Straumar - 01.10.1929, Blaðsíða 16

Straumar - 01.10.1929, Blaðsíða 16
158 STKAUMAK varp til sameiningar þessara þriggja kirkjuíélaga og sent hverju kirkjufélagi til frekari athugunar. Talið er mjög sennilegt, að til sameiningar dragi með þeim, því að fátt ber á milli. Bræðra- kirkjan var stofnuð af Philip William Otterbein, presti úr re- iormeruðu kirkjunni, þegar áhrif Wesley’s bárust út á meðal Jijóðverja 1 Pensylvania, Maryland og Oliio. Evangeliska synodan er eiunig af þýzkum uppruna, einskonar miðlunarstefna milli lúterskra og kalvinskra prótestanta og' getur því með hvortveggja kirkjunni unnið. — Er það vel, að þessar kirkjudeildir sam- einist. Loks er sagt, að Congregationalistar og „Christian" kirkju- íélögin og jafnvel Universalistar sé að hugsa um sameiningu. Virðist sá tími óðum vera að nálgast í Ameríku, að hvorki sé þar Gyðingur eða grískur, heldur allir sem einn maður í kirkj- unni og er það vel farið. — - Eins og kunnugt er sameinuðust Maþódistar, Congregationalistar og Presl)yterar í Canada árið 1925 1 „The United Church ot' Canada". B. K. Handbókardeilan í Englandi. Eins og menn muna feldi neðri deild enska þingsins breytingar þær sem gerðar höfðu verið á handliók ensku kirkjunnar, sem cr frá 1602. Bréytingar þessar stefndu mjög í kaþólska átt. Biskuparnir tóku þá með ráð, að prestum skyldi leyft að nota nýju handbókina eða þá gömlu eftir vild. Dr. Barnes. Vegna frjálslyndra skoðana doktors Barnes, biskups í Birmingham, sem lesendur Strauma kannast við, og doktors Mayors í Oxford, liafa ensku biskupamir ákveðið að þola ekki neitt sem stríði móti handbókinni frá 1662 og 1928. Stjómin í Mexíkó hefir ákvcðið, að framvegis skuli engir áfengir drykkir veittir í öpinberum' veizlum. Hernaóur oy trúarbrögð. 12. grein stjórnarskrár Jugoslaviu hljóðar s\o: „Enginn getui' skorazt undan borgaraleguin- og herþjónustuskyldum með skírskotum til fyrirmæla trúarbragða sinna". í 3. grein 43. kap. ungversku stjórnarskrárinnnr frá 1895, sem enn er í gildi, stendur: „Trúarsannfæring eða kirkju- lög geta ekki leyst neinn undan því að gegna hverri þeirri skyidu, sem lög leggja honum á herðar“. þessi iönd hafa verið kaþólsk í 1200 ár. Sunnudagur dýranna. Samband norskra dýravcrndunar félága liefir komið þvi til leiðar við norsku kirkjustjórnina, að einn sunnudagur á ári væri sérstaklega helgaður dýrunum. Var það i fyrsta skifti 25. ágúst í sumár. ])n var Öllum prestum gert að skyldu að minnast dýranna og minna menn á skyldur sínar við þau. Er slíkt fagur siður og eftirbreytnisverður og verður vonandi tekinn upp hér fljótlega. Dýraverndunarfélag hefir um alllangt skeið verið starfandi hér á landi. Hefir það vafalaust unnið gott og gagnlegt starf, og orkað miklu í þá átt

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.