Straumar - 01.01.1927, Síða 21
STRAUMAB
18
minnisstætt frá unglingsárum minum, er eg sá sálma-
bókina nýprentaða og hlustaði á fyrsta dóminn um hana.
Þá var þessi sálmur lesinn upp, til þess að sýna ágæti
hennar og yfirburði yfir gömlu sálmabókina. Allir við-
staddir daðust að sálminum. Mörg ár eru liðin síðan, en
eg hefi aldrei heyrt nokkurn mann setja út á neitt í þess
um sálmi, heldur hafa allir lokið lofsorði á hann. Það er
ekki rímsnildin, sem gert hefir hann svo vinsælan, held-
ur fyrst og fremst fegurð guðshugmyndarinnar.
En hversu margt í kenningarkerfunum hefir fælt ung-
lingana burt frá kristindómi og kirkju, er þeir stækkuðu?
Getur guðshugmynd Jesú, hrein og óflekkuð, fælt nokk-
urn ungling burt?
Höfum vér ekki hugsað of mikið um að láta ungling-
ana læra þungskilið fræðikerfi, en gleymt að uppörva þá
nógu alvarlega til þess að gefa sífelt gætur að guði í
sjálfum sér, að guðs rödd hið innra í samvizkunni og trúa
á alt hið bezta í vorum innra manni?
Eitt sinn heyrði eg stóran barnahóp hér í Reykjavík
syngja þessar ljóðlínur við vorpróf:
„Trúðu á tvent i heimi,
tign sem hæsta ber:
guð i alheimsgeimi,
guð i sjálfum þóru.
Hugur minn fyltist lotningarfullum unaði og klökknaði af
samhygð með börnunum. Mér fanst þau vera að bera
fram trúarjátning sína — trúarjátning, er vér gætum öll
sameinast um og oss mundi nægja um alla eilífð«.
Kringsjá.
öriine Hliitter.
Zeitsehrift fiir persönliclie u. völkische Lebensfragen von Dr.
Johannes Miiller. - Utg.: Verlag der Griinen Blíitter, Post Klais
(Oberbayern).
Dr. Johannes Miiller er þýzkur trúspekingur. A fjórða tug ára