Einir - 20.12.1925, Síða 1

Einir - 20.12.1925, Síða 1
UTGEFENDUR: N O K K R I R SEYÐ FIRÐINGAR E I N I R ÁBYRGÐAR- OG AFGREIÐSLUMAÐUR JÓHANNES ODDSSON !. árgangur. Seyöisfiröi, 20. desember 1925. 1. tölublaö. LJeilir og sæiir góðir lesendur! * * Menn greinir jafnan á uni ýms málefni. Ber nauðsyn til, að litið sé á þau frá fleiri en einni sjónarhæð. Hér austanlands hefir nú um hríð verið rætt um menn og málefni frá einni hlið, — að margra dómi til lítils gagns og sóma. „Jafnan er háifsögö sagan ef einn segir“, sagði Grettir. Satt mun það, að svo sé jafnan. Hitt fátíðana, að sagan sé ver en hálfsögð, — að mestu eða öllu rangsögð — eins og vér höfum nú um skeiö átt að venjast. — Slíkum ófögnuði vill „f:inir“ aflétta. — Hvorki vill hann lofa „gulli né grænum skógum“ né hinu, að „verða at sætt með goðum ok mönnum". — Stór lof- orð, en illa efnd, svo sem dæmi eru til, hæfa hvergi. — Því getur „Einir“ lofaö, að vera ómyrkur í máli, og að liggja ekki á liðisínu til stuðnings þeim málefnum, er hann telur góðs iiðs makleg. — Eigi mun hann æðrast þó ein- hverjum kunni að svíða, þegar hann lætur högg að ríða. Heldur eigi mun hann fölna, þó köldu andi á móti á göngu hans. En hve löng sú ganga verði lofar hann engu um né spáir. — Hins óskar hann, að njóta stuönings og hollustu sem flestra góðra manna, til h: illaríkrar starfsemi. Einis-menn. Úr bæjarstjórninni ijanga nú um ára- mótin bæjarfulitrúarnir Jón Sigurösson, Karl Finnbogason og Otto Wathne. — Kosning nýrra fulltrúa mun fram fara í 2. viku janúarmán. n. k. Verður þá ýmsum skemt en öðrum óhægt. Eigi mun þá „hálkan” bregðast né hitt, að einhverjir falli, — og hverjir sem hnoss- hreppa, er vafalaust að „fá.færri en vilja“. Satt og ósatt. „Við Seyðfirðingar erum ánægð- ir með þingmaiminn okkar og íhaldsstjórnina“, sagði bankastjór- inn hérna á stjórnmálafundinum 17. nóv. s. I. Vitanlega sagði hannsatt: Hann og ýmsir aðrir Seyðfirðingar eru ánægðir. En jafn víst er hitt: að hann sagði ósatt. Því undirritaöur og ýmsir aðrir Seyðfirðingar eru óánægðir með hvorutveggja. Þó bankastjórinn hefði sagt: „Við Seyðfirðingar erum banka- mepn“, hefðu það verið álíka annindi — og ósannindi. Hvernig er því þá varið, að hægt er að ségja satt og ósatt í einu? Því er svo varið, að sarna orð- ið er notað til að merkja fleira en eitt hugtak — í sama sam- hengi. Orðið Seyðfirðingur getur tákn- að einn, nokkra og alla Seyðfirð- inga. Samhengið á að segja tii, hver merkingin gildir í hvertskift. Hefði bankastjótinn' talað fyrir mnnn nokkurra Seyðfirðinga, sagði hann satt. En hann tók ekkert fram um það. Og samkvæmt sam- hengi ræðunnar varð að skilja hann svo, að ánægjan gilti alla Seyðfirðinga. Þess vegna var að- alniðurstaða orðanna ósönn. Hvers vegna segja menn annars satt og ðsatt í einu, eins og mörg- um hættir svo mjög við? Sumir gera þetta, vegna þess að þeir geta ekki hugsað rökrétt. Aðrir vegna þess að þeir vilja ekki gera það, eða hirða ekki um það. Hvorir tveggja gera tilraun til að EINIR óskar öllum lesendum sínum gleðilegra jóla. viila öðrum sýn — vitandi eða óvitandi. Hvorugir eiga rétt á að tekið sé mark á því sem þeir segja. Karl Finnbogason. íhaldsforingjarnir. Á síðari fundi Jóns Baidvins- sonar sagði Sig. Arngrímsson, að um leið og þingmaður tæki að sér framsögu í máli, þá gerði hann það algjörlega að sínu máli. — í 16. gr. laga um þing- sköp Alþingis segir svo: „Fasta- nefndir kjósa ritara fyrir hvert mál, sem þær fjalla um, og er hann framsögumaður þess máls“. Líklega yrði erfitt að fá ritara í þingnefndir, ef Sigurðar-regla yrði tekin upp. En svona er fá- fræði foringjanna mikil. Hvað mun þá um liðsmennina. — Á fyrri fundinum se'm Jón Baldvinsson hélt hér, sagði Jón i Firði, „að alment væru Austfiröingar ánægð- ir með íhaldið og íhaldsstjórnina“. Sennilega er enginn réttari mæli- kvarði ti! á'þetta mál en atkvæða- tala íhaldsþingmannanna við síð- ustu kosningar. Austfirðingafjórð- ungur leggur til tvo íhaldsþing- menn, og hafa þeir til samansóll atkvæði. Til samanburðar má geta þess, að 2. þingmaöur Sunnmýl- inga fékk 839 atkv. Það er nokk- uð fáliðaður almenningurinn hans Jóns míns. En sannsöglin er sam- boðin málsstaönum. Hávarður höggvandi.

x

Einir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einir
https://timarit.is/publication/704

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.