað boðar nýárs blessuð
sólu hér í kirkjunni á nýársdag, kom mér til hugar: Hlýt-
ur ekki slík hugmynd um Guð og sú, er hér er sett fram,
að draga hugi manna að kirkjunni og trúmálunum? Get-
ur nokkur annað en laðast að henni? Mér er það enn